Dagblaðið - 21.05.1981, Side 28
frfálst, óháð dagblað
Sanitas
drykkir
LÆKKAÐ
VERÐ
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ1981.
Þrjár íbúðir
stór-
skemmdar
af eldi og
vatni
Eldtungur stóðu út um fjóra glugga
að Hverfísgötu 59 B er slökkviliðið var
kvatt þangað kl. 21.19 í gærkvöldi.
Þetta er litið timburhús á steyptum
grunni, kjallari, hæð og ris. Útlitið var
talið alvarlegt er reykkafarar stungu sér
inn i húsið í leit að íbúum þess. Enginn
reyndist vera i húsinu. Þarna bjuggu
þrjár fjölskyldur.
Slökkvistarfið tók tæpa klukku-
stund. Eftir stóðu íbúðir á hæð og í risi
stórskemmdar af eldi og kjallari þar
sem mikið tjón varð af vatni.
Þetta hús er sambyggt Vínsölu
ÁTVR við Lindargötu. Voru ráðamenn
þaðan kvaddir á staðinn og stóðu þar
vakt fram eftir nóttu.
-A.St.
Áskrifendur
DB athugið
Einn ykkar er svo Ijónheppinn
að fá að svara spurningunum i
leiknum „DB-vinningur i viku
hverri”. Nú auglýsum við eftir
honum á smáauglýsingasiðum
blaðsins f dag.
Vinningurfyrstu
vikunnarer
Útsýnarferð til
Ítalíu
Heppinn DB-áskrifandi verður
dreginn út i vikunni og svari hann
léttum spurningum um smáaug-
lýsingar DB hlýtur bann Lignano-
ferð að launum. Nýir vinningar
verða veittir vikulega næsta hálfa
árið i þessum leik Dagblaðsins.
— Og leggja til að uppeldisf ræðingur verði skipaður í starf ið
Jón Torfi Jónasson sálfræðingur
hlaut 9 atkvæði en Ólafur Proppé
uppeldisfræðingur 1 atkvæði í kosn-
ingum á deildarfundi félagsvísinda-
deildar Háskólans í gær. Þeir sækja
um stöðu lektors í uppeldisfræðum
ásamt Grétari L. Marinóssyni sál-
fræðingi, Þórði Gunnari Valdemars-
syni uppeldisfræðingi og Wilhelm
Norðfjörð sálfræðingi. Allir að Wil-
helm undanskildum voru dæmdir
hæfir til að gegna stöðunni.
Stúdentum var ekki leyft að taka
þátt í atkvæðagreiðslunni í gær þó
þeir teldu sig hafa vilyrði fyrir því
áður. Fyrir lá samþykki stúdenta í
uppeldisfræði um að uppeldisfræði-
menntaður maður yrði ráðinn í lekt-
orsstarfið. Segja þeir það vera
„prinsipmál” til að verja heiður fags-
ins fremur en afstaða til ákveðinna
umsækjenda. Uppeldisfræðistúdent-
ar eru mjög ókátir með niðurstöðu
deildarfundarins. Þeir hittust á fundi
í gærkvöldi og ætla að koma saman
aftur í dag til að ræða málið. Bæði
gera þeir athugasemdir við þá
ákvörðun að útiloka þá frá þátttöku í
atkvæðagreiðslunni og einnig það að
uppeldisfræðimenntaður maður
skyldi ekki fá betri og meiri stuðning
fundarmanna. Þeir styðja Ólaf
Proppé og ætla að upplýsa Ingvar
Gislason menntamálaráðherra um þá
afstöðu sína.
Jón Torfi Jónasson er doktor í sál-
fræði og kennir í félagsvísindadeild.
Ólafur Proppé er að ljúka doktors-
prófi í uppeldisfræðum. Hann starf-
ar í menntamálaráðuneytinu. -ARH.
■ ■ ■ Stúdentar ætla
atkvæðagreiðslu um _ _ _ r y* m
a fund raðherra
Nafn heppins DB-áskrifanda var
dregið út í gær. Það er að finna í einni
af smáauglýsingum blaðsins í dag
þannig að áskrifendur ættu að skoða
þær vel. Hinn heppni þarf að vita svar
við spurningum sem birtust á bakslðu
blaðsins i gær áður en hann gefur sig
fram við augiýsingadeildina og svarar
þeim. Svari hann rétt hlýtur hann að
launum ferð með Útsýn til Lignano á
ftaliu.
Við nefnum þennan leik „DB-vinn-
ingur i viku hverri” því í hverri viku
næstu 26 vikur verður dregið út nafn
eins áskrifanda sem fær kost á að
hljóta glæsilegan vinning með þvi að
svara léttri spurningu úr smáauglýsing-
um DB.
Allir áskrifendur, nýir sem gamlir,
geta verið með í leiknum. Þvi ættu þeir
sem ekki hafa þegar gerzt áskrifendur
að slá til núna þvi vinningarnir saman-
standa af sex utanlandsferðum með Út-
sýn, tveim myndsegulböndum, heimil-
istölvu og fimm Crown hljómflutnings-
tækjum frá Radíóbúðinni og síðast en
ekki sizt, tólf 10 gíra DBS-reiðhjólum
fráFálkanum.
-KMU.
Skjátlast þeim í
fjármálaráðu-
neytinu?
Fjármálastjóri Ríkisútvarpsins mót-
mælir því aðrisna Sjónvarpsins sé jafn-
mikil og fram hefur komið í skriflegu
svari fjármálaráðherra við fyrirspurn á
Alþingi.
Samkvæmt plöggum sem fjármála-
stjórinn sendi DB í gær virðist liklegast
að einhver talnaruglingur hafi orðið i
svari ráðherrans; milli bifreiðakostnað-
ar og risnu Sjónvarpsins. Fjármála-
stjórinn segir bifreiðakostnaðinn hjá
Sjónvarpinu hafa verið 18.201.476
krónur en risnukostnaðinn 5.129.485
krónur. I svari Ragnars Arnalds á
Alþingi erbifreiðakostnaður Sjónvarps
talinn vera liðlega 33 milljónir króna og
risnukostnaðurinn 18.2 milljónir.
-A.St.
Við auglysum eftir
beppnum áskrifanda
nafn hans er i smaauglysmgu
í dag
hann á kost á Utsýnarf erð svari
hann léttum spurnmgum rétt
Selma Magnúsdóttir, starfsmaður auglýsingadeildar DB, dregur út nafn eins áskrifanda blaðsins. Er það þitt nafn?
DB-mynd: Bjarnleifur.
íslandsheimsókn Kortsnojs til að koma höggi á Friðrik?
Fréttin komin ígegnum
bladafulltrúa Karpovs
—þáttur í sálf ræðistríði Sovétmanna, segir Kortsnoj um Þjóðviljaf rétt
„Það sem mér finnst um þessi skrif
er frá hve undarlegu sjónarhorni er
litið á Islandsheimsókn mína,” sagði
Viktor Kortsnoj stórmeistari og
áskorandi Karpovs heimsmeistara í
skák í gær.
f Þjóðviljanum i gær sagði að
Kortsnoj hefði skýrt frá nýlegri heim-
sókn sinni til íslands er hann tók þátt
í skákmóti í Bad Kissingen í Vestur-
Þýzkalandi. Þjóðviljinn segir að
meðal þess sem Kortsnoj hefði sagt
værí að íslandsheimsóknin gæti
komið Friðriki Ólafssyni forseta
FIDE illa. Gestgjafar hans hefðu þá
sagt að þeim þætti það „ekkert
verra .
,,Ég hélt blaðamannafund í Bad
Kissingen og þar sagði ég ekkert um
þetta,” sagði Kortsnoj. „Ég leit
síðan yfir það sem skrifað var í þýzku
blöðin eftir fundinn og þar var ekkert
skrifað um þetta.
Ég hef þá trú að Friðrik Ólafsson,
forseti FIDE, vinni af einlægni að því
að fá fjölskyldu mína lausa frá Sovét-
ríkjunum og að jafna aðstöðu okkar
Karpovs fyrir heimsmeistaraeinvígið í
skák sem haldið verður síðar á árínu.
Ég var á fslandi til þess að fá sið-
ferðilegan stuðning sem gæti síðan
stutt við bakið á Friðriki Ölafssyni
þannig að meiri líkur væru til þess að
hann næði takmarki sínu. Það er
augljóst að mér var boðið til fslands
til þess að þessi siðferðilegi stuðning-
urfengist.”
— Ér þá fréttin í Þjóðviljanum
röng?
„Hún er fyrst og fremst einkenni-
leg. Ég endurtek að ég sagði ekkert
um þetta á blaðamannafundinum.
Hins vegar kom blaðafulltrúi
Karpovs heimsmeistara til Bad Kiss-
ingen á meðan skákmótið stóð yfir.
Það er hluti af því sálfræðistríði, sem
Sovétmenn reka gegn mér og er þegar
byrjað fyrir þetta einvígi.
Ég þykist sjá að fréttin í Þjóðvilj-
anum sé komin eftir þessum leiðum.
Hún er til þess að spilla sambandinu
milli min og Friðriks Ólafssonar áður
en að einviginu kemur. Blaðafulltrúi
Karpovs var í Bad Kissingen tU þess
að afla upplýsinga og gegnum hann
er fréttin komin.”
„Ég vil ekki segja eitt einasta orð
um svona málflutning. Þetta er ekki
svaravert,” sagði Einar S. Einarsson
í morgun. Einar var ásamt fleirum i
móttökunefnd vegna heimsóknar
Kortsnojs á dögunum.
-JH.