Dagblaðið - 05.10.1981, Page 5
5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
HAGSTÆTT VERD
Á SLÁTURAFURDUM
Gætíð vel að þvi að mörinn sé hvorkí of gróft en heldur ekki of fint skorinn.
Þarna verður að fara einhvern meðalveg, og engar reglur eru tíl um hve mikill mör
á að fara f sláturskammtínn. Okkur hefur reynzt alltof mikill mör fylgja með
slátrinu, en við viljum heldur ekki hafa það of feitt.
Slátur er nú yfirleitt afgreitt í sér-
stökum umbúðum og þá fimm slátur
saman. Þá þurfa viðskiptavinirnir
ekki að koma með ílát undir slátrið
eins og þarf ef slátrið er keypt ,,í
lausu” ef svo mætti að orði komast.
Hjá Sparimarkaði Sláturfélagsins að
Háaleitisbraut (Austurveri) kostar
kassi með 5 slátrum 210 kr. Sama
verð er hjá Afurðasölu SÍS. Auka-
vambir hjá Sparimarkaðinum kosta
5,70 kr. stk. en 6 kr. hjá SÍS, lifr-
arkílóið er á 38 kr. hjá SÍS og 40 kr.
hjá Sparimarkaðinum, aukasvið
kosta 20 kr. kg. hjá Sparimarkaðin-
um. Hjá SÍS voru aðeins til gömul
svið á 19,15 kr., en ný voru rétt
ókomin og áttu að kosta 20,80 kr.
(eru væntanlega komin þegar þetta
birtist).
Ýmsar verzlanir aðrar en þessar
,,sem hafa haft sláturafurðir á boð-
stólum ár eftir ár auglýsa slátursölu.
Við tókum eftir auglýsingu frá verzl-
uninni Hólagarði, sem auglýsir 5
slátur í kassa á 207 kr. Þar kostar ný
lifuraðeins31,50kr. kg. -A.Bj.
Nú er af sem áður var að fólk stæði norpandi f biðröð niðri á Skúlagötu eða inni á
Kirkjusandi eftír að fá afgreitt slátur f koppa og kirnur. Nú geta menn farið inn f
hlýlegar verzlanir og keypt sitt siátur f góðum umbúðum. Þessi mynd er tekin af
tveimur heiðurskonum, sem voru að ná sér f slátur á dögunum, f Spari-
markaðinum f Austurveri. ~ DB-mynd Einar Ólason.
Vinnuhagræðingað hafa keppina stóra
Ekki má fylla keppina nema að þrem fjórðu. Þegar búið er að fela upp f þá er
saumað fyrir. Þetta svarta sem er á diskinum til hægri á myndinni eru rúsinur.
Blóðmör og lifrarpylsa eru látin i
keppi sem búnir eru til úr vömbinni.
Nú til dags eru vambirnar hreinsaðar
þegar þær eru afhentar í slátursöl-
unni, en samt er gott að láta þær
strax í saltvatn um leið og komið er
heim og hreinsa þær ögn betur.
Athugið að það verður að snúa þeim
Það er óneitanlega dálftíð subbulegt að sauma fyrir. Ef nóg er af „aðstoðarfólki”
er gott að hafa nokkrar nálar f gangi og láta aðstoðarfólkið þræða fyrir sig.
Eins og sjá má eru keppirnir okkar engin smásmiði þegar búið er að fela upp f
þá. Til þess að spara vinnu saumum við þert yfir þá með ekki alltof grófum
saumsporum. Ef fyrir kemur að keppirnir verði einum of stórir fyrir okkar smekk,
saumum við tvisvar yfir. DB-myndir Hörður Vilhjálmsson.
við til þess að hreinsa á þeim slétta
borðið.
Úr hverri meðalvömb er hægt að fá
mismunandi marga keppi, allt eftir
því hve stórir keppirnir eru. Við í
„tilraunaeldhúsinu” erum fylgjandi
stórum keppum, sem við saumum
svo þvert yfir, eftir að búið er að fela
upp í þá. Það er vinnusparnaður að
stórum keppum. Við höfum fengið
svona um sex stóra keppi úr meðal-
stórri vömb. Eins og segir annars
staðar á þessari síðu notumvið maríu-
húfuna (sem er eins og köflóttur
keppur) alltaf undir lifrarpylsuna.
Langhentugast er að ætla sér tvo
daga til sláturgerðarinnar. Fyrri dag-
urinn fer þá í að ná í slátrið, þvo
vambirnar og sníða og sauma kepp-
ina. Um leið og búið er að sauma
keppina (munið eftir að skilja eftir
nægilega stórt op til að fela upp í, er
gott að láta keppina í kalt saltvatn og
geyma á köldum stað til næsta dags.
— Þá er vatnið látið leka vel af
keppunum áður en þeir eru fylltir af
blóðmör og lifrarpylsudeiginu. -A.Bj.
Hefðbundnar
uppskriftir
að blóðmör
og lifrarpylsu
Fyrir það sláturgerðarfólk sem vill
hafa hefðbundnar blóðmörs- og
lifrarpysluuppskriftir til þess að
styðjast við fara tvær slíkar hér á
eftir:
Blóðmör
11 blóð
2 dl vatn
11/2 msk. sait
300—400 gr haframjöl
400—500 gr rúgmjöl
um 500 gr mör
12—15 vambakeppir
Lifrarpylsa
1 kg lifur og nýru (um 2 lifrar og 4
nýru)
1—11/2 msk. salt
5—6 dl mjólk
5—6 dl mjólk, undanrenna eða kjöt-
soð
100—200 gr haframjöl (og hveiti)
400—500 gr heilhveiti og/eða
rúgmjöl
600 gr brytjaður mör
10—12 vambakeppir
/
Uppskrift
dagsins