Dagblaðið - 21.05.1981, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 1981.
17
Hjólreiðadagur í Reykjavík 24. maí:
HJÓLAB í ÞÁGU KIRRA
SEM EKKIGETA HJÓLAÐ
Eg heiti á Styrktarlélag lamaöra og fatlaöra
•• til eflingar iþróttum og útivist fatlaöra barna: ••
— þátttakendur saf na áheitum til styrktar útivist og íþróttum fatlaðra barna
Fleiri reiðhjól en venjulega verða
trúlega á ferðinni í einu í Reykjavík
sunnudaginn 24. maí næstkomandi
en þá verður gengizt fyrir hjólreiða-
degi og er kjörorð hans „Hjólum í
þágu þeirra sem ekki geta hjólað”.
Hver þátttakandi í hjólreiðadegin-
um styður málefni fatlaðra með því
að afla áheita og er miðað við að hver
þátttakandi afli áheita. Sérstök
áheitakort eru notuð og eru þau af-
greidd í grunnskólum borgarinnar,
hjólreiðaverzlunum, sportvöruverzl-
unum, sundstöðum og hjá Styrktar-
félagi lamaðra og fatlaðra að Háa-
leitisbraut 13.
Hjólaðfrá 10
stöðum í borginni
Lagt verður upp frá 10 stöðum í
borginni, frá Hagaskóla, Hvassa-
leitisskóla, Hlíðaskóla, Langholts-
skóla, Réttarholtsskóla, Laugarnes-
skóla, Breiðholtsskóla, Árbæjar-
skóla og Seljaskóla. Hjólað verður
siðan sem leið liggur um 10 km, að
íþróttaleikvanginum í Laugardal.
Safnazt verður saman við skólana um
klukkan 13 en lagt upp frá þeim um
klukkan 14.
Þegar komið er í Laugardalinn af-
henda þátttakendur áheitakortin og
peningana en fá í staðinn litprentuð
viðurkenningarskjöl.
Hagnaði af hjólreiðadeginum
verður varið til eflingar útivistar og
íþrótta fatlaðra barna.
Þessa dagana stendur yfir kynning
1 '
m dil
1 .
á hjólreiðadeginum í grunnskólum
borgarinnar. Hefur málið fengið
góðar undirtektir, bæði nemenda og
forráðamanna í skólum.
ökumenn
sýni tillitssemi
Þór Jakobsson veðurfræðingur,
sem á sæti í undirbúningsnefndinni
ásamt aðilum frá Styrktarfélagi fatl-
aðra, Hjólreiðafélagi Reykjavíkur,
Lionsklúbbnum Nirði og lögregl-
unni, kom hugmyndinni að hjól-
reiðadeginum á framfæri við Styrkt-
arfélag lamaðra og fatlaðra. Þór
sagðist hafa kynnzt slíkum hjólreiða-
dögum i Toronto í Kanada er hann
var þar við störf, en þar væru slíkir
hjólreiðadagar árvissir viðburðir og
mikil þátttaka í þeim. Þór sagðist
vilja leggja áherzlu á að ökumenn
sýndu mikla tillitssemi þennan dag og
einnig að hér væri ekki um neina
keppni að ræða, hjólað yrði í róleg-
heitum og jafnvel stoppað á leiðinni
til að hvíla sig. í fylgd með
börnunum yrðu félagar úr Hjólreiða-
félagi Reykjavíkur og myndu þeir
fara á undan og eftir til að tryggja að
engir færu of geyst eða drægjust
aftur úr.
<— ■ ■ m
Búast má við miklum fjölda reiðhjóla
ó götum borgarinnar sunnudaginn
24. mai, ef marka mó óhuga skóla-
barna ó hjólreiðadeginum.
••
fc
STYRKTARFELAG
Svona litur óheitakortið út sem hver
þótttakandi safnar óheitum ó óður en
hann tekur þótt i hjólreiðadeginum.
Þátttakendur
10áraogeldri
Allir sem eru orðnir 10 ára og eldri
geta tekið þátt i hjólreiðadeginum. Ef
einhverjir yngri en 10 ára vilja taka
þátt, þá óskar framkvæmdanefndin
eftir því að þeir séu í fylgd með full-
orðnum. -JR.
Fjórtán vilja stöðu
framkvæmdastjóra
Rauða krossins:
Hörkulið
sækir
um
Fjórtán umsækjendur eru um
stöðu framkvæmdastjóra Rauða
krossins sem nýlega var auglýst laus
til umsóknar. Umsóknarfrestur rann
út 15. maí.
Að sögn Ólafs Mixa læknis, for-
manns Rauða krossins, er stefnt að
því að búið verði að ráða nýjan fram-
kvæmdastjóra fyrir 1. júní. Ekki
viidi hann tilgreina nöfn umsækj-
enda, sagði þau trúnaðarmál. „En
þetta er hörkulið,” sagði hann.
-KMU.
Alþingi felli
frumvarpið
umlög-
leiðingu
bílbelta
— áskorun Frama
samþykkt með nær
öllum atkvæðum
Fellt verði frumvarpið um lögleið-
ingu bílbelta, segir i tillögu á aðal-
fundi Bifreiðastjórafélagsins Frama,
sem samþykkt var með öllum greidd-
um atkvæðum gegn tveimur í gær-
kvöldi.
Birgir Sigurðsson bifreiðastjóri bar
upp tillögu þess efnis að fundurinn
skoraði á alþingi að fella framkomið
frumvarp um lögskyldaða notkun
bílbelta. Fékk hún þá afgreiðslu, sem
fyrr segir.
Hofsós:
Kennararnir veikt
ust aldrei í vetur
Nemendur í grunnskólanum á Hofs-
ósi fengu engin frí í vetur vegna veik-
indaforfalla kennaranna. Kennarar
þeirra á Hofsósi eru nefnilega óvenju
heilsuhraustir og sprækir menn. Það
féll aldrei niður kennsla í vetur sakir
veikinda þeirra.
Þetta kom fram í skólaslitaræðu
Guðmundar Inga Leifssonar skóla-
stjóra á dögunum. Hann gat þess þó að
skólahaldið hefði legið niðri í 5 daga í
vetur vegna snjóþyngsla og óveðurs.
Nemendur grunnskóla Hofsóss unnu
síðustu tvær vikur vetrarins að sam-
þættu verkefni sem nefndist „Skaga-
fjörður — náttúra og dýralíf, Hofsós
og Grafarós, Hólastaður fyrr og nú,
fiskveiðar og fuglatekja, landbún-
aður”. Ekki var skipt í vinnuhópa eftir
aldri heldur völdu nemendur sjálfir það
verkefnið sem þeir höfðu mestan áhuga
á. Að skólaslitunum loknum var
haldin sýning á vinnu nemenda og
einnig handavinnusýning. Vélsmiðjan
Stuðlaberg hf. (sem framleiðir m.a.
hljóðkúta) veitti viðurkenningu þeim
nemendum 9. bekkjar sem beztum
árangri náðu í handmennt. Sýning á
handavinnu var mjög vel sótt. Gestir
gátu fengið sér kaffi og kökur sem
nemendur framreiddu í einni kennslu-
stofunni á meðan á sýningu stóð.
-Guðni, Hofsósi/ARH.
Skólastjóri afhendir Önnu Kristínu Jónsdóttur og Eysteini Steingrimssyni
vióurkenningu frá Stuðlabergi. DB-myndir: Guðni.
Líkan af Hofsósi sem nentendur bjuggu til.
Fuglalikön eftir yngstu burnin i skólanum.
Gamli bærinn að Hólum i Hjaltadal: likan eftir nemendur.
— nemendurnældu
sérþóíauka-
frídaga í
verstu óveðrunum
-BS.