Dagblaðið - 05.10.1981, Blaðsíða 36
Talsvert um ófullkomin sjónvarpskerfi:
löulega sett upp meira
af vilja en kunnáttu
—segir Hans Gunnarsson útvarpsvirkjameistari—veit mörg dæmi þess að FM
og videosendingar haf i truf lað útsendingar sjónvarpsins
„Undanfarin 15—20 ár hefur verið
talsvert um það að sjónvarpskerfi
fiafa verið sett upp af ófaglærðum
mönnum og í flestum tilvikum eru
þau meira eða minna gölluð,” sagði
Hans Gunnarsson útvarpsvirkja-
meistari við DB í morgun. „Iðulega
hafa þau verið lögð meira af góðum
vilja en kunnáttu og afleiðingin er í
mörgum tilvikum sú að myndgæði
eru ákaflega slök. Vissulega er það
ekki algilt að þessi kerfi séu gölluð en
í flestum tilvikum er svo.
Þetta hefur í raun verið í lagi allt
fram til þess tíma að FM-sendingar
og videó fór að færast í aukana.
Sums staðar hefur ekki verið gengið
betur frá þessum kerfum en svo að
þessar sendingar trufla útsendingar
sjónvarpsins. Ég veit til þess að sums
staðar í Breiðholti hefur FM-loftnet
verjð tekið úr sambandi til þess að
losna við truflanir. Það er í raun lítið
fengið með slíkum kerfum ef útsend-
ingarnar trufla hver aðra. Slíkar
truflanir eiga ekki að geta komið
fram í kerfum, settum upp af fag-
mönnum,” sagði Hans ennfremur.
Þá mun einnig hafa verið um það
að ræða í sumum tilvikum að svo illa
hafi verið gengið frá loftnetskerfum, j
að skipta hefur orðið um meginhluta |
þeirra til að bæta myndgæðin og i
koma í veg fyrir að útsendingar trufli
hver aðra. „Bæði er,” sagði Hans,
,,að þarna eru oft á ferðinni ófag-
lærðir menn og þar að auki oft á
tíðum með ófullkomið efni til
lagna.”
-SSv.
Fannst örendur í Lágafelli
Rétt um hádegisbil á laugardaginn fundu leitarmenn úr björgunarsveitinni Fiskakletti svœói nr. 20. Magnús Einarsson aóstoöaryfirlögregiuþjónn, sem leitinni stjómaói,
Indriða Jónsson, sem leitað hafði verió síðan á miðvikudag. Var hann örendur ofar- bað blaðið að færa þakkir öllum björgunarsveitarmönnum og öðrum sem aðstoð hafa
lega I Lágafelli, ekki ýkja langt frá kirkjunni. Var þama verið að flnkemba leitar- veitt við leit. -DB-mynd S.
Beygöi f lítilli hæð og
vængurinn rakst í
—segja tveir heimamenn á Hellu sem urðu vitni að f lugslysinu þar f gær
„Við sáum vélina sveima yfir
þorpinu. Hún var búin að fljúga
nokkra hringi yfir því og nágrenninu
um stund. Okkur datt í hug að keyra
út á flugvöll. Viö vorum að koma að
flugvellinum, nýkomnir í gegnum
hliðið, þegar hún brotlenti,” sagði
Fannar Jónasson, 24 ára Hellubúi,
sem ásamt Jóni Bergþóri Hrafns-
syni, 25 ára, kom fyrstur á slysstað.
„Okkur sýndist vélin ætla að
lenda. Hún kom úr suðri, á móti
vindinum, fór niður undir flug-
brautina, en hætti síðan við lendingu.
Hóf hún sig upp aftur, tók krappa
vinstri beygju í lítilli hæð, missti hæð
við það, rak vinstri vænginn í
jörðina, steyptist yfir sig og á nefíð,”
sagði Fannar.
Töldu þeir félagarnir að flugvélin
hefði verið í 10—20 metra hæð þegar
hún tók beygjuna og að beygju-
hallinn hefði verið 45—50 gráður.
„Við brunuðum að vélinni og
sáum einn mann í henni. Rétt eftir að'
við komum að flugvélinni kom annar
bíll á staðinn. Ég vissi af lögreglubíl
sem staddur var í þorpinu og fór til
hans. Fór ég síðan til læknisins en
hann var ekki við En lög-
reglumaðurinn hringdi á Hvolsvöll
og þaðan kom sjúkrabíll og læknir
með.” Var flugmaðurinn fluttur með
hraði á sjúkrahús í Reykjavík.
-KMU.
Þelr siu fhigslysið og komu fyrstir á mlysstað. Fannar Jónasson til vinstri og Jón Bergþór Hrafne-
son. Þeir em bóðir að IJúke viðskiptafrœðinámi frá háskólanum og reka saman endurskoðenda*
skrifstofu á HeHu. Þess má geta að Fannar hefur orðið áður vhni að fiugslysi. Þegar hann var ungur
ptttur sá hann iitia flugvál hrapa I sjóinn i sundið milli Viöeyjar og Klepps. DB-mynd: KHstján öm.
frjúlst, áháð dagblað
MÁNUDAGUR 5. OKT. 1981.
Ök af krafti
ágám
ökumaður BMW-bifreiðar með
utanbæjarnúmeri varð fyrir þeirri
óvenjulegu og um leið óskemmtilegu
reynslu á laugardagsmorgun að aka á
gám vestur á Granda. Varð áreksturinn
býsna harður og skemmdist bifreiðin
mikið. Gáminn sakaði hins vegar ekki
mikið en þó sá talsvert á honum.
-SSv/DB-mynd: S.
GunnarogGeir:
Fundurívikunni
„Nei, það hafa engir fundir verið um
hríð. Ekki hefur verið ákveðinn nýr
fundur en ég geri ráð fyrir að fundur
verði nú í vikunni,” sagði Ólafur G.
Einarsson, formaðar þingflokks Sjálf-
stæðismanna, í viðtali við DB í
morgun, þegar hann var spurður um á-
framhald „sáttafunda” armanna í
Sjálfstæðisflokknum. -HH.
Q
IVININÖSÍ
Í VIKU HVERRI
Vinningur vikunnar:
er Útsýnarferð til
St Petersborg
beach
Vinningur í þessari viku er Út-
sýnarferð til St. Petersborg beach
með ferðaskrifstofunni útsýn,
Austurstrœti 17 Reykjavík.
/ vikunni verður birt, á þessum
stað l blaðinu, spuming tengdsmá-
auglýsingum Dagblaðsins. Nafn
heppins áskrifanda verður slðan
birt daginn eftir í smáauglýsingun-
um og gefst honum tækifœri til að
svara spurningunni. Fylgizt vel
með, áskrifendur. Fyrir nœstu
helgi verður einn ykkar glœsilegri
utanlandsferð ríkari.
Feröaskrifstofan
ÚTSVN
c ískalt
beven up
T>r
hressir betur.