Dagblaðið - 21.05.1981, Side 16
16
.>>< !.*'• >t »••<-•>>'Ip-./mjv
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
„Ég hitti Patrick Sercu fyrir ein-
skæra tilviljun í vetur þegar ég var
staddur í Belgíu hjá Superia verk-
smiðjunum. Mér datt þá strax i hug
að fá hann í heimsókn hingað til
lands til að kenna fólki hvernig ætti
að meðhöndla kappreiðahjól,” sagði
Guðgeir Leifsson verzlunarmaöur í
Hjólum og vögnum. Á hans vegum
kemur heimsþekktur hjólreiðakappi,
Patrick Sercu að nafni, hingað til
lands á laugardaginn.
,,Hann tók ákaflega vel í að heim-
sækja ísland. Hélt reyndar að menn
hjóluðu ekkert hér,” sagði Guðgeir.
„Það er vel við hæfi að fá snilling á
þessu sviði hingað núna einmitt þegar
vinsældir reiðhjólsins aukast stöðugt.
Hér er komið mikið af kappreiða-
hjólum á götuna en eigendurnir ekki
alltaf vissir um hvernig á að fara með
þau. Þetta eru dýr tæki svo að rétt er
að þeim sé beitt á réttan hátt.”
Vel hittist á að hjólreiðadagurinn í
Reykjavík verður einmitt haldinn
daginn eftir hingaðkomu Patricks
Sercu. Hann sýnir að sjálfsögðu listir
sínar þann dag. Einnig hittir hann
hjólreiðamenn að máli í verzlun Guð-
geirs einhvern tima meðan á dvöl
hans stendur. Það verður auglýst
siðar.
„Hjólreiðadagurinn er ákaflega
vel þeginn,” sagði Guðgeir Leifsson.
,,Þá verða þúsundir manna á ferð-
I inni. Þessi iþrótt ætti því að fá góða
kynningu.”
Patrick Sercu er belgískur. Hann
hefur þrisvar orðið heimsmeistari í
hjólreiðum og einu sinni ólympíu-
meistari. Þrívegis hefur hann unnið
Evrópumeistaratitil og 35 sinnum
orðið Belgiumeistari. Hann hóf feril
sinn sem áhugamaður árið 1959 og
gerðist atvinnumaður nokkrum árum
síðar.
-ÁT-
Patrick Sercu ásamt öðrum heimsþekktum belgískum hjólreiðamanni,
Eddy Merckx.
FÓLK
Þrjátíu ár eru liöin síöan „lamaöi íþróttamaöurinn” slasaöist:
„ÉG HEF AÐEINS EINU SINNI
VERIÐ SLAPPUR Á TA UGINNI’’
— segir Ágást Matthíasson sem gengizt hefur undir
jimmtíu skuröaögeröir
Ísfiröingaklíka
meö
frjálshyggjuídýfu
Nýjum félögum í Taflfélag Reykja-
víkur og Taflfélag Seltjarnarness
hefur verið smalað grimmt undan-
farið. Fjölgun félaga gefur fleiri full-
trúa á Skáksambandsþingið, sem
haldið verður innan skamms. Er það
mál manna að smöluninni sé fyrst og
fremst beint gegn framboði dr. Ingi-
mars Jónssonar, forseta Skáksam-
bands íslands.
Telja gamlir stuðningsmenn Einars
S. Einarssonar, fyrrum forseta Skák-
sambandsins, að Ingimar og hans
menn hafi vegið ómaklega að Einari
þegar hann féll í kosningunni á móti
Ingimari.
„Ísfirðingaklíkan”, sem svo er
nefnd, er talin standa á bak við að-
gerðirnar nú. 1 henni eru Högni
Torfason, Einar S., Guðfinnur Kjart-
ansson og Hólmsteinn Steingríms-
son.
Mikill meirihluti nýrra félaga er í
Félagi frjálshyggjumanna þótt
Hannes H. Gissurarson sé ekki
nefndur meðal þeirra. Þó eru þar líka
þekktir framsóknarmenn og a.m.k.
einn fyrrverandi alþýðuflokksmaður.
Drœtti frestaö
Menn velta því nú fyrir sér hvort
ekki verði frestað drætti í áskrifenda-
getraun Visis eins og síðast. Þá var
drættinum frestað fram yfir mánaða-
mót í von um að hindra mánaða-
mótauppsagnir. Nú er meira í húfi,
því að síðustu og mestu verðlaunin
verða dregin út næst. Búizt er í kjöl-
farið við fjöldauppsögnum, sem
æskilegt er talið að reyna að fá frest-
að um mánuð með þvi að fresta
drætti fram yfir mánaöamót.
meðal fremstu íþróttamanna, aðeins
16 ára gamall, þegar slysið gerðist.
Galar með ÍBK
Jónas Guðmundsson, listmálari og
rithöfundur, hefur kært umsjónar-
menn listkynningar sjónvarpsins til
útvarpsráðs. Jónas heldur málverka-
sýningu í Norræna húsinu um þessar
mundir, sem kunnugt er. Með því að
sjónvarpið hefur með öllu sniðgengið
þessa sýningu telur Jónas að sér hafi
verið mismunað á opinskáan hátt.
Andrés Björnsson útvarpsstjóri
sagði í viðtali við fréttamann sjón-
varpsins síðastliðinn mánudag að al-
varleg hætta væri á að svokallaður
frjáls útvarpsrekstur yrði háður aug-
lýsendum.
Með einkaleyfi sínu hefði útvarpið
aftur á móti ótvíræðar skyldur við
neytendur, meðal annars í menning-
arlegu tilliti.
Þessi röksemd útvarpsstjóra er
óneitanlega þung á metunum. Þó því
aðeins að hún eigi sér trausta stoð i
daglegum rekstri, eins og útvarps-
stjóri vill áreiðanlega sjálfur.
Auglýsingatími sjónvarpsins er
býsna langur. Auglýsingarnar eru
margar villandi blekkingar, hundleið-
inlegar og sennilega löglausar.
Þegar skyldunum er vikið til hliðar
með bolabrögðum ofríkismanria inn-
an ríkisútvarpsins er vegið að hinum
skiljanlegu rökum útvarpsstjórans.
Það réttlætir kæru Jónasar Guð-
mundssonar til útvarpsráðs.
— Jónas
kœrir til
útvarpsráös
og Njarðvík
En móðinn hefur Itann ckki misst
þrátt fyrir 50 aðgerðir og spitalalcgur
meira eða minna í þessi 30 ár. Ennþá
hefur Ágúst mikinn áhuga á íþróttum
og margir kannast við hann af vellin
um. „Ég fór alltaf á alla leiki. Núna
læt ég mér nægja leiki með IBK.
Maður galar með Njarðvík í körfu
boltanum og ÍBK i fótboltanum.
Ég hefði svo sannarlega tekið þátt i
landskeppni fatlaðra hefði ég ekki
verið hér. Einhvern veginn hefði cg
reynt að ýta mér áfram í hjólastóln
um. Ég á kannski smámöguleika á þvi
að taka þátt siðustu dagana i maí.
Þessi landskeppni fatlaðra er mjög
til góðs. Það er alveg nauðsynlegt að
geta hreyft sig. Hin mikla jiámaka
kemur mér alls ekki á óvart," segir
Ágúst.
Viðhorfin
breytzt mikið
— Fi/wsl þér viöhorj almennings
til Jallaóra haj'a breylzl mikid þessi
þrjáliu ár?
„Já, það er sko ekkert smáræði.
Engum fötluðum hefði dottið i hug að
fara á ball fyrir 30 árum. Núna þykir
þetta sjálfsagt enda fer ég i Stapann
eins oft og ég get. Það er eðlilegt að
viðhorfin breytist þvi alltaf fjölgar
jjeim sem hafa lcnt i margs konar
slysum."
Ágúst Matthiasson er fæddur á isa
firði, alinn upp i Garðinum en liefur
verið búsettur i Keflavík síðan 1959.
Hann hefur starfað í apótekinu i
Keflavík á milli þess sem hann helur
legiðá sjúkrahúsum.
— Hvernig vildi það lil ad mál þiu
vard st’ofrœgl á sinum lima?
„Það varð ekki frægt fyrr en
tveimur árum eftir að slysið gerðist.
Þá kynntist ég Frimanni heitnum
Helgasyni iþróttaritstjóra Þjóðviljans.
Hann fékk áhuga á mér og eftir
jrað var ég alltaf í blöðunúm. Það kom
hingað sænskur poppari; frétti af mér
og vildi endilega halda einkatónlcika
fyrir mig," segir Ágúst. Miklar safnan
ir gengu fyrir Ágúst á sinum tíma.
Fórtil
Bandaríkjanna
Fyrstu fimm og hálfa árið eftir
slysið lá hann samfellt á sjúkrahúsi.
Eftir það fór hann á sjúkrahús i
Bandaríkjunum og dvaldist þar í tvö
ár. „Ég hef aðallega verið á sjúkrahús-
inu í Keflavík. Það má segja aðég hafi
séð læknunum þar fyrir uppskurðum,"
segir Ágúst hress. Allir sem tala við
Ágúst hljóta að undrást hversu bjart-
sýnn og glaður hann er. Við spyrjum
hann þvi hvort hann sé og hafi alltaf
veriðsvona.
„Það þýðir ekkert annað en að vera
bjartsýnn. Ég hef einu sinni verið
slappur á taugum. Það var eftir aðgerð
1972. Hins vegargekk þaðfljótt yfir.”
— Að lokum, Agúsi. i tilefni afyj
irstandandi landskeppni fatladra.
Hvernig heldur þú ad hún fari?
„Ég vona auðvitað að ísland sigri i
þessari keppni. j fyrsta skipti sem ís-
lendingar tóku þátt í norrænu sund-
keppni fatlaðra sigruðu þeir. Við
skulum bara segja að svo verði einnig
núna.
ELA.
Agúst Matthíassun, „lamadi íþriittamaáurinn", hejur iegtfl á lýtalækningadeild Landspitalans síflan í marz en vnnast lil afl
kumast heim í næstu viku. DB-mynd Sig. Þurri.
„Ég missi líklega af þessari keppni.
Hérna hcf ég legið síðan i marz og cr
að vonast til að fara i næstu viku til
Keflavíkur,"sagði Ágúst Matthiasson.
„lamaði iþróttamaðurinn", er við
heimsóttum hann á lýtalækningadeild
Landspítalans í vikunni.
Margir muna vafalaust æftir nafn-
inu „lamaði íþróttamaðurinn" en það
var frægt hér á landi fyrir tæpum þrjá-
tiu árum. „Ég var í stangarstökki,
braut stöngina og lenti illa niður á
bakinu. Það varð til jress að skadda
mænuna og ég varð lamaður frá mitti
og niður. Þetta gerðist 13. maí 1950
svo |rað eru eiginlega nákvæmlega
þrjátíu ár siðan," segir Ágúst er við
rifjum upp atburðinn. Hann var talinn
Heimskunnur belgískur hjólreiöakappi kemur í heimsókn um helgina:
Hefur þrívegis orðið heimsmeist-
ari og ólympíumeistari einu sinni
Fleir° ,
FOLK
Vegiö aö
röksemdum
útvarpsstjóra