Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 05.10.1981, Qupperneq 15

Dagblaðið - 05.10.1981, Qupperneq 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981. 15 NU LANGAR MARGA TIL SOLARLANDA —því er vinningur vikunnar ferð til Flórída með Útsýn f kuldatíð, eins og verið hefur ríkjandi á íslandi undanfarna daga, hugsa án efa magir til sólarstranda. Það gerum við á Dagblaðinu líka og því ætlum við í þessari viku að bjóða upp á sólarlandaferð í vinning í áskrifenda- leiknum. Einhver áskrifandi Dagblaðsins fær kost á að vinna sér ferð tU St. Peters- borg Beach á Flórída með ferðaskrif- stofunni Útsýn með því einu að svara hinum einföldu spurningum sem birtast munu á baksíðu blaðsins einhvern tímann í vikunni. Verðmæti vinningsins er 8.500 krónur. Flórída er vinsæll ferðamanna- staður á veturna. Þangað streyma íbúar norðar á jarðarkringlunni, úr kuldanum í ylinn. Til marks um hitann má geta þess að hann er jafnan 25—28 gráður á Celsius í októbermánuði. St. Petersborg Beach er, eins og nafnið gefur til kynna, strandbær St. Petersborgar. Bærinn stendur á kóralrifi og er unaðsreitur fyrir þá sem njóta þess að flatmaga á sólarströnd og sleikja sólskinið. Fjölbreytt skemmtanalíf er á Flórída. Fyrir utan næturklúbba eru þar magnaðir skemmtigarðar og ber þar hæst Disney World en til að sjá allt sem þar er þarf helzt tvo daga. Þá eru sædýrasöfnin víðfræg, en þar eru höfrungrar og önnur stór sæspendýr látin leika listir sinar. Fyrir þá sem áhuga hafa á tækni og vísindum er rétt að minna á Kennedy-höfðann, þaðan sem geimflaugum Bandaríkjamanna er skotið á loft. Sælkerar ættu að njóta sín vel á Fiórída. Þeir geta valið um allt frá færibandahamborgarastöðum til fínustu steikhúsa og verðið kemur á óvart. Lesandi góður! Sértu áskrifandi áttu möguleika. Kannski verður þitt nafn dregið út og birt innan um smá- auglýsingarnar i vikunni. Einhver kunningjanna sér það kannski á undan þér og lætur þig þá vita. Ertu þá viss um að þú getir svarað rétt? -KMU. Dularf ullur maður svarar auglýsingum þar sem óskað er eftir leiguíbúðum: Býður fólki ákveðna íbúð sem hann er ekki eigandi að „Stúlka sem er hér hjá mér auglýsti eftir íbúð í Dagblaðinu á fimmtudag. Hún er frá Stykkishólmi og auglýsti eftir tveggja herbergja íbúð. Nokkrir hringdu en hag- stæðasta boðið kom frá manni sem sagðist heita Jón Björnsson,” sagði Elsa Magnúsdóttir sem sagði frá heldur leiðinlegri upphringingu vegna smáauglýsingar. „Þessi maður var mjög málglaður. Hann sagðist hafa íbúð í Bólstaðahlíð 3 og sagðist ætla að leigja hana á 1500 krónur á mánuði. Þessi leiga var mjög sanngjörn miðað við annað sem við höfum heyrt og ég spurði manninn hvað mikið væri þá í fyrirframgreiðslu. Maðurinn sagðist þá vera í námi erlendis og vildi ekkert fyrirfram. Móðir hans sem hann sagði búa við Flókagötu myndi taka á móti greiðslunni. Þá fór maðurinn að tala um slæma reynslu sína af leigjendum. Hann hefði þurft að láta lögreglu bera fyrri leigjendur út eftir að hann kom að ibúðinni sem flaki. Móðir hans hefði t.d. risíbúð lausa sem hún vildi ekki leigja og síðan tók hann nokkur dæmi um lausar íbúðir í bænum. Þessi maður sagðist hafa farið til Leigjendasamtakanna en þar hefði hann fengið 30 til 40 manns á móti sér og allt hippa,” sagði Elsa ennfremur. „Síðan bauð hann stúlk- unni að koma og skoða íbúðina sem hún gerði. Þar komu til dyra hjón, sem bjuggu í íbúðinni og sögðust hafa orðið fyrir átroðningi allan daginn, þannig að maðurinn virðist hafa hringt í fleiri aðila en okkur. Ég vildi segja frá þessu því okkur finnst þetta mjög gróft, og þegar ég hugsa um það svona eftirá, þá var þessi maður dálítið undarlegur. -ELA. Hélt fyrst að Dagblaðið væri með eitthvert grín — segir Sólveig Jóhannsdóttir sem f ékk f jölda vonsvikinna auglýsenda til sín „Já, hingað kom fjöldinn allur af fólki í gær. Margir voru auðvitað vonsviknir að hafa verið plataðir og ég vorkenni blessuðu fólkinu, sér- staklega ungri konu sem var að því komin að eiga barn,” sagði Sólveig Jóhannsdóttir ibúi að Bólstaðarhlið 3 en hún tók á móti þeim sem maðurinn hafði vísað heim til hennar. „Það sem mér finnst furðulegast í þessu er það, að þessi maður sem hringdi í fólkið, hefur kynnt sig með nafni eiginmanns míns, Jóns Björns- sonar. Þessi maður hafði líka vitað nákvæmlega um allt í húsinu, því fólkið sem kom, sagði að hann hefði sagt hve margir byggju í hverri íbúð. Þá var lika einkennilegt, að fólkið vissi um dánabú hér á annarri hæðinni, íbúð sem er verið að laga og breyta. Það vissi bókstaflega allt um alla í þessu húsi og það var komið frá þessummanni. Nei, ég get ekki ímyndað mér hver hérna hefur verið að verki. Við höfum nú verið að velta þessu fyrir okkur en ég held að þetta geti ekki verið neitt persónulegt. Við hjónin eigum nú ekki nema nokkra kunningja og ekki eru það þeir,” sagði Sólveig ennfremur. „Ég vissi ekki hvernig ég átti að bregðast við þessu í fyrstu, ég hélt að Dagblaðið væri með eitthvert grín í gangi, svona eins og hefur stundum verið í sjónvarpinu. Ég hringdi því til ykkar en var sagt að svo væri ekki,” sagði Sólveig Jóhannsdóttir. -ELA. Frá Disney World, hinum óvenjulega skemmtigarði á Flóridaskaga. Sama Ijósmagn moð fnrri vöttum Venjulegar perur 40 60 75 100 Superbalux 251' 4011 602) 752) 1) Gsfur öriKMS mlnna Ijó* sn vsnjulsg psra 2) Gafur mslra Ijós sn vsnjulsg para HEILDSÚLUBIRGÐIR: RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS H.F. SÍMI 18785

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.