Dagblaðið - 22.06.1981, Síða 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ1981.
29
STRANDAMENN FÉLLU
í STAFl YFIR DÍSUNUM
—þeim Vigdísi forseta og Hjördísi sýslumanni
Fri Jónasl Haraldssyni, blaðamanni
DBI fylgd með forsetanum:
Blendnar tilfinningar bærðust i
brjóstum karla á sýslumörkum Dala-
og Strandasýslna í gærdag. Forseti
íslands, Vigdis Finnbogadóttir, kom þá
i opinbera heimsókn í Strandasýslu,
eftir vel heppnaða heimsókn í Dala-
sýslu. Allir vita, að forsetinn er kona en
sýslumaður Strandamanna er einnig
kona, Hjördís Hákonardóttir. Hún er
fyrsta og eina konan, sem er sýslu-
maður hér á landi. Karlanna vigi
falla þannig hvert af öðru og stendur
nú fátt eftir. Tími er nú raunar kominn
til myndi margur halda.
En þegar rætt er um blendnar tilfinn-
ingar karlrembunnar má ekki gleyma
því, aö í brjóstum þeirra blandast
einnig stolt vegna dísanna tveggja.
Vigdísar og Hjördísar. Þær eru
óneitanlega álitlegri en þeir embættis-
menn, sem við höfum átt að venjast.
Um atgervi þeirra þarf enginn að efast.
Eftir að sýslumaður og forseti höfðu
heilsazt á Laxárdalsheiði og kvatt Pétur
Þorsteinsson sýslumann Dalamanna,
var haldið til Hólmavíkur. Bilalestin
var orðin um klukkustund á eftir áætl-
un, þannig að heldur var slegið i fákana
til að komast á áfangastaö á tilsettum
tíma. Blaðamaður á bUaleigubii, sem
ekki er vanur raUakstri, fékk sína eld-
skim í þvUiku háttalagi norður
Strandir. Sjaldan sáust lægri tölur en
þriggja stafa á hraðamæUnum og
hnúarnir hvitnuðu á stýrinu. Lögreglu-
bUl fór fyrir og annar rak lestina. Var
þaö huggun harmi gegn. Það hefði að
minnsta kosti verið fljótlegt að gefa
skýrslu ef ökutækið hefði fært sig út af
þjóðveginum. Allt hafðist þetta þó
áfaUalaust.
Nokkur fróun var að sjá er blaða-
menn Morgunblaðsins stigu ekki siður
Kræsingarnar skorti ekki f Dalabúð, félagsheimili Dalamanna i Búðardal. Hér fá sér
sneiðar þau Vigdls forseti og Pétur sýslumaður.
Sltjöldur Stefánsson flytur forsetanum
frumorta drápu: Sagt er nú að sólir
tvær/séu bér I Dölum.
náfölir út úr sínum „rallbU”. Stranda-
ralliö fór sumsé vel fram og klukku-
tíma seinkun náðist upp á 105 km
kafia. Vel að verki verið þar.
Nánast allir Hólmvíkingar og
Strandamenn úr nærsveitum fögnuðu
forsetanum í Hólmavík. Böm veifuðu
islenzka fánanum við grunnskólann og
hátíðarblær var yfir öllu. Sólin lét
meira að segja sjá sig.
Vigdís opnaöi sýningu á málverkum
ísleifs heitins Konráðssonar og setti þar
meö menningarvöku Strandamanna
1981. Hjördis sýslumaður bauð forset-'
velkominn. Vigdís þakkaði og lýst.
gleði sinni að fá aö heimsækja sýsluna.
Siðan beið kaffi allra og svignuðu borð
undan hnallþómnum. Köku-
gerðarmenn í Strandasýslu fá „A” i
Hjördís Hákonardóttir sýslumaður Strandamanna býöur forsetann velkominn I sýsluna. Hægra megin á myndinni er eigin
maður sýslumanns, Eyjólfur K. Emilsson.
einkunn, ekki siður en kollegar þeirra í
Dalasýslu.
Sýning Þjóöleikhússins á ieikríti
Jökuls Jakobssonar, I ömggrí borg ",
rak endahnútinn á kvöldið. Leikið var
að Laugabóli í Bjarnarfirði. Forseti
gisti á heimili sýslumanns í nótt og hélt
af stað sjóleiðis til Grímseyjar á Stein-
grimsfirðiímorgun.
Vigdfs færði börnum I Búðardal þrjár trjáplöntur sem eiga að minna á varðveizlu
tungu og menningar þjóðarinnar.
Þegar Vigdis kom að Laugum færði
litll stúlka, Ásdis Kristjánsdóttir, henni
fallegan blómvönd.
Forseta heilsað á sýslumörkum Dala-
sýslu. Pétur sýslumaður Þorstelnsson
tekur á móti Vigdisl ásamt konu sinni,
Björgu Rikarðsdóttur.
TIMBUR
FRÁ KANADA HÖNNUÐ
FYRIR ÍSLENZKAR AÐSTÆÐUR
Einbýlis- og parhús út-
vegum við Jrá Kanada
með stuttum fyrirvara.
Leitið upplýsinga og
gerið verðsamanburð.
16 GERÐIR HÚSA
Eldhúsinnréttðngar,
allðr skápar oa ðnni- oa
útihurðð
SÖLUAÐILI:
HÚSAMIÐLUN
Símar 11614 og 11616
EiJ r