Dagblaðið - 22.06.1981, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ 1981.
Rafmagnsveitur ríkisins
óska að ráða tækniteiknara. Laun eru skv. kjarasamning-
um BSRB og ríkisins, launaflokkur B-8.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur og fyrri
störf sendist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118 Reykjavik.
SÖLUSKA TTUR
Viöurlög falla á söluskalt fyrir maímánuö I98l liafi hann okki voriö
greiddur i siöasta lagi 25. þ.m.
Viöurlög cru 4% af vangreiddum söluskatti f.vrir hvern byrjaöan virkan
dag eftir eindaga uns þau eru oröin 20% en síðan eru viðurlögin 4,5% til
viðbótar fyrir hvcrn byrjaðan mánuö, taliö frá og mcö 16. júlí.
Fjármálaráðuneytiö,
18. júni 1981.
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
Skrásetning stúdenta
til náms á 1. námsári í Háskóla Islands
fcr frain frá 1. lil I5.júli 1981. Umsókn urn skrásetningu skal l'ylgja staö
fest Ijósrit cða eftirrit af stúdcntsprófsskírtcini. skrásetningargjald kr. 320
og tvær lillar Ijósmyndir af umsækjanda. Skrásetningin l'cr fram i skril
stofu háskólans og þar fást umsóknareyðublöð.
Athufiid: Ekki verður tekið við umsóknum cftir 15. júli.
1 1 . l
NÁMSGAGNASTOFNUN
Námsgagnastol'nun auglýsir eflir slarlsmanni til að annast tólvustýrt
birgðabókhald stofnunarinnar ásamt fleiri vcrkefnum.
Við lcitum að manni mcð staðgóða grunnmenmun. t.d. próf frá
Vcrslunarskóla íslands. Samvinnuskóianum cða aöra sambærilcga
menntun og helst starfsreynslu.
Hcr er um fjölþætt framtiðarstarf að ræða fyrir duglegan mann. I>arf að
geta hafiðstarf nú þegar. Laun samkv. launakcrfi starfsmanna ríkisins cn
nánari upplýsingar veitir námsgagnastjóri.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mcnntun og fyrri störf scndist
lyrir l.júli til Námsgagnastofnunar.Tjarnargötu lO.pósthólf 1274.
Nýtið
hitaveituna
Sundlaug í bakgarðinn, í kjallarann, fyrir félagsheimilið
eða bæjarfélagið.
Sundlaugar úr áli eða stáli með plastpoka er auðvelt að
koma fyrir og ódýr framkvæmd.
Sundlaug er samkomustaður fjölskyldunnar og vinanna.
Sund er heilsurækt.
Útvegum allt til sundlauga: Hreinsitæki, ryksugur, forhit-
ara, yfirbreiðslur, stiga, klórduft eða -töflur, plastpoka í
gömlu eða nýju steinsteyptu laugina.
Leitið upplýsinga.
/
^gunnai S^b^eiMon k.f
Suðurlandsbraut 16,105 Reykjavík. — Simi 35200
Þórhallur Sigurðsson segir sig úr þjóðleikhúsráði í mótmælaskyni:
„Núverandi ástand er
meö öllu óveriandr
„Núverandi ástand er með öllu
óverjandi. Það er gjörsamlega ofviða
einum manni, að hafa á hendi allt
framkvæmdavald á svo margbrotnum
vinnustað. Þegar við bætist svo veruleg
fjarvera leikhússtjórans, sem stundum
er óhjákvæmileg, án þess að nokkur
framkvæmdastjóm komi i staðinn, er
augljóst hvert stefnir.”
Svo segir m.a. í yfirlýsingu Þórhalls
Sigurðssonar leikara, fulltrúa Alþýðu-
bandlagsins i þjóðleikhúsráði, sem
fyrir helgina sagði sig úr ráðinu f mót-
mælaskyni við störf og stefnu í leik-
húsinu.
Þórhallur segir í yfirlýsingu sinni, að
þar sem „stjórnun og rekstur Þjóðleik-
hússins hafa nú síðustu misserin gengið
þvert á hugmyndir mínar um hvemig
starfa eigi í leikhúsi, get ég ekki sam-
vizku minnar vegna tekiö lengur þátt í
stjórnunarstörfum stofnunarinnar. Ég
hef því sagt mig úr þjóðleikhúsráði.
Ég tel fullreynt, að ákvæði gildandi
laga um skipan þjóðleikhúsráðs séu
úrelt og þeim beri að breyta hið
fyrsta.”
Þórhallur segir að Alþingi hafi
hunzað allar tillögur þjóöleikhússtjóra
og starfsmanna hússins um fram-
Þórhallur Sigurðsson: „Sættl mlg ekld
við hvernig ýmsar tillögur sem ráðið
hefur samþykkt hafa orðið að engu
vegna lélegrar framkvæmdastjómar.”
kvæmdastjórn í Þjóöleikhúsinu þegar i
smíðum voru ný lög um leikhúsið fyrir
þremur árum.
Sfðan segir hann: „Eftir þriggja ára
setu i þjóðleikhúsráði fullyrði ég, að
ráðið er ekki fært um að vera sjálf-
stæður eftirlitsaðili „með starfsemi og
rekstri leikhússins”, eins og hin göll-
uðu lög kveða á um. Þjóðleikhússtjóri
situr fundi ráösins og kynnir þau mál,
sem honum þurfa þykir, og vegna yfir-
burðaþekkingar hans á málefnunum
fram yfir meirihluta ráðsmanna, þá
mótast umræöa ráðsins algerlega af því
hvernig leikhússtjórinn fjallar um þau.
Ég sætti mig heldur ekki við hvernig
ýmsar tiUögur sem ráðið hefur sam-
þykkt hafa orðiö að engu vegna
lélegrar framkvæmdastjórnar.”
Þótt úrsögn Þórhalls Sigurðssonar úr
þjóðleikhúsráði berí upp á sama tima
og mjög er til umræðu svokallað
„hljóðnemamál” í leikhúsinu, leggur
hann á það áherslu, að það sé
ákvörðun sinni alveg óviðkomandi.
DB skoðar skattskrána:
RÁÐUNEYTISSTJÓRAR SKILA
FÚLGUM TIL HINS 0PINBERA
Jón L. Arnalds og Höskuldur Jóns-
son eru tveir skatthæstu ráðuneytis-
stjórar þessa lands tekjuárið 1979. Þeir
greiða báðir rúmlega sjö milljónir
gamalla króna í sjóði hins opinbera.
Ragnar Arnalds fjármálaráðherra,
bróðir Jóns og yfirmaður Höskuldar í
fjármálaráðuneytinu, kann sjálfsagt
vel að meta þær fúlgur sem ráðuneytis-
stjórarnir skUa aftur tU opinberra sjóða
í formi skatta og útsvara. Stjórunum
tólf var gert aö greiða samtais um
sjötfu mUljónir gkróna.
Ráðuneytisstjórar eru meö launa-
hæstu embættismönnum rfkisins eins
og meðfylgjandi tafla gefur tU kynna.
Auk ráðuneytisstjóralaunanna fá þeir
ýmsar aðrar greiðslur, þó mismiklar
eftir einstakUngum, fyrir aukastörf,
„bitUnga”, þvf þeir hafa jafnan verið
ofarlega á blaði þegar vantað hefur
góða og hæfa menn í nefndir og ráð á
vegum rlkisins.
-KMU.
Nöfn Baldur Möller dómsmálaráðuneyti tekjusk. 3.580.677 eignarsk. 68.999 útsvar 1.390.000 samtals 5.297.046
Birgir Thorlacius menntamálaráðuneyti 2.783.700 68.974 1.209.000 4.271.381
Brynj. Ingólfssen samgönguráðuneyti 4.290.258 37.378 1.465.000 6.072.911
Guðm. Benediktsson forsætisráðuneyti 3.505.259 256.604 1.475.000 5.516.488
Hallgrimur Dalberg félagsmálaráðuneyti 4.164.168 266.577 1.696.000 6.609.753
Hörður Helgason utanrikisráðuneyti 3.713.964 109.322 1.528.000 5.640.660
Höskuldur Jónsson fjármálaráðuneyti 5.201.075 232.376 1.752.000 7.170.347
Jón L. Arnalds sjávarútvegsráðuneyti 5.118.516 21.743 1.889.000 7.200.906
Páll Flygenring iðnaðarráðuneyti 3.879.511 66.769 1.487.000 5.709.181
Páll Sigurðsson heilbrigðis- og tryggingaráðuneyti 2.910.819 258.228 1.420.000 4.846.707
Sveinbjörn Dagfinnsson landbúnaðarráðuneyti 3.016.149 446.028 1.531.000 5.392.090
Þórhallur Ásgeirsson viðskiptaráðuneyti 2.760.636 197.992 1.273.000 4.472.607
Óiafur Gelr Hauksson.
Fórust í
umferðarslysi
Ungu mennirnir tveir, sem fórust f
Hafnarfirði sl. föstudag, er vélhjól
sem þeir voru á skall framan á jeppa
hétu Guðmundur St. Ingason,
fæddur 4. apríl 1959, til heimiUs að
Hliðargötu 23, Fáskrúðsfirði, og
Ólafur Geir Hauksson, fæddur 30.
september 1963, til heimUis að Álfa-
skeiði 82, f Hafnarfirði.
-ÓV. Guflmundur St. Ingason.