Dagblaðið - 25.05.1981, Síða 22
22
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAÍ 1981.
SVFR
SVFR
Vatna-
svæði
Lýsu
Snæ-
fells-
nesi
Stangaveiðifélag Reykjavíkur hefur tekið á leigu allan veiðirétt á þessu
forvitnilega veiðisvæði sumarið 1981. Árleg meðalveiði um 240 laxar auk
silungs. Undurfagurt umhverfi. Veiðiferð á Snæfellsnes er fyrir alla fjöl-
skylduna. Svefnpokapláss með eldunaraðstöðu að Lýsuhóli. Þar er heit
ölkeldusundlaug. Hótelið að Búðum í næsta nágrenni. Fleiri gistimögu-
leikar fyrir hendi. Verð veiðileyfa frá kr. 90 til kr. 250. Frá Akranesi að
vatnasvæði Lýsu er um 2ja klst. akstur. Ósvikin ævintýraferð fyrir veiði-
manninn, makann og börnin. Leitið upplýsinga í sima 86050/83425.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur,
Austurveri.
Erindi um íbúðabyggingar og
skipulag íbúðarhverfa í V-Þýzkalandi
/ kvöld kl. 20.30, mánudag, Jlytur Hermann Boockhoff,
arkitekt, Hannover, erindi í Lögbergi, H.Í., stofu 101.
A ðgangur er öllum heimill.
Þýzka bókasaf nið
Arkitektafélag íslands.
Aðalfundur deildar 4
verður haldinn í Gaflinum Hafnarfirði v/Reykja-
nesbraut laugardaginn 30.5 kl. 14.00.
Venjuleg aðalfundarstörf, skírteini sýnist við
innganginn. Innheimtustjóri verður á staðnum.
Deild 4 - Stjórnin.
• • ♦ • •
• • •
Nýtt og nytsamt.
Þú setur HAPPY FEET sólana í skóna og þeir gefa
þér þægilegt iljanudd (Zoneterapi), sem örvar líffær-
in og dregur úr vöðvaþreytu.
Tugþúsundir Dana hafa framúrskarandi góöa
reynslu af HAPPY FEET.
HAPPY FEET eru framleiddir 1 Kína og byggja á
aldagamalli reynslu Kínvcrja af akupunktur.
Prófaöu HAPPY FEET og þú munt sannfærast.
Kynningarverð kr. 69,10 auk burðargjalds. 14 daga
skilaréttur: Ef þú ert ekki á ánægðurfur) með árang-
urinn, endursendir þú sólana og færð peningana til
baka.
Sólteppið
Notaðu sólteppið í sólbaðið. Þú getur
legið á teppinu eða hengt það upp og
það endurkastar sólargcislunum á lik-
amann, alveg eins og sjórinn eða snjór-
inn.
Þú verður ótrúlega fljótt sólbrún(n)
með sólteppinu.
Verð aðeins 78 kr. auk burð-
argjalds.
Dvergsaumavélin
sivinsæla.
Tilvalin i ferðalagið,
sjálfsögð á sjóinn.
Krakkarnir sauma dúkkufötin auðveld-
lega með dvergsaumavélinni.
Verð aðeins 79 kr. auk burðargjalds.
PÖNTUNARSÍMI75253
Póstverzlunin AKRAR
Pósthólf 9140 129 Rvk.
Halldór Ásgeirsson i miðju „tákna”verki sinu í Suðurgötunni.
(DB-mynd Sig. Þorri).'
JORD, VATN,
ELOUROGLOFT
Myndverk Halldórs Ásgeirssonar í Suðurgötu 7
Halldór Ásgeirsson hefur um skeið
verið á jöðrum Suðurgötu-hópsins
svonefnda en aldrei svo 1 sviðsljósinu
að sérstaklega væri eftir honum
tekið. Kannski er ástæðan sú að hann
hefur dvalið lengi með erlendum
þjóðum síðustu misseri, einkanlega
Frökkum.
Stök verk eftir hann hafa sést á
samsýningum öðru hvoru en sjaldn-
ast I nægilegum mæli til að gefa til
kynna markmið hans og þankagang í
listinni.
Áhugi á ritúalinu
Aftur rakst ég á þennan gjörning
Halldórs á fundi gagnrýnenda í Nor-
egi en hann hafði verið tekinn upp á
myndband við flutning og var not-
aður sem umræðugrundvöllur á
fundinum. Gjörningur Halldórs var
eins konar ritúal um hinar fornu
höfuðskepnur: jörð, vatn, eld og
loft, og var ansi áhrifamikill að sjá.
Um það virtust bæði sýningargestir í
Bergen og gagnrýnendur á sama
máli.
Myndlist
AÐALSTEINN
INGÓLFSSON
Nú ætti að gefast tækifæri til að
gaumgæfa verk Halldórs þvi hann
sýnir í Suðurgötu 7 til kvölds (mánu-
dag), aðallega verk sem voru á sam-
sýningu nokkurra íslendinga í Bergen
fyrir nokkrum vikum. Reyndar bár-
ust mér fyrir stuttu blaðaúrklippur
þaðan þar sem m.a. er fjallað um
gjörning sem Halldór framdi í Kunst-
forening Bergenborgar og af skrifum
þessum má ráða að Norðmenn hafa
ekki enn tileinkað sér það tjáningar-.
form, eru satt að segja fremur undr-
andi á því.
Samt veit ég ekki hvort þessi gjöm-
ingur er á nokkum hátt lykill að sýn-
ingu Halldórs í Suðurgötunni. Senni-
lega ekki. Þar er að vísu að finna
bæði eld og mold en að öðru leyti eru
snertipunktar fáir. Nema ef nefna
skyldi almennur áhugi Halldórs á
ritúalinu, bæði i vinnslu verka og
framsetningu þeirra.
Á sýningunni er að finna sérhann-
að umhverfi, ljósmyndir, verk gerð
með aðstoð spegla og svo litlar
„tableaux” með kertum o.fl. Síðan
er hægt að skoða litskyggnur af ýmiss
konar vinnu listamannsins með
skyggnur, m.a. skrásetningar á
gjörningum.
í þykjustunni
og alvöru
Af þvi sem þarna er vil ég þó giska
á að hugmyndir Halldórs snúist um
sambandið milli myndverks og veru-
leika, annars vegar þá veröld sém við
þykjumst sjá, hins vegar veröldina
eins og hún birtist í myndverkum.
Þær ígrundanir verða honum tilefni,
til áleitinna sjónrænna leikja með að-
stoð spegla og spegilmynda en þar er
spilað á fyrirfram ákveðna symme-
tríu, endurtekningu stellinga o.s.frv.
Sömuleiðis gerir listamaðurinn sér
far um að gera sýningarstað og
áhorfendur að beinum þátttakendum
í verkunum: teiknuð lína í ljósmynd
heldur áfram út á vegginn sem ljós-
myndin er hengd á. Og í innsta saln-
um uppi gengur áhorfandinn beint
inn i furðuveröld, veggi og gólf al-
þakin dularfullum táknum.
Ekki nógulangt
En þótt þarna sé margt sem reynir
á athyglisgáfurnar þá er eins og verk
Halldórs í heild gangi ekki nægilega
langt og séu ekki nógu samstíga.
Manni finnst sem hann fylgi ekki
eftir hugmyndum sínum nema að
takmörkuðu leyti, taki svo kúrsinn á
önnur mið heldur fljótt. Auk þess
hefði ég viljað sjá ögn betri tæknileg-
an frágang á sumum verkunum. En
hann er mikill hugmyndabanki og á
eflaust innstæðu fyrir sterkum sýn-
ingum i framtíðinni.
-AI.
Gjörningur Haildórs i Bergen: Listmaðurinn þekur bæði léreft og sjálfan sig frumlitum. Hægra megin við hann er vatn, eldur |
að baki. Sjálfur andar hann i míkrófón sem hann ber uppi í sér, er vindurinn.