Dagblaðið - 05.10.1981, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
Iþróttir
Iþróttir
9
16
(t
Iþróttir
Iþróttir
Ágúst Lindal, KR, sækir að körfu ÍR 1 leik liðanna i úrvalsdeildinni á laugardag. búinn að rétta Ágústi hjálparhönd. Fyrir aftan þá sést Bob Stanley (11), Bandarfkja
Hjörtur Oddsson sækir að honum og Jón Sigurðsson, bezti maður vallarins, er reiðu- maðurínn i liði ÍR.
JÓN SIG. SÁ UM ÍR!
— útlendingslausir KR-ingar sigruðu ÍR 81-79 f fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar
Alislenzkir KR-ingar sigruöu ÍR I
fyrstu umferð úrvalsdeildarínnar I
körfuknattleik á laugardag meö 81 stigl
gegn 79. Slewart Johnson meiddist illa
á fingri i Reykjavikurmótinu á dögun-
um og getur ekki leikiö meö KR á næst-
unni. Þeir léku því útlendingslausir
gegn ÍR en það kom ekki að sök. Jón
Sigurösson lék aöalhlutverkið hjá KR,
var óstöðvandi og skoraði 32 stig. ÍR
lék án Kristins Jörundssonar sem
stjórnaði liðinu af bekknum og i lokin
vantaði tilfinnanlega reynslu i liðið til
að halda haus eftir að ÍR hafði átt sizt
minna i leiknum, sem var hnifjafn allan
timann.
jafnræði liðanna sá til þess að spennan
hélzt. Jón Sigurðsson átti mjög góðan
leik og var fyrst og fremst maðurinn á
bak við sigur KR. Vítanýting hans var
með eindæmum, af fimmtán skotum
rötuðu 14 rétta leið. Garðar var einnig
drjúgur og Bjarni átti góða kafla.
Kristján Rafnsson gæti komið vel út í
vetur en virðist skora áræði undir
körfu andstæðinganna.
Bob Stanley var sterkastur ÍR-inga,
berst vel og hirðir ógtynni af fráköstum
í vörn og sókn. Skotnýting hans í leikn-
um var þó léleg. Óskar Baldursson lék
mjög vel, sérstaklega framan af, og
Sigurður Bjarnason stóð sig með
ágætum en hann kom ekkert inn á fyrr
en í síðari hálfleik. Reynsluna skortir í
liðið en framtíðinni ætti það ekki að
þurfa að kvíða. Nóg af efnilegum leik-
mönnum.
Stig KR: Jón Sigurðsson 32, Garðar
Jóhannsson 17, Ágúst Líndal og
Kristján Rafnsson 12 hvor, Bjarni
Jóhannesson 6 og Páll Kolbeinsson 2.
Stig ÍR: Bob Stanley 29, Kristján
Oddsson 11, Jón Jörundsson 10, Óskar
Baldursson 8, Hjörtur Oddsson 6,
Benedikt Ingþórsson 6, Sigurður
Bjarnason 5 og Sigmar Karlsson 4.
Dómararnir ungu, Gunnar Guð-
mundsson og Ingvar Kristjánsson, voru
ekki öfundsverðir af hlutverki sínu í
leiknum. Þeir gerðu sín mistök en eru
vafalaust reynslunni ríkari. Leikur
þessara gömlu risa í körfuknattleiknum
dró að sér fáa áhorfendur, þeir náðu
ekki að fylla hundraðið að þessu sinni.
-VS.
Laval og Lens töpuðu í Frakklandi:
KR náði forystunni á upphafsmínút-
um leiksins en hún var þó aldrei meiri
en fjögur stig. ÍR komst yfir í fyrsta
skipti efdr 8 mín., 20—18, og skömmu
síðar voru þeir komnir sjö stig
yfir, 32—25. Það var mesti munurinn á
liðunum í leiknum. KR náði að jafna
og komast yfir á ný, 40—37, þremur
mínútum fyrithlé. Það sem eftir lifði
hálfleiksins var mikið fum og fát á
mönnum og aðeins ein karfa skoruð,
ÍR-ingar, og staðan í hléi því 40—39
KR í hag.
ÍR byrjaði síðari hálfleikinn vel og
komst í 49—44. KR jafnaði og eftir það
skiptust liðin á um að hafa forystu þar
til þrjár mínútur voru tíl leiksloka. Þá
var Jón Jörundsson farinn út af hjá lR
með 5 villur og ÍR-ingarnir hættu gjör-
samlega að hitta í körfuna. KR náði
forskoti sem ekki varð unnið upp, 81 —
75 þegar hálf mínúta var eftir af leikn-
um. ÍR náði þó aö skora tvær körfur,
Óskar Baldursson, en sigri KR varð
ekki ógnað á síðustu sekúndunum.
Leikurinn í heild var frekar slakur en
„ ANZIHART AÐ NA
EKKIÖÐRU STIGINU”
—sagði Karl Þórðarson um leik Laval við Montpellier
„Þetta var heldur slakur leikur en
við vorum miklir klaufar að ná ekki að
minnsta kosti jafntefli i lelknum. Já,
það var anzi hart að ná ekki öðru stig-
inu. Við náðum forustu á 10. min.
þegar Þjóðverjinn Krause skoraði.
Hann lék sinn fyrsta leik á ný eftir
meiðsli. Montpellier jafnaði á siðustu
minútu fyrri hálfleiksins — mikið
gjafamark eftir aukaspyrnu. Sjö min.
fyrír leikslok skoraði liðið svo sigur-
markið,” sagði Karl Þóröarson, þegar
DB ræddi við hann i gær. Tólfta um-
ferðin i 1. deildinni i Frakklandi var háð
á laugardag. Montpellier sigraði þá
Laval 2—1 en sem kunnugt er leikur
Karl Þórðarson meö Laval. Lens, liðið,
sem Teitur Þórðarson ieikur með, tap-
aði illa i Nantes.
Bordeaux komst aftur í efsta sætið
með sigri á Metz en leik Nice og St. Eti-
enne, sem átti að vera i Nice, var frest-
að vegna gífurlegrar úrkomu. St. Eti-
enne, meistararnir frá í vor, hefur
tapað fæstum stigum.
Úrslitin á laugardag urðu annars
þessi:
Lyon—Monaco 0—2
Bordeaux—Metz 2—1
Montpellier—Laval 2—1
Lille—Tours 2—0
Bastia—Strasbourg 1—0
Auxerre—Brest 1 — 1
Nantes—Lens 4—0
Nancy—Paris SG 0—0
Valenciennes—Sochaux 3—0
Nice—St. Etienne frestað
Staðan er nú þannig: Bordeaux 12 6 5 1 22—14 17
Monaco 12 7 2 3 27—14 16
Sochaux 12 6 4 2 15—13 16
St. Etienne 10 6 2 2 20—9 ’ 14
Lille 12 6 2 4 26—18 14
Brest 11 4 6 1 17—14 14
Bastia 12 5 4 3 23—22 14
Laval 11 5 3 3 15—13 13
Nantes 12 4 4 4 16—12 12
Paris SG 12 4 4 4 11 — 11 12
Nancy 11 4 4 3 14—16 12
Lyon
Valenciennes
Tours
Strasbourg
Montpellier
Auxerre
Metz
Nice
Lens
11 6 0 5 12—14 12
12 4 3 5 15—14 11
12 5 1 6 12—14 11
114 16 14—14 9
12 3 3 6 12—19 9
12 2 4 6 11—24 8
12 0 7 5 8—15 7
11 2 2 7 10—27 6
12 2 1 9 11—23 5
-hsim.
50 mörk
Úrslit i hollenzku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu i gær urðu þessi:
Haarlem-Maastricht 3—2
AZ’67-Nec, Nijmegen 4—2
Roda-Feyenoord 2—2
Utrecht-Tilburg 5—2
Deventer-Pec, Zwolle 2—2
PSV Eindhoven-Twente 4—0
NAC, Breda-de Graafschap 5—1
Stórleikir
íEvrópu-
bikarnum
— Bayern Miinchen
leikur við Benf ica
Það verða heldur betur stórleikir i
Evrópubikarnum i knattspyrnu,
keppni meistaraliða, i 2. umferðinni.
Bayern Munchen, sem þrísvar hefur
sigrað i keppninni og er nú taliö sigur-
stranglegast þeirra 16 liða sem eftir eru,
leikur við Benfica, Portúgal, sem tvi-
vegis hefur sigrað i keppninni. Það var
dregið til 2. umferðar f Zurich i Sviss á
föstudag og hér á eftir fara allir leikirn-
ir i Evrópubikarnum og helztu leikir f
Evrópukeppni bikarhafa og UEFA-
keppninni.
Evrópubikarinn
Anderlecht, Belgíu, — Juventus, Ítalíu.
Liverpool, Englandi, — AZ’67,
Hollandi.
Bayern Munchen, V-Þýzkal.,—
Benfica, Portúgal.
Banik Ostrava, Tékkóslóvakíu, —
Rauða stjarnan, Belgrad, Júgóslavíu.
CSKA, Búlgaríu, — Glentoran, Norð-
ur-írlandi.
KB, Danmörku, — Universitat
Craiova, Rúmeníu.
Austria, Vín, Austurríki — Dynamo
Kiev, Sovétríkjunum.
Dynamo Berlín, Austur-Þýzkalandi, —
Aston Villa, Englandi.
Evrópukeppni bikarhafa
Eintracht, Frankfurt — Rostov, Sovét-
ríkjunum.
Tottenham, Englandi, — Dundalk, ír-
landi.
Bastia, Frakklandi,'— Dynamo Tbilisi,
Sovétríkjunum.
Dukla Prag, Tékkóslóvakíu, —
Barcelona, Spáni.
Vasas, Ungverjalandi, — Standard
Liege, Belgíu.
Legia Varsjá, Póllandi, — Lausanne,
Sviss.
Oporto, Portúgal, — Roma, Ítalíu.
UEFA-keppni
Helztu leikir þar eru Hamburger SV,
Vestur-Þýzkalandi, — Bordeaux,
Frakklandi.
Real Madrid, Spáni, — Carl Zeizz
Jena, A-Þýzkalandi.
Southampton, Englandi, — Sportíng,
Lissabon, Portúgal.
Arsenal, Englandi, — Winterslag,
Belgíu.
Ingemarfær
verðlaunin
f rá Helsinki
Á fundi alþjóðaólympiunefndarinn-
ar i Baden Baden í V-Þýzkalandi á
föstudag var samþykkt, að Ingemar
Johansson, fyrrum heimsmeistarí i
þungavigt i hnefaleikum, fái silfurverð-
launin i þungavigt frá leikunum í
Helsinki, 29 árum eftir að hann var
dæmdur úr leik f úrslitum í Helsinki.
Hann hljóp bara undan mótherjanum
Ed Saunders, USA, miklum rotara,
miður sin af ótta f furðulegasta hnefa-
leik, sem undirritaður hefur orðið vitni
að. En ólfk urðu örlög þeirra,Ed Sand-
ers lézt nokkrum árum sfðar eftir rot-
högg í keppni. Ingemar Johansson varð
heimsmeistari og margfaldur milljóna-
mæríngur. Ingemar fékk verðlaun sfn i
fyrstu en alþjóðahnefaleikasambandið
tók þau af honum. Þau voru i gæzlu
finnsku ólympfunefndarinnar. Loks nú
samþykkti alþjóðanefndin að Johans-
son fengi verðlaun sfn. Forseti nefndar-
innar, Spánverjinn Juan Antonio Sam-
aranch, mun afhenda Ingimari þau,
þegar hann fer til Svfþjóðar innan
skamms.
-hsfm.
í Hollandi
Sparta-Ajax 5—3
Groningen-Den Haag 4—2
Fimmliu mörk i niu leikjum. Það
jaðrar við heimsmet. Staða efstu liöa:
PSV 9 7 0 2 27—13 14
Ajax 9 6 1 2 37—13 13
Sparta 9 5 3 1 21—12 13
AZ’67 9 5 2 2 23—11 12
Deventer 9 5 2 2 20—13 12