Dagblaðið - 05.10.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
Erlent
Erlent
S
Erlent
Erlent
Frakklandsforseti, Francois Mitterrand, kveður hér Willy Brandt, fyrrum kansl-
ara Vestur-Þýzkalands, á tröppum Elysée hallar, að loknum hádegisverði sem for-
setinn hélt stjóm Alþjóðasambands sósfalista. Stjórn Aiþjóðasambandsins, sem
er undir forsæti Brandts, hélt fund I Parfs I siðustu viku þar sem hún lýsti m.a. yfir
stuðningi við vinstri andstöðuöfl i El Salvador.
Bílbeltin
hafa bjargað
yUMFERÐAR
RÁÐ
ESKIFJÖRÐUR
Blaðburðarfólk óskast strax á Eskifirði. Uppl.
gefur umboðsmaður í síma 97-6331.
MáÉBIAÐW
EGILSSTAÐIR
Blaðburðarfólk óskast strax í Fellabæ. Uppl. hjá
umboðsmanni í síma 97-1350.
iBIAÐW
Rakarastofan Klapparstíg
Sími 12725
Hárgreiðslustofa Klapparstíg
Tímapantanir
13010
VANTA5,r. FRAMRUÐU?
fTT
Ath. hvort við getum aðstoðað.
ísetningar á staðnum.
BÍLRÚÐAN SSLnm
YRTISTOFA
GRÍMSBÆ
SÍMI31262
Dömur og herrar!
Heilsubót í skammdeginu.
Éinnig: Super-sun sólarlampinn í fullum gangi.
Andlitsböð — húðhreinsun — nudd —
maski — handsnyrting — litanir —
vaxmeðferð.
Kynningarafsláttur:
Þessa viku gefum við 10% kynningarafslátt af andlits-
böðum. Aukið vöruúrval. — Opið á laugardögum.
ÁRSÓL, Grímsbæ, sími 31262
Sadat Egyptalandsforseti ásakar Lýbíumenn um að:
UNDIRBUAINN-
RÁS í SÚDAN
Anwar Sadat Egyptalandsforseti
ásakaði í gær Muammar Gaddafi,
leiðtoga Líbíumanna, um að standa
að undirbúningi innrásar í Súdan
með aðstoð Sovétríkjanna. I viðt^li
við egypzka vikublaðið Mayo, sagði
Sadat, að Egyptar og Súdanir stæðu í
stöðugum viðræðum til að koma í
veg fyrir þessi áform Líbýumanna.
Sadat sendi varaforseta sinn,
Hosni Murarak, á fund Reagans
Bandaríkjaforseta sl. föstudag, með
beiðni um að Bandaríkin létu Súdön-
um í té vopn til að verjast þessari
sovézk-líbýsku íhlutun. Sagði Sadat
að Gaddafi væri aðeins leppur Sovét-
stjórnarinnar, í viðleitni hennar til að
ryðja úr vegi ríkisstjórnum sem henni
væru andstæðar.
f viðtalinu sagði Sadat einnig, að
Anwar Sadat.
egypzkar könnunarflugvélar hefðu
komið í veg fyrir innrásartilraun
Gaddafis í Súdan. Hafi líbýskur her,
ásamt súdönskum stjórnarand-
stæðingum, verið á leiðinni til Khart-
oum, höfuðborgar Súdan, er hans
varð vart og hafi hann þá snúið til
baka til Líbýu. Sadat greindi ekki frá
hvenær þetta átti sér stað.
Jón L Arnason skrífar um heimsmeistaraeinvígið f skák:
ÁSKORANDINN GAFST
UPP EFTIR 57 LQKI
_ m . ■ ■ r ■ f , r , i rm
Heimsmeistarinn í skák, Anatoly
Karpov, lét áskorandann, Viktor
Kortsnoj, ekki slá sig út af laginu í 2.
skákinni, með óvenjulegu byrjunar-
vali sínu, Berlínarvörninni í spænska
leiknum. Kortsnoj hefur sjaldan eða
aldrei áður beitt þessu forna afbrigði
á sínum skákferli, svo varla hefur
það verið til umræðu á meðan á und-
irbúningi Karpovs fyrir einvígið stóð.
Engu að síður kom Kortsnoj ekki að
tómum kofunum. Karpov náði betri
stöðu út úr byrjuninni og jók yfir-
burði sína jafnt og þétt með óaðfinn-
anlegri taflmennsku. Flestir voru þó
á því að áskorandinn myndi veita
kröftuga mótspyrnu, en slíku var
ekki að heilsa. í 34. leik lék hann
gróflega af sér peði og er skákin fór í
bið var hann ekki öfundsverður af
stöðu sinni.
Skákáhugamenn hvarvetna í heim-
inum velta nú vöngum yfir slakri
frammistöðu Kortsnoj í tveim fyrstu
skákum einvígisins. Margir vilja
halda því fram að mistök hans eigi
sér ekki skáklegar orsakir. Að sögn
blaðafulltrúa Kortsnoj, Sztein, og
lögfræðings hans, Brodbeck, komst
áskorandinn i mikið uppnám við að
heyra nýjustu fréttir af Igor, syni
sinum, sem nú afplánar fangelsisdóm
í vinnubúðum i Síberiu. Bela Korts-
noj tjáði eiginmanni sínum i símtali,
að Igor hafi þurft að sæta slíkum
barsmiðum í fangeisinu, að hún hafi
ekki þekkt hann aftur er hún heim-
sótti hann nýlega. Slíkar fregnir,' ef
sannar eru, gera lítið úr afrekum
Karpovs við skákborðið.
HVÍTT: Anatoly Karpov
SVART: Viktor Kortsnoj
SPÆNSKI LEIKURINN
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. BbS Rf6
Þessi leikur hefur áreiðanlega
komið Karpov á óvart, þótt ekki
sjáist það á taflmennsku hans í skák-
inni. Kortsnoj beitir Berlínarvörninni
svokölluðu, líklega í fyrsta skipti á
ævinni. Hins vegar notaði eftirlætis-
skákmaður hans, Emauel Lasker,
vörnina mikið á sínum tíma.
4. 0-0 Rxe4 R. d4 Be7 6. De2 Rd6 7.
Bxc6 bxc6 8. dxe5 Rb7 9. Rc3 0-0 10.
Hel Rc5 11. Be3!
Allt frá 10. einvígisskák Tarrasch
og Lasker 1908 hefur aðalafbrigðið
verið 11. Rd4 Re6 12. Be3 Rxd4 13.
Bxd4 c5! (Rio afbrigðið af Berlínar-
vörninni í spænska leiknum, sem
dregur nafn sitt af upphafsmannin-
um Dr. Caldas Viana í Rio de
Janeiro) 14. Be3 d5 15. exd6 Bxd6 16.
Re4 Bb7 17. Rxd6 cxd6 og hvítur er
talinn hafa liðlegra tafl. Hins vegar
verða yfirburðir hans aðeins greindir
í smásjá, enda hafa síðari tíma skákir
sýnt að svartur á auðvelt með að
jafna. Þannig tefldu m.a. Jóhann
Hjartarson og Marjanovic á
ólympíumótinu á Möltu, ef ég man
rétt.
11. —Re6 12. Hadl d5 13. exd6 cxd6
14. Rd4 Bd7
Eftir 14. — Rxd4 15. Bxd4 Be6 16.
Hd3! vofa ýmsar óþægilegar hótanir
yfir kóngsvængnum.
15. Rf5 d5 16. Rxe7+ Dxe7 17. Dd2
Fram að þessu gafa keppendur
fylgt skák Shamkovic og Lein frá
Tbilisi 1969 en hér breytir Karpov út
af. Ekki vel liðið að taka landflótta
Sovétmenn sér til fyrirmyndar.
Shamkovic lék 17. Ra4 og náði einnig
betri stöðu.
r Skák L V. — j
y 7" JÓN L. ^ÁRNASON »• 1
17.— Dh418. Re2 Hfe8 19. b3 He7
Áætlun Kortsnoj minnir mjög á
áætlun hans 1 1. skákinni. Hann
virðist hafa tekið miklu ástfóstri við
klunnalegar tilfæringar.
20. Rg3 Df6 21. f3 Be8 22. Re2 h6 23.
Bf2 Dgó 24. Rcll
Stórmeistaraleikur! Á d3 stendur
riddárinn eins og bezt verður á
kosið. Ljóst er að Karpov er að ná
yfirhöndinni, en þó er engin ástæða
fyrir svartan að örvænta, eins og
Kortsnoj virðistgera.
24. —d47!
Nú opnast hvítum sóknarmögu-
leikar eftir 5. reitaröðinni. Kortsnoj
vonast til þess að styrkja stöðuna
með — c5, en til þess fær hann ekki
frið.
25. Rd3 Df6 26. Bg3 Hd7 27. He5
Dd8 28. Hdel Hd5
Hótunin var 29. Rc5 o.s.frv.
29. Hxd5 Dxd5 30. He5 Dd7 31. Del
Hc8 32. b4! Dd8 33. Ha5 Dd7 34. h3
Sífellt hugar Karpov að peða-
stöðunni. Hann hefur töglin og
hagldirnar, en ef allt væri með felldu
myndi Kortsnoj veita harðvítugt við-
nám.
a b c d e, f g h
34. — f677 35. Hxa7!
Auðvitað! Afleikirnir gerast ekki
verri. Ef 35. —Dxa7, þá 36. Dxe6 +
ásamt 37. Dxc8 og hvítyur vinnur
mann.
35. —Dd5 36. Ha5 Dd7 37. Ha7 Dd5
38. Ha5 Dd7
Karpov fer sér í engu óðslega,
hyggst koma skákinni í bið og finna
vinningsleiðina yfír kaffibolla. Sama
staðan hefur ekki komið upp þrisvar,
því svartur átti peð á a7.
39. De4 BH 40. Df5 He8 41. Kh2
Db7
Karpov lék biðleik. ,,í mínu
heimalandi átt þú alltaf betri stöðu ef
þú ert peði yfir,” —• sagði argentinski
stórmeistarinn Miguel Najdorf.
Karpov nýtti vel yfirburði sína,
þegar tekið var til við biðskákina í
gær. Lokin þarfnast ekki skýringa.
42. a3 — Hd8 43. h4 — h5 44. Rf2 —
Dd7 45. Ha6 — De8 46. Da5 — Bg6
47. Rd3 — Kh7 48. Db6 — Hc8 49.
a4 — Bf5 50. a5 — c5 51. bxc5 —
Bxd3 52. cxd3 — Rxc5 53. Ha7 —
Dg6 54. Hc7 — Hxc7 55. Bxc7 —
Rxd3 56. Dxd4 — Re5 57. Bxe5 og
hér gafst Kortsnoj upp.