Dagblaðið - 05.10.1981, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 05.10.1981, Blaðsíða 21
21 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981. Iþróttir Fram byrjar vel — unnu ÍS 92-80 í úrvalsdeildinni Nýliflarnir I úrvalsdeildinni i körfu- knattleik, nýbakaðir Reykjavikur- meistarar Fram, sigruðu ÍS i fyrstu um- ferð deildarinnar i gærkvöldi með 92 stigum gegn 80. Hið efnilega lið Fram hafði undirtökin allan timann og kraft- mikill fyrri hluti síðari háifleiks hjá Stúdentum kom ekki i veg fyrir sigur þeirra. Fram skoraði tvær fyrstu körfurnar í leiknum og þar með var tónninn gef- inn. Stúdentum tókst að jafna 14—14, eina skiptið í leiknum sem Fram hafði ekki yfir. Símon Ólafsson var mjög at- kvæðamikill og skoraði 12 af fyrstu 16 stigum Fram. Val Brazy gekk illa að stilla kanónuna en þegar það tókst eftir 8 mínútur fóru Framarar að síga fram úr og komust mest 16 stig yfir, 40—24. í hálfleik var staðan 44—31. Stúdentar komu tvíefldir til leiks eftir hlé og ætluðu ekki að láta stigin af hendi átakalaust. Þeir söxuðu jafnt og þétt á fcrskotið, minnkuðu muninn í 64—63 og náðu síðan knettinum. En þeim tókst ekki að komast yfir. Þor- Vestur-þýzki handboltinn Úrslit í vestur-þýzka handknatt- leiknum um helgina: Gummersbach-Kiel 23—17 Leverkusen-Essen 17—24 Grosswaldstadt-Niirnberg 25—17 Hofweier-Hiittenberg 30—20 Nettelstedt-Berlin 20—18 Dietzenbach-Göppingen 25—14 -VS. Ösku Shankleys dreift á Anfield Ösku Bill Shankley, fyrrum fram- kvæmdastjóra Liverpool, var dreift yfir leikvöll félagsins, Anfield, eftir út- för hans i Liverpool á föstudag. Þús- undir frægra knattspyrnumanna, fram- kvæmdastjóra og aðdáenda voru við- staddir þegar kista Shankleys var borin um götur Liverpool og létu ekki rign- ingu á sig fá. Um 300 komust inn i St. Mary Parish kirkjuna og þar báru kist- una sex af beztu leikmönnum Liver- pool-liðsins frá dögum Shankley, 1959 til 1974; Ron Yeats, Ian St. John, Kevin Keegan, John Toshack, Emlyn Hughes og Ray Clemence. Bill Shank- ley lézt sl. þriðjudag, 67 ára að aldri. valdur Geirsson kom Fram í 66—63,. Gunnar Thors svaraði 66—65, Þor- valdur kvittaði fyrir og eftir það hleyptu Framarar Stúdentum ekki í námunda við sig á ný. Dennis McGuire, sem var búinn að skora grimmt fyrir ÍS, yfirgaf leikvöllinn með 5 villur og þar með var draumurinn búinn. Fram komst í 88— 74 og sigraði eins og áður sagði 92—80. Fram fer því vel af stað eftir dvölina í 1. deild. Þeir gætu komið til með að berjast um efstu sædn, helzt að tauga- slappleiki gæti orðið þeim dýrkeyptur. Mikil samstaða virðist hins vegar vera innan liðsins og verður fróðlegt að fylgjast með því í vetur. Stúdentar voru afar daprir í fyrri hálfleik, hittnin í lág- marki og allt stefndi í stórtap. Barátta eins og sú sem liðið sýndi lengst af í seinni hálfleiknum þyrfti að geta enzt heilan leik. Takist það ekki bíður erfið fallbarátta. Símon var sterkastur hjá Fram. Brazy hitti illa en átti mikið af fallegum sendingum. Dennis McGuire skoraði nær helming stiga ÍS og lék vel, flestum öðrum voru mislagðar hendur. Stig Fram: Símon Ólafsson 30, Val Brazy 22, Þorvaldur Geirsson 14, Björn Magnússon 8, Þórir Einarsson 6, Björn Jónsson, Hörður Arnarsson og Ómar Þráinsson 4 hver. Stig ÍS: Dennis McGuire 35, Bjarni Gunnar 13, Gísli .Gíslason 12, Árni Guðmundsson 10, Gunnar Thors 8 og Ingi Stefánsson 2. Bræðurnir Gunnar og Sigurður Val- geirssynir dæmdu þokkalega. -VS. Fyrsti sigur hjá Reyni Handknattleikur, 3. deild, Reynir—Selfoss, 20—17 (12—8). Reynismenn, sem hófu handknatt- leikskeppni i fyrra, unnu sinn fyrsta sigur í þeirri iþrótt á laugardaginn, með því að leggja Selfyssinga að velli, með 20 mörkum gegn 17 eftir að hafa verið yfir 1 hléi, 12—8. Guðmundur Árni Stefánsson, þjálf- ari Reynis og fyrrum FH-ingur, skor- aði flest mörk heimamanna 7 talsins, en spilað var í Sandgerði. Annars virðist liðið öllu sterkara en í fyrra enda búið að fá eldskírnina á fyrsta árinu. En Reynismenn eru staðráðnir i að standa sig vel, þótt róðurinn verði kannski þungur, í tvennum skilningi, í leikjunum og í fjáröfluninni til hand- knattleiksdeildarinnar. Leikmennirnir beita línu sem „kapteinn” liðsins, Grétar Mar skipstjóri, rær með ásamt tilfallandi leikmönnum en handknatt- leiksdeildin fær aflaverðmætið. Segi menn svo að eldlegur áhugi fyrir íþrótt- um sé ekki lengur fyrir hendi á Íslandi. -emm. „SJALDAN VERIÐ SAMSTILLTARI” —segir Gunnar Þorvarðarson eftir sigur Njarðvíkur á Val Körf uknattleikur, úrvalsdeild, UMFIM—Valur, 83-74 (46-30) íslandsmeistarar UMFN sigruðu bik- armeistara Vals I fyrsta leik úrvals- deildarinnar á komandi leiktimabili, með 83 stigum gegn 74. Leikurinn fór fram i Njarðvík og var sigur heima- manna mjög sannfærandi svo að sýnt er að þeir munu ekki eftirláta öðrum ís- landsmeistaratitilinn bardagalaust. „Þeir voru einfaldlega betri en við að þessu sinni,” sagði Einar Matthíasson liðsstjóri Val,” en lið okkar á eftir að styrkjast þegar Ramsey, Ameríkan- inn, fer að falla inn í liðið. Hann er aöeins búinn að æfa með okkur í eina viku og lofar góðu. Við náum áreiðan- lega stigum af Njarðvíkingum í þeim þremur leikjum sem eftir eru við þá.” „Við höfum sjaldan verið samstillt- ari í upphafi móts,” sagði Gunnar Þor- varðarson, sá langreyndi leikmaður og burðarás UMFN-liðsins, „spilinu var dreift meira en oft áður og flétturnar gengu oftast vel upp þótt hittnin hefði kannski mátt vera meiri. Mér sýnist, að yngri mennirnir ædi að fylla skörðin eftir þá Þorstein Bjarnason sem gekk í ÍBK og Guðstein Ingimarsson sem er hætturíbili.” Að venju skoraði Danny Shouse flest stigin fyrir UMFN, eða 37. Hann byrj- aði ekki vel, hittí illa en spilaði félaga sína því meira upp. Karl tók brátt við sér og sýndi allar sínar beztu hliðar, eins og svarta smaragðnum sæmdi. Gunnar Þorvarðarson er enn að bæta sig sem körfuknattleiksmaður og er hinn mesti máttarstólpi fyrir UMFN, snjall spilari og hittínn. Jón Viðar og Valur Ingimundarson lofa mjög góðu og greinilegar framfarir hjá þeim. Bandarikjamaðurinn Ramsey var nokkuð drjúgur, sterkur í fráköstum og glúrin skytta, en er að þvi er sýnist ekki kominn i nægilega æfingu. Kristján Ágústsson og Torfi Magnús- son voru einna líflegastír af Valsmönn- unum, sem léku yfirvegað og gættu þess að láta Njarðvíkinga ekki sprengja sig á hraðanum. Valsmenn voru öllu fundvísari á körfuna fyrstu mínútuma, komust í 8—4 en þá tóku heimamenn fjörkipp og staðan var allt í einu orðin 18—13. Síðan juku Njarðvíkingar bilið jafnt og þétt fram að hléi, 45—15, en slökuðu á í seinni hálfleik án þess þó að sigurinn væri nokkurn tíma í hættu. Dómarar voru þeir Jón Otti og Sig- urður Valur og dæmdu prýðilega! • -emm. Góð reynsla af Sparkrite rafeindakveikjubúnaði Sparkrite, rafeindakveikjubún- aðurinn hefur á skömmum tíma náð festu á íslenskum bílamark- aði. Samdóma álit notenda er m.a.; örugg gangsetning, jafnari gang- ur, minni bensínnotkun, aukinn kraftur. Við spurðum bræðuma Jón og Ómar um þeirra reynslu af Sparkrite: „Við fengum góða prófun á Sparkrite SX 2000 rafeindabún- aðinum í hinu erfiða Ljómarallý. Það reyndist okkur frábærlega vel. Mjög örugg gangsetning bíls- ins, frábær neisti og aukinn kraftur. Við mælum hiklaust með Spark- rite.“ Útsölustaðir eru: Bílanaust Síðumúla 7-9 R. Citroén viðgerðir Súðarvogi 54 R. Vélsmiðjan Þór Isafirði. Höldur s.f. Fjölnisgötu 1 Akur- eyri. Vélaverkstæðið Foss Húsavík. Kaupfélag Ámesinga Selfossi. Bifreiðaverkstæðið Berg Kefla- vík. Kaupfélag Borgfirðinga, Borgar- nesi. Bílaverkstæði Guðjóns, Patreks- firði. Vélsmiðjan Sindri, Ólafsvík. Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðár- króki. Bifreiðaverkstæði Dalvíkur. Verslunin Kjami, Vestmannaeyj- um. Kaupfélag Skaftfellinga, Vík í Mýrdal. Bifreiðaverkstæðið Múlatindur, Ólafsfirði. iBIAÐIÐ ER SMÁ AUGLÝSINGABLAÐIÐ o í Brdr. Hansen Strandskadevej 14 \ferktojsmaskiner Denmark Komu til Reykjavíkur í dag. Búa á Hótel Loftleiðum alla næstu viku. Höfum fastan viðtalstíma milli kl. 4 og 7 alla dagana. Svarað verður á íslenzku ef óskað er. Heimsækjum fyrirtæki eftir nánara samkomulagi. Að vanda eru á boðstólum notaðar og nýjar járnsmíðavélar á ævin- týralega hagstæðu verði, svo sem: # RENNIBEKKIR # FRÆSIVÉLAR # SAGIR # SðX # BEYGJUVÉLAR # KANTPRESSUR 0.FL.0.FL í 'O tfí O í Brdr. Hansen \feridojsmaskiner Denmark Strandskadevej 14 Dk 2650 Hvidovre Vélalagerinn, Smiðjuvegi 54, símar 77740 og 73880, veitir nánari upplýsingar um heimsóknina.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.