Dagblaðið - 05.10.1981, Blaðsíða 20
20
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
1
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Markaregn hjá enskum í
1. deild, 39 mörk skoruð
— Ipswich heldur enn f orustu þrátt fyrir tap í Southampton — Man. Utd. komið í fjórða sætið
Það var markaregn, i 1. deildinni
ensku, í laugardag og það voru góð
skipti frá regninu laugardeginum
iður, þegar margir vellir voru eins og
svampdýnur. í allt voru skoruð 39
mörk eða rúmlega 3,5 i leik. Það
þykir gott bji enskum og flest mörk-
in i leik voru skoruð í Southampton.
Þar sigruðu Dýrlingarnir, efsta liðið i
1. deildinni, Ipswich Town, með
oddamarkinu af sjö. Staðan var þó
allt annað en góð fýrir Southampton
eftir fyrri hilfleikinn. Staðan 1—3
fyrir Ipswich en i þeim siðari settu
Dýriingarnir i fullt, drífnir ifram af
stórleik Kevin Keegan, Mike Chann-
on og David Armstrong. Það var
meira en vörn Ipswich réð við og i
lokin stóðu Dýrlingarnir uppi sem
sigurvegarar 4—3 i frábærum leik,
sem hafði allt til að bera fyrir ihorf-
endur. Ipswich saknaði illa Franz
Thijssen og Allan Brazil og vikan var
slæm hji liðinu. Fyrst tap i Aberdeen
i UEFA-leiknum, þar sem Ipswich,
sigurvegararnir i vor, voru slegnir út
og nú tap í Southampton. Ipswich
heldur þó enn forustu i 1. deiid.
Leikurinn hófst á glæsilegan hátt
fyrir Ipswich. Eftir 12 sekúndur — að
sögn fréttamanna BBC — sendi John
Wark knöttinn í mark Southampton
án þess nokkur leikmaður Dýrling-
anna kæmi við knöttinn. Kevin
Keegan jafnaði úr vítaspyrnu en
mikið var um vítaspyrnur á laugar-
dag. Það stóð ekki lengi. Eftir 34
mín. var staðan orðin 1—3. Wark
skoraði aftur, nú úr vítaspyrnu, og
Paul Mariner þriðja markið. Fyrsta
deildamark hans á leiktímabilinu.
Staðan 1—3 i hálfleik og í þeim síðari
voru Dýrlingarnir óstöðvandi. David
Armstrong, keyptur í sumar frá
Middlesbrough, minnkaði muninn í
2—3. Siðan jafnaði Steve Moran og
Armstrong skoraði svo sigurmarkið.
Þessi þrjú mörk voru skoruð á 16
min. kafla og allt var á suðupunkti á
The Dell, leikvelli Southampton.
Frægur sigur í höfn. Úrslitin á laug-
ardag urðu annars þessi:
1. deild
Birmingham—West Ham 2—2
Brighton—Man. City 4—1
Leeds—AstonVilla 1 — 1
Liverpool—Swansea 2—2
Man.Utd.—Wolves 5—0
Notts Co—Arsenal 2—1
Southampton—Ipswich 4—3
Stoke—Everton 3—1
Sunderland—Coventry 0—0
Tottenham—Nottm.For. 3—0
WBA—Middlesbrough 2—0
2. deild
Bolton—Grimsby 1—2
Cambridge—Chelsea 1 —0
Cardiff—Newcastle 0—4
Charlton—Derby 2—1
Leicester—C.Palace 1—1
Norwich—Oldham 1—2
Orient—Luton 0—3
OPR—Blackburn 2-0
Sheff.Wed.—Wrexham 0-3
Shrewsbury—Rotherham 2—1
Watford—Barnsley 3—1
3. deild
Brentford—Carlisle 1—2
Bristol City—Walsall 0-1
Burnley—-Swindon 0-2
Chesterfield—-Portsmouth 2-2
Exeter—Millwall 5—4
Lincoln—Newport 2—2
Oxford—Fulham 2—0
Rochdale—Aldershot 0—0
Preston—Bristol Rov. 0-1
Reading—Huddersfield 1—2
Southend—Plymouth 3-0
Wimbledon—Gillingham 0—2
Sammy Mcllroy — þrenna i laugar-
dag gegn Úlfunum.
Leik Chester og Doncaster var
frestað.
4. deild
Colchester—Northampton 5—0
Crewe—Port Vale 0—2
Darlington—Peterbro 0—0
Halifax—Bury 2—1
Hereford—Hartlepool 1—1
Hull—Tranmere 1—2
Mansfield—Blackpool 2—2
Scunthorpe—Bradford 1—3
Stockport—Bournemouth 1—2
Wigan—Torquay 1—0
York—Sheff. Utd. 3—4
Skozka úrvalsdeildin
Aberdeen—Morton 2—0
Dundee—Celtic L 1—3
Hibernian—DundeeUtd. 1—1
Partick—St. Mirren 1—1
Rangers—Airdrie 4—1
Celtic hefur sigrað í öllum leikjum
sínum, sex að tölu. George
McCluskey skoraði tvívegis á laugar-
dag í Dundee. Frank McGarvey
þriðja mark Celtic. Jim Bett skoraði
tvö af mörkum Rangers, Derek John-
stone og Derek Jardine hin tvö.
Tvœr vítaspyrnur
Liverpool
Miðherji Liverpool hér á árum
áður, John Toshack, sem bókstaflega
hefur veriö kraftaverkamaður sem
stjóri Swansea, kom með sitt nýja 1.
deildarlið á Anfield. Greinilegt að
„stóri John” trekkti. Áhorfendur
voru 48.645 eða um tíu þúsund meira
en meðaltalið hefur verið. Mínútu
þögn var fyrir leikinn til minningar
um Bill Shankley eins og var á öllum
völlum Englands. Síðan hófst leikur-
inn og Swansea náði forustu á 15.
mín. Vítaspyrna dæmd á Liverpool
og úr henni skoraði Leighton James.
Liverpool var miklu meira með
knöttinn en vörn Swansea var svo
sterk, að Dai Davies þurfti aðeins að
verja eitt skot í hálfleiknum. Bob
Paisley, stjóri Liverpool, breytti taktík,
liðsins eftir leikhléiö. Lét Sammy Lee
leika miðherja með Dalglish. Enn
þyngdist sókn Líverpool en allt kom
fyrir ekki. Svo náði Swansea skyndi-
sókn á 57. min. Phil Thompson, fyrir-
liða Liverpool, urðu á mikil mistök
og Bob Latchford skoraði annað
mark Swansea. 0—2, hreint ótrúlegt.
En á fimm mínútna kafla tókst Liver-
pool að jafna og til þess þurfti tvær
vítaspyrnur. Fyrst braut Neil Robin-
son á Terry McDermott inann teigs
og Terry minnkaði muninn i 1—2 úr
vítinu. Síðan kom að Dai Davies að
brjóta á McDermott. Aftur viti og
Terry jafnaði. Lokakaflann sótti
Liverpool nær látlaust. Tókst ekki að
knýja fram sigur og Dai Davies, sem
leikur með Wales gegn Íslandi 14.
október næstkomandi, átti stórleiki í
marki Swansea.
Liðin voru þannig skipuð: Liver-
pool: Grobbelaar, Neal, Alan Kenne-
dy, Lawrenson, Thompson, Lee,
Souness, McDermott, Ron Whelan,
Johnson (Kevin Sheedy) og Dalglish.
Swansea: Davies, Robinson, Irwin,
Rajkovic, Hadziabdic (báðir Júgó-
slavar), Thompson, Robbie James,
Mahoney, Leighton James, Latch-
Bryan Robson, dýrasti leikmaður Englands. Man. Utd. greiddi 1,7 milljón sterl-
ingspunda fyrir hann á laugardag.
fored og Curtis. Jerome Charles kom
inn sem varamaður.
Brooking
með West Ham
Enski landsliðsmaðurinn Trevor
Brooking lék sinn fyrsta leik með
West Ham á leiktímabilinu. Hefur átt
við meiðsli að stríða en kom nú inn
vegna þess, að Paul Allen leikur með
Englandi i HM pilta í Ástralíu. Lund-
únaliðiö var óheppið að hljóta ekki
þrjú stíg í leiknum í Birmingham í
góðum leik. David Cross náði for-
ustu fyrir WH á 10. mín. en þremur
mín. síðar jafnaði bakvörðurinn
David Langan eftir undirbúning
Archie Gemmill. Skallaði í mark. Á
60. mín. náði WH aftur forustu.
Cross skoraði og þannig stóð þar til
rétt fyrir leikslok, að Kevin Dillon
jafnaði með miklum þrumufleyg,
sem markvörður West Ham, Tom
McAlister, keyptur frá Swindon í
sumar, átti ekki möguleika að verja.
Phil Parkes meiddur eftir leikinn við
Liverpool. Langt var komið fram yfir
venjulegan leiktíma, þegar Birming-
ham jafnaði og leikmenn West Ham
vissu þá úrslitin í Southampton. Þeir
virtust vera komnir á toppinn á ný en
leik er ekki lokið fyrr en dómarinn
flautar leikslok.
Þrjú mörk
Mcllroy
Man. Utd. sigraði í fjórða leik
sínum í röð og er komið í fjórða
sætið. Þrír af þessum sigrum eru þó
gegn neðstu liðum 1. deildar svo enn
er of fljótt að spá Manchester-liðinu
miklu gengi. Liðið lék þó mjög vel
gegn Úlfunum og enginn betur en
írski landsliðsmaðurinn Sammy
Mcllroy. Hann var tekinn út af gegn
Swansea á dögunum og Rene Moses
settur inn sem varamaður. En
Mcllroy var ekki á því að sleppa sæti
sínu. Átti stórleik, þegar Man. Utd.
sigraöi Leeds í vikunni, og gegn Úlf-
unum skoraði hann þrennu. Frank
Stapleton skoraöi fyrsta markiðá 10.
mín. eftir snjalla sókn, þar sem Úlfa-
leikmennirnir komu ekki við knött-
inn. Bailey markvörður kastaði
knettinum til Albiston, sem gaf til
Wilkins. Frá honum fékk Mcllroy
knöttinn, splundraði vörn Úlfanna
áður en hann gaf á Stapleton og eftir-
leikurinn var auðveldur hjá miðherj-
anum. Lék á Bradshaw markvörð og
rúllaði knettinum í mark. Síðan kom
þrenna Mcllroy, staðan 2—0 í hálf-
leik, og Gary Birties skoraði fimmta
markið. Bryan Robson, sem nú er
talinn bezti leikmaður Englands,
skrifaði undir samning við Man.Utd.
á Old Trafford rétt áður en leikurinn
við Úlfana hófst. Metupphæð fyrir
leikmann á Bretlandseyjum. Man.
Utd. greiddi WBA 1,5 milljónir sterl-
ingspunda og þurfti auk þess að
greiða 200 þúsund pund í skatta.
Tottenham lék Nottingham Forest
sundur og saman og þar var Marc
Falco fremstur í flokki. Skoraöi
fyrsta markið á 26. mín. Síðan skor-
aði nýliðinn Mike Hazzard og Falco
aftur á 85. mín. Það er í þriðja sinn á
leiktímabilinu, sem Falco skorar tvö
mörk i leik. Níu í allt. Hann er í stöðu
Garth Crooks og nú er l.'tli, svarti
miðherjinn að verða heill eftir
meiðsli. Stóra spurningin hvort hann
kemst inn í Tottenham-liðið eða
hvers stöðu hann tekur ef til þess
kemur.
Hrun Arsenal
í lokin
Arsenal hafði tögl og hagldir í
leiknum við Notts County lengstum.
John Hawley, áður Sunderland,
skoraði á 10. mín. en þegar tíu mín.
voru til leiksloka meiddist hann.
Brian McDermott kom í hans stað en
slasaðist fljótt og varð að yfirgefa
leikvöllinn. Leikmenn Arsenal því
tíu og á síðustu þremur mínútunum
skoraði Notts County tvívegis og
sigraði. Fyrst David Hunt, á 87.
mín., síöan Brian Kilcline.
Brighton komst í 4—0 með
mörkum Mike Robinson, Gary
Williams og Andy Ritchie, tvö, áður
en Kevin Reeves skoraði eina mark
Man. City. Mikil meiðsli hjá City
m.a. Francis og Power og nyi
leikmaðurinn frá Everton, Asa Hart-
ford, lék ekki í Brighton. Gary Shaw
skorði fyrir Aston Villa í fyrri hálf-
leik á Elland Road. Nýliði, Steve Bal-
combe, jafnaði fyrir Leeds í s.h. í
sinum fyrsta deildaleik. Lee
Chapman skoraði fyrir Stoke á 2.
mln. Joe McBride jafnaði fyrir Ever-
ton en tvö mörk McGuire og Chap-
man tryggöu sigur Stoke á siðustu 10
mlnútum leiksins. Ian Munro hjá
Sunderland var rekinn af velli í leikn-
um við Coventry og Kevin Summer-
field og Cyrille Regis skoruðu mörk
WBA gegn Middlesbrouth.
í 2. deild kom mest á óvart, að
Sheff. Wed. steinlá á heimavelli og
það fyrir Wrexham. Markakóngur-
inn Dixie McNeil skoraði tvö af
mörkum liðsins frá Norður-Wales.
Við það komst Luton í efsta sætið og
Watford hefur náð Sheffield-liðinu
að stigum. Þá var merkilegt að New-
castle vann í fyrsta skipti í sögu þess
fræga félags sigur í Cardiff. í 3. deild
er Chesterfield efst með 17 stig. Don-
caster og Reading eru með 16,
Walsall 15 stig. í 4. deild er Bourne-
mouth efst með 20 stig. Bradford 19,
Torquay 18.
Markhæstir
ogstaðan
Þeir Lee Chapman, Stoke, David
Cross, West Ham og Kevin Keegan,
Southampton, eru nú markhæstir í 1.
deild með sjö mörk hver. Paul Godd-
ard, West Ham, Bob Latchford,
Swansea og John Wark, Ipswich,
hafa skoraði sex mörk.
Staðan er nú þannig:
1. deild
Ipswich 8 5 2 1 18—11 17
West Ham 8 4 4 0 17—8 16
Swansea 8 5 1 2 17—12 16
Man.Utd. 9 4 3 2 12—5 15
Tottenham 8 5 0 3 13—10 15
Nottm. For. 8 4 2 2 11—10 14
Southampton 8 4 1 3 17—15 13
Brighton 8 3 3 2 13—9 12
Coventry 8 3 2 3 14—13 11
Man.City 8 3 2 3 12—12 11
Everton 8 3 2 3 10—11 11
Stoke 8 3 1 4 16—14 10
Liverpool 8 2 4 2 8—8 10
Notts Co. 8 3 1 4 12—16 10
Birmingham 8 2 3 3 12—12 9
Arsenal 8 2 3 3 5—6 9
Aston Villa 8 1 5 2 8—8 8
WBA 8 2 2 4 7—7 8
Sunderland 8 1 4 3 6—11 7
Middlesbro 8 2 1 5 7—15 7
Wolves 8 2 1 5 5—16 7
Leeds 9 1 3 5 7—18 6
2. deild
Luton 8 6 0 2 18—10 18
Sheff.Wed. 8 5 1 2 9—5 16
Watford 8 5 1 2 11—9 16
Oldham 7 4 3 0 12—5 15
Chelsea 8 4 1 3 11—9 13
Grimsby 8 4 1 3 11 — 10 13
Norwich 8 4 1 3 12—13 13
Shrewsbury 8 4 1 3 10—11 13
QPR 8 4 0 4 12—10 12
Newcastle 8 4 0 4 9—7 12
Leicester 8 3 3 2 10—9 12
Blackburn 8 4 0 4 8—9 12
Barnsley 8 3 1 4 11—8 10
C. Palace 8 3 1 4 6—6 10
Rotherham 8 3 1 4 9—10 10
Charlton 7 3 1 3 8—9 10
Derby 8 3 1 4 12—14 10
Cambridge 8 3 0 5 8—9 9
Wrexham 7 1 1 1 4 7—8 7
Cardiff 7 2 1 4 8—14 7
Bolton 8 2 0 6 5—13 6
Orient 8 1 1 6 3—12 4
Skozka úrvalsdeildin
Celtic 6 6 0 0 17—5 12
Aberdeen 6 4 0 2 11—7 8
St. Mlrren 6 3 2 1 9—8 8
Rahgers 5 2 1 8 6-6 6
Morton 6 3 0 3 5—6 6
DundeeUtd. 5 2 1 2 11—7 5
Hibernian 6 1 3 2 6—6 5
Dundee 6 2 0 4 10—14 4
Airdrie 6 1 1 4 9—19 3
Partick 6 0 1 5 3—11 1
-hsim.