Dagblaðið - 21.05.1981, Qupperneq 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
Gert er ráð fyrir hægviflri og suflvest-
an golu vfflast hvar um landifl, skýjafl
á Sufluriandi en láttir tíl á Norflur-
landi.
Klukkan 8 var austsuflaustan 2,
hálfskýjað og 6 stíg f Reykjavlk, aust-
an 3, skýjafl og 2 stíg á Gufuskálum,
suflaustan 2, láttskýjafl og 3 stíg á
Galtarvita, austsuflaustan I, hálfskýj-
afl og 3 stíg á Akureyri, logn heiðrlkt
og 4 stig á Raufarhöfn, suflaustan 2,
þoka og 0 stíg á Dalatanga, austan 3,
skýjafl og 7 stíg á Höfn og austan 4,
alskýjafl og 7 stíg á Stórhöffla.
I Þórshöfn var skýjafl og 8 stig, látt-
skýjafl og 14 stíg í Kuupmannahöfn,
skýjafl og 12 stíg í Osló, láttskýjafl og
15 stíg í Stokkhólmi, skýjafl og 11
stíg ( London, skýjafl og 16 stig í
Hamborg, skýjafl og 15 stíg ( Parfs,
hátfskýjafl og 10 stíg í Madrid, skýjafl
og 12 stíg (Lissabon og láttskýjafl og
lOstíg (New York.
V
Amllát
Aflalbjörg Jónsdóttir fv. símritari, sem
lézt 13. maí sl., fæddist 15. desember
1905 á Akureyri. Foreldrar hennar
voru Jón Guðmundsson og Jóhanna
Jónsdóttir. Árið 1910 fluttist hún með
foreldrum sínum til Siglufjarðar Aðal-
björg stundaði nám i Kvennaskólanum
í Reykjavík og sigldi siðan til Dan-
merkur þar sem hún stundaði nám í
húsmæðraskóla og verzlunarskóla.
Þegar hún kom heim hóf hún störf hjá
Pósti og síma á Siglufirði og siðan hjá
Ritsímanum 1 Reykjavík, þar sem hún
starfaði til ársins 1976.
Sigriflur Ásgeirsdóttir frá tsafirði, sem
lézt 14. maí sl., fæddist 7. september
1903 að Hvítanesi við ísafjarðardjúp.
Sigríður fluttist ung með móður sinni
til ísafjarðar þar nam hún síðan gull-
smíði hjá Þórarni Þorsteinssyni gull-
smið og var hún fyrsta konan sem lauk
námi í þeirri iðn hér á landi. Árið 1928
giftist Sigriður Jóni Valdimarssyni.
Bjuggu þau fyrst tvö ár í Hafnarfirði en
fluttust síðan til ísafjarðar þar sem þau
bjuggu síðan. Sigríður og Jón áttu 8
börn.
Ingvar Einarsson vélstjóri, Miðtúni 62,
lézt 14. maí á Landakotsspítala.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag, 21. mai, kl. 15.
Guflráður Davíö Bragason, Miðvangi
37 Hafnarfirði, sem lézt af slysförum
16. maí sl., verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 22.
maí kl. 14.
RÖSARKROSSREGLAN
Atlantis Pronaos
Pósthólf 7072
127 Reykjavlk
Árni Sigurflsson, Skipagötu 2 Akur-
eyri, verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 22. maí kl.
13.30.
HafUfli Guflmundsson kennari, Siglu-
firði, verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 22. maí kl. 10.30.
Guðrún Grimsdóttir frá Oddsstöðum,
sem lézt 4. maí sl., verður jarðsungin
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 23. maí kl. 14.
Guðleifur Guflmundsson trésmiður,
Miklubraut 86, sem lézt 23. maí sl.
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
föstudaginn 22. maí kl. 13.30.
Kveðjuathöfn um Trausta Árnason frá
Patreksfirði fer fram frá Fossvogs-
kirkju föstudaginn 22. maí kl. 13.30.
Jarðsungið verður frá Stykkishólms-
kirkju laugardaginn 23. maí kl. 11.
Fundlr
AA samtökin
í dag, fímmtudag, vcrða fundir á vegum AA-sam-
takanna sem hér segir: Tjamargata 5 (s. 91-12010),
græna húsiö, kl. 14 og 21 (ungt fólk), Tjarnargata 3
(s. 91-16373) rauða húsið kl. 21, Laugarneskirkja
safnaðarheimili kl. 21 og Kópavogskirkja kl. 21.
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39.........21.00
Blönduós, Kvennaskóli.....................21.00
Dalvík, Hafnarbraut 4.....................21.00
Keflavik, (92-1800) Klapparstíg 7..........21.00
Patreksfjörður, Ráöhúsinu við Aöalstræti ... 21.00
Sauöárkrókur, Aðalgata 3...................21.00
Seyðisfjörður, Safnaðarheimili.............21.00
Staðarfell Dalasýsla, (93-4290) StaðarfeU .... 19.00
Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata 24 ... . 20.30
Vopnafjörður, Hafnarbyggö4.................21.00
Á morgun, föstudag, verða fundir í hádeginu sem
hér segir: Tjarnargata S, kl. 12 og 14.
Fundur um fjöldatak-
markanir í Háskólanum
Föstudaginn 22. maí 1981 kl. 12.15 mun stjóm Stúd-
entaráðs Háskóla íslands efna til almenns stúdenta-
fundar í matsal Félagsstofnunar stúdenta v/Hring-
braut. Efni fundarins er fjöldatakmarkanir i Há-
skóla íslands.
Fundur þessi fylgir í kjölfar samþykktar Háskóla-
ráðs nú nýverið um fjöldatakmarkanir i læknis- og
tannlæknisfræði og er það í fyrsta skipti um langt
árabil að takmarka á fjölda læknanema við fyrir-
fram ákveðna tölu.
Framsögumenn á fundinum verða jafnt Úr hópi
stúdenta sem kennara og fylgjenda sem andstæðinga
fjöldatakmarkana.
Aöalfundur Dagskrár
Félag lausráðinna dagskrárgerðarmanna við Ríkis-
útvarpið heldur aöalfund sinn i kvöld, fímmtudag, á
Hótel Borg og hefst fundurinn kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf.
Mœðrafólagið
Aðalfundur verður haldinn mánudaginn 25. maí að
Hallveigarstöðum kl. 20. Aðalfundarstörf. Spiluð
félagsvist.
íslandsmótið í
knattspyrnu 1981
Fimmtudagur 21. mai
Melavöllur
KR — KA, l.deild.kl. 20.
Hvaleyrarholtsvöllur:
Haukar — iBK, 2. deild, kl. 20.
Reykjavikurmótið í
knattspyrnu 1981
Fimmtudagur 21. mai
Árbæjarvöllur:
Fylkir — iR, 2. fl. A, kl. 20.
Fellavöllur:
Leiknir — Víkingur, 2. fl. A, kl. 20.
Sýning í Landsbókasafni
Opnuð var í Landsbókasafni 19. maí, á 150 ára af-
mæli Steingríms Thorsteinssonar skálds, sýning á
ýmsu úr verkum hans. Jafnframt er þar minnzt
tveggja alda afmælis föður hans, Bjarna amtmanns
Þorsteinssonar, er var fyrr á þessu ári, 31. marz.
Sýningin er í anddyri Safnahússins við Hverfis-
götu kl. 9—19 mánud.—föstud. og laugardaga kl.
9—12.
Á myndinni má sjá Axel Thorsteinsson skoöa sýn-
ingu á verkum föður sins og afa.
m
I
GÆRKVÖLDI
GÓÐ HEIMILDARMYND
Dagskrá útvarps og sjónvarps
bauð ekki upp á margt forvitnilegt í
gærkvöldi, þann tíma sem ég ljáði
þeim fjölmiðlum eyra.
Flugið tók bróðurpactinn af kvöld-
inu, fyrst var það nýr einlcaflugvöllur
áhugamanna um flug í Mosfellssveit
sem nokkur styrr hefur staðið um,
sem tók af mér þá oft svo misjöfnu
ánægju að horfa á sjónvarpsfréttir.
Eftir að hafa horft í fyrsta sinn á
hinn fræga þátt Dallas með öðru aug-
anu, og einhverra hluta vegna fannst
mér ekki mikið til um, þá kom flugið
aftur til sögunnar.
Skrifari þessara lína fæddist um
það leyti sem orrustan um Bretland
stóð sem hæst og veit því lítið um
þann hildarleik nema það sem bók-
lestur og kvikmyndir geta frætt mann
um. Mér er i barnsminni að þegar ég
var að alast upp komst ég oft i bunka
af timaritum frá stríðsárunum og
man ég að mér fannst flughernaður-
inn á stríðsárunum spennandi og
flugmennirnir sem flugu þessum
merku flugvélum harla merkilegir
menn.
Þessar tvær kvikmyndir sem voru
uppistaðan í brezku heimildarinynd-
inni í gærkvöldi voru gott innlegg í
þann fróðleik sem ég held að öllum sé
hollt að sækja til þess hildarleiks sem
fram fór á vígvöllum í heimsstyrjöld-
inni síðari, bæði í lofti og á jörðu
niðri. Brezka myndin fannst mér að
öllu leyti betri, þarna var áhuga-
maður að gera sína eiginheimildar-
mynd um starf sem hann og félagar
hans voru að vinna. Hin myndin, sem
hinn síðar frægi kvikmyndaleikstjóri
William Wyler gerði, var meira í átt
til hetjudýrkunar og sýndi meira hina
spennandi hlið flughernaðarins.
Enda var þeirri mynd ætlað að vera
áróðursmynd fyrir bandaríska flug-
herinn heimafyrir.
Sú kynslóð sem nú er að vaxa úr
grasi þekkir ekki styrjaldarátök nema
af afspurn og því er öllum hollt að
fræðast um heimsstyrjöldina. Guð
gefi að Brésnef lifi sem lengst, er haft
eftir Haig utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og fyrrum hershöfðingja.
Með þessu á Haig við að þeir stjórn-
málamenn og þjóðarleiðtogar sem
ráða ríkjum víða um heim í dag muna
ógnir styrjaldarinar og eru varkárari
að hefja slíkt stríð á nýjan leik.
Hættan verður eflaust meiri á hern-
aðarátökum þegar sú kynslóð tekur
við sem aldrei hefur upplifað þær
ógnir.
Engar stórar bombur féllu í þeim
hluta umræðna um forréttindi
kvenna sem ég greip niður í útvarpinu
á eftir sprengjuvélunum í Bretlandi.
Einhvern veginn hef ég það á tilfinn-
ingunni að sumt af þvi sem fram
hefur komið um jafnrétti kynjanna
og forréttindi kvenna upp á síðkastið
hafi frekar orðið til þess að spilla
fyrir umræðunni um jafnréttismálin
og þá sérstaklega umræðurnar í þing-
inu um tímabundin forréttindi
kvenna til stöðuveitinga. Slíka hluti
er ekki hægt að setja í lög.
Ýmislegt
Ný stjórn Múrara-
meistarafólags Rvk
Aðalfundur Múrarameistarafélags Reykjavíkur var
haldinn 30. apríl sl.
ólafur Þ. Pálsson, sem átt hefur sæti i stjórn
félagsins um 20 ára skeið sem gjaldkeri, baðst undan
endurkjöri. Voru honum þökkuð mikil og góð störf
i þágu félagsins.
Núverandi stjórn félagsins er þannig skipuð:
Formaður Þórður Þórðarson, varaformaður Friðrik
Andrésson, ritari Páll Þorsteinsson, gjaldkeri Björn
Kristjánsson, meðstjórnandi Hafsteinn Júlíusson.
Ný stjórn í
Vinnuveitendasambandinu
Á fundi sambandsstjórnar Vinnuveitendasambands
íslands 5. maí sl. var Páll Sigurjónsson endurkjörinn
formaður Vinnuveitendasambandsins næsta starfs-
ár. Hjalti Einarsson var endurkjörinn varafor-
maður.
Aðrir kosnir í framkvæmdastjórn sambandsins
voru: Ágúst Hafberg, Davið Sch. Thorsteinsson,
Gísli ólafsson, Guðlaugur Björgvinsson, Gunnar S.
Björnsson, Gunnar J. Friðriksson, Haraldur Sveins-
son, Hjörtur Hjartarson, Jón Páll Halldórsson, Jón
Ingvarsson, Kristján Ragnarsson, Ragnar Halldórs-
son, Valtýr Hákonarson og Þórður Gröndal.
Nómskeið fyrir starfandi
grunnskólakennara
í sumar verður á vegum Kennaraháskóla íslands 24
námskeið fyrir starfandi grunnskólakennara. Nám-
skeiðin eru fjölbreytt að inntaki — fjallað er bæði
um starfshætti í skólum og námsgreinar. Nám-
skeiðin eru einnig mikilvæg vegna þess aö þar hittast
kennarar og miðla hver öðrum af starfsreynslu sinni.
Kennarar sýna endurmenntun mikinn áhuga en
hennar er sífellt þörf bæði vegna breytigna á náms-
efni og breyttra starfshátta í kennslu. Umsóknar-
frestur um námskeiðin var til 20. apríl og um mörg
námskeiðin sækja töluvert fleiri en hægt er að taka á
móti. Einkum er aðsókn mikil að námskeiðum þar
sem fjallað er um breytta starfshætti í byrjenda-
kennslu.
Nokkrir geta enn komizt aö á eftirtalin námskeið:
Kristinfræði 10.—14. ágúst.
Raungreinar (eðlis- og efnafræði, líffræði) 17.—22.
ágúst.
Markmið og leiðir í sveigjanlegu skólastarfi í 7.-9.
bekk 17.— 22. ágúst.
íþróttir 12.—14. ágúst í Reykjavík.
íþróttir 26.—28. ágúst að Laugum, Þing.
r ”
^ Tilkyiuilngar
Aðalfundur Fólags
íslenzkra rithöfunda
minntist í upphafi fundar þriggja látinna félaga,
þeirra Richards Beck, Eiríks Sigurðssonar og Jakobs
Jónassonar, og risu fundarmenn úr sætum til að
votta hinum látnu virðingu sína.
Að lokinni inntöku nýrra félaga flutti formaður
skýrslu sína. Haldnar hafa verið kvöldvökur með
bókmenntakynningum og upplestrum skálda og rit-
höfunda. Þá var gestum boðið á kvöldvökurnar og
lásu þeir upp eða töluðu um listir og menningarmál
og svöruðu fyrirspurnum.
Einnig hafa verið haldnir allmargir fundir þar sem
rædd voru ýms mál er rithöfunda varða. Meöal
annars var á aðalfundinum samþykkt samhljóða til-
laga til menntamálaráðherra að hann hafí forgöngu
um að framkvæmd verði talning á bókaeign ísl.
höfunda í bókasöfnum og jafnframt verði endur-
skoðaðar reglur um greiðslur til höfunda úr Rit-
höfundasjóði íslands fyrir afnot bóka.
í stjórn voru kosnir: Ármann Kr. Einarsson var
endurkjörinn formaður og aðrir í stjórn Ingimar
Erl. Sigurðsosn og Sigurður Gunnarsson. Fyrir í
stjórninni voru: Indriði Indriðason, Indriði G. Þor-
steinsson, Sveinn Sæmundsson og Þröstur J. Karls-
son.
Endurskoðendur voru kosnir: Ragnar Þorsteins-
son og Stefán Ágúst Kristjánsson.
Tónlistarskóli
Skagafjarðarsýsiu
Tónlistarskóla Skagafjarðarsýslu var slitið sunnu-
daginn 3. maí sl. í fímmta sinn. Þar komu fram nem-
endur og léku einleik og samleik á pianó, gítara og
blokkflautur. Á efnisskrá voru lög eftir Clementi,
Bach, Beethoven, Strauss o.fl. höfunda. Einnig söng
Karlakórinn Heimir nokkur lög.
Kennsla við skólann fer fram á sex kennslustöðum
en kennslusvæði skólans nær frá Fljótum í Skaga-
firði og hringinn að Sauðárkróki. Skólinn hefur
haldið nanendatölu vel frá þvi fyrsta en nemendur
hafa verið á bilinu 120—160 þessi fimm ár. í ár tóku
allmargir stigspróf við skólann og er það í fyrsta
skipti sem formleg próf eru tekin við hann en þau
stigspróf sem voru tekin nú voru forstig, 1. stig og 2.
stig. Við próf er lögð til grundvallar námsskrá útg.
af menntamálaráðuneytinu og hefur verið kappkost-
að að fylgja henni sem ýtarlegast. Prófdómarar við
skólann voru þeir Guðjón Pálsson og Elías Þor-
valdsson, báðir frá Siglufirði. Ingimar Pálsson var
skólastjóri en kennarar auk hans voru Einar
Schwaiger, Anna Jónsdóttir, Guðni Bjömsson og
Margrét Jónsdóttir.
Á skólaslitunum kom fram aðskólastjórinn, Ingi-
mar Pálsson, sem hefur verið skólastjóri frá því að
skólinn tók til starfa, hefur fengið leyfi frá störfum
til þess að stunda framhaldsnám á Ítalíu næsta
skólaár og hefur hann falið Einari Schwaiger, píanó-
kennara við skólann, að annast störf þau er að fag-
legri stjórnun skólans lúta, en starfsrammi frá skóla-
stjóra liggur fyrir í byrjun starfsárs. Að öðru leyti
hefur hann falið Margréti Jónsdóttur aö koma fram
fyrir sína hönd og annast störf sín.
í haust kemur væntanlega að skólanum tékknesk-
ur kennari, Jlri Hlavacek, en nokkuð er um að
Tékkar vilji sinna tónlistarkennslu á íslandi.
Með hliösjón af þeim árangri sem náðst hefur
þessi fímm fyrstu starfsár skólans höfum við ástæðu
til að lita björtum augum til næstu ára.
Á þessum afmælistímamótum þakkar skólanefnd
skólastjóra, kennurum og öðru starfsfólki vel unnin
störf og ámar skólastjóra allra heilla í námi á næst-
komandi ári.
v Hf. Skallaghmur
ÁÆTLUN AKRABORGAR
i janúar, febrúar, mars, nóvember og
desember:
Frá Akranesi
Kl. 8,30
— 11,30
— 14,30
— 17,30
Frá Reykjavík
Kl. 10,00
— .13,00
— 16,00
— 19,00
I apríl og október verða kvöldferöir á sunnudogum. — í
maí, júni og september veröa kvöldferöir á föstudogum
og sunnudögum. — i júlí og ágúst veröa kvöktferöir alla
daga, nema laugardaga.
Kvöldferöir eru fré Akraneei kl. 20,30
ogfráReykjavikkl. 22,00.
Afgreiðsla Akranesi simi2275
Skrifstofan Akranesi simi 1095
Afgreiðsia Rviksími 16050
Símsvari i Rvik sími 16420
Talstoðvarsamband viö skipiö og atgreiöslur á Akranesi og Reykja-
vik FR -bylgja, rás 2. Kallnúmer AKranes 1192, AkraDorg 1193,
Reykjavik 1194
Ómar Diðriks-
son meistari
nema í
hárskurði
Þegar skrifað var um íslandsmeist-
aramótið í hárskurði og hárgreiðslu
gleymdist að geta eins sigurvegarans.
Það var sá er sigur bar úr býtum í
keppni nema í hárskurði. Hann heitir
Ómar Diðriksson og vinnur á Rakara-
stofunni á Klapparstíg. I öðru sæti
varð Sigríður Kristjánsdóttir, Rakara-
stofunni Hótel Sögu og í þriðja sæti
Jón H. Guðmundsson, Rakarastofunni
Klapparstig. -DS.
Félag íslenzkra rithöfunda hélt aðalfund sinn föstu-
daginn 1. maí 1981 að Hótel Esju.
Formaður félagsins, Ármann Kr. Einarsson,
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferflamanna-
Nr.94-20. ma(1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 6,831 8,849 7,534
1 Sterlingspund 14,277 14,314 16,745
1 Kanadadollar 5,891 5,708 8,277
1 Dönsk króna 0,9493 0,9618 1,0470
1 Norskkróna 1,2052 1,2084 1,3292
1 Sœnsk króna 1,3995 1,4031 1,5434
1 Hnnsktmark 1,6848 1,5887 1,7476
1 Franskur franki 1,2383 1,2418 1,3658
1 Belg. franki 0,1828 0,1833 0,2016
1 Svissn. franki 3,3526 3,3615 3,8977
1 Hollenzk florlpa 2,6817 2,6888 2,9577
1 V.-þýzktmark 2,9836 2,9915 3,2907
1 itölsk l(ra 0,00598 0,00600 0,00660
1 Austurr. Sch. 0,4221 0,4232 0,4655
1 Portug. Escudo 0,1124 0,1126 0,1239
1 Spánskurpesetí 0,0748 0,0750 0,0825
1 Japansktyen 0,03103 0,03111 0,03422
1 irsktDund 10,911 10,940 12,034
SDR (sérstök dréttarréttindi) 8/1 8,0453 8,0686
Sknsvari vegna gengisskráningar 22190.