Dagblaðið - 05.10.1981, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
Æskan
ÆSKAN arS6 siöur
Nýir 6skrífendur fé einn
eldri órgang í kaupbœti.
Það borgar sig aö gerast
áskrrfandi. AfgrekJsla
Laugavegi 56, sími 17336.
K. Jónsson
& Co. h.f.
—H^l
Höfum til afgreiðslu nú
þegar nokkra uppgerða
STILL lyftara.
Rafmagnslyftara:
1.5 t, 2 t, 2,5 t m/snún-
ingi.
Dísillyftara:
2.5 t, 3,5 t, 4 t, 7 t og 15
tonn.
Greiðslukjör.
Upplýsingar á skrifstofunni,
Hverfisgötu 72. Sími 12452
og 26455.
Verðtrygging sparifjár skapar bönkunum stóraukna möguleika:
300þúsund króna
Iántil40ára?
—gegnlOOO
krónamánaðar
greiðslu
Björn Amórsson, hagfræðingur BSRB:
„Okkar fólk er að sligast
undan húsbyggingarlánunum”
— BSRB hefur um þrjár leiðir að velja til úrbóta
„Formannaráðstefna BSRB sem
fjallaði um launamál og kröfugerð
samtakanna m.a. í þeim efnum
keppir að þeim úrbótum í hús-
næðismálum, sem m.a. feli i sér að
allt launafólk fái lán til lengri tíma,”
sagði Björn Arnórsson, hag-
fræðingur BSRB.
Hann kvað formannaráðstefnuna
ekki hafa rætt nema útlínur þessa
máls sem og annarra, því niöurstöður
formannaráðstefnunnar verða rædd-
ar í félögunum og þar fyllt í
eyðurnar. Þegar því er lokið fer
stjórnin i mikla fundarherferð um
landið, þar sem þetta mál og aðrar
kröfur verða endanlega ræddar.
„En það er ljóst að formanna-
ráðstefnan er með þessu orðalagi í
drögum að kröfugerð BSRB að
leggja áherzlu á, að okkar fólk er að
sligast undan húsnæðislánunum,”
sagði Björn.
„Spurningin er ekki beinlinis
hvort menn eru með eða á móti
verðtryggingu, en staðreynd er að
verðtryggingin hvolfist yfir fólk, sem
hóf húsbyggingu sína með því að
reikna með að fá hluta af verðbólgu-
gróðanum. Svona skyndileg
verðtrygging eykur á erfiðleika þessa
fólks. Og ég reikna með að BSRB
reyni að mæta þessum erfiðleikum
fólks með lánum til lengri tíma, með
kröfu um miklar launahækkanir eða
með félagslegum byggingum,” sagði
Björn Arnórsson.
-A.St.
AIU
STEINARSSONI
Björn Arnórsson: Verðtrygglngin
hvolfist yfir fólk sem reiknaði með að
fá hluta af verðbólgugróðanum.
Nýbyggingar i Reykjavik: er hægt að koma ó kerfi sem auðveldar mönnum mjög að koma sér þaki yfir höfuðið —
sem talið hefur verið einhverskonar nauðsyn á íslandi? DB-mynd: Bj. Bj.
Fram hefur komið í skrifum DB
að undanförnu að verðtrygging
sparifjár hafi „fyllt” alla banka af
peningum og síðar Seðlabankann
eftir aukna bindingu hans á sparifé.
Fram hefur komið að þessi bætta
fjármálastaða gætí leitt til þess að
unnt sé að skapa verulega auðveldari
leiðir til íbúðabygginga en þekkst
hafa hér a.m.k. síðustu ára-
tugina. Lúðvík Gizurarson hrl. setti
fram hugmynd um, að væru t.d.
lánaðar 300 þúsund króna til
íbúðarbyggingar, mætti greiða það
lán, ásamt vöxtum og verðtryggingu,
á 40 árum með einungis 1000 krónu
greiðslu á mánuði hverjum, eða
upphæð sem allir réðu við. Lána
mættí á sama hátt 750 þúsund
krónur til ibúðarbyggingar með 2500
kr. afborgun og vaxtagreiðslum á
mánuði.
Við ræddum þessa bættu lausa-
fjárstöðu og nýja möguleika við
nokkra valinkunna menn. Svör
þeirra fara hér á eftir. -A.St.
Sigurður Guðmundsson, forstjóri Húsnæðismálastof nunar:
„LANGTÍMALÁN VIÐSKIPTA-
BANKANNA ÆSKILEG HÉR
„Ég þekki ekki nægilega vel,
hvaða fjármagni einstakir bankar
ráða yfir. Það er hins vegar klárt að
það er æskilegt takmark, að lands-
menn gætu átt kost á samskonar
langtímalánum og Norðurlandabúar
eiga i viðskiptabönkum sínum og
sparisjóðum,” sagði Sigurður
Guðmundsson, forstjóri Húsnæðis-
málastofnunar ríkisins.
„Þar eiga menn kost á banka-
lánum með veðtryggingu í fast-
eigninni auk ríkislánsins,” sagði
Sigurður.
Hann kvað ástandið í verðrýrnun
sparifjár hér á landi hafa gert það að
verkum að bankar og sparisjóðir hér
gátu ekki staðið við sinn hluta
lánsins, en rikið hefði nokkurn
veginn haldið sínum hlut með lánum,
sem nema um 30% af
byggingarkostnaði. Stefnan hér fyrir
styrjaldarárin var sú sama hérlendis
og á hinum Norðurlöndunum.
Bankar og sparisjóðir ytra hefðu
allan timann lánað fólki i hús-
byggingum langtímalán gegn fast-
eignaveði.
Sigurður sagði að lengstu lán
Húsnæðisstofnunar ríkisins nú væru
til 42 ára. Afborganir og vaxta-
greiðslur af þeim ættu sér stað
fjórum sinnum á ári, en stefnt væri
að því að það yrði oftar og
innheimtan væri eins og sima-
reikningar.
„Mín skoðun er sú,” sagði
Sigurður Guðmundsson, „að ríkið
eigi ekki að lána 80—90%
byggingarkostnaðar af hverju húsi.
Ríkishlutinn er kannski hæfilegur
svona þriðjungur af byggingar-
kostnaði, en síðan komi 50% hans
— eins og þau
tíðkuðustfyrir
stríð og eins og
þau tíðkast í
öðrum löndum”
frá viðskiptabönkunum. En tíl þess
að svo geti orðið hér verður að ríkja
jafnvægi i peningamálunum og full
verðtrygging.
Sigurður taldi loks að með auknu
sparifé opnuðust þýðingarmiklir
möguleikar í viðgerðar- og endur-
bótalánaflokkum. Fyrir slik lán væri
mikil þörf. Þeir sem byggðu hér á
landi á árunum 1940—1960, hafa nú
flestir lokið lánagreiðslum við hús
sín. En nú þurfa þessi hús endurbóta
við og tíl þeirra er mikil þörf að
lána. -A.St.
LÖGGUR ÚR ÖLLUM
ÁTTUM0G
STRIPLH) STÖÐVAÐ
Tvö ungmenni fundu hjá sér hvöt til
að fækka fötum og stíga nokkur dans-
spor í leiðinni, eftir hádegiö á laugar-
dag. Varð húsagarður við Eiríksgötu
fyrir valinu. Ekki mun nágrönnunum
allskostar hafa líkað þetta uppátæki
fólksins og höfðu samband við lög-
reglu. Dreif þegar að tvo lögreglubíla
og eitt lögreglumótorhjól, enda hreint
ekki á hverjum degi sem boðið er upp á
stripl. Voru ungmennin færð til yfir-
heyrslu en um það bil er hersingin var
að leggja af stað bar þar að þriðja lög-
reglubílinn. Greinilegt að margir
hugðu gott til glóðarinnar.
-SSv./DB-mynd S.