Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 4
6
hver um annan þveran um sumarmál eða seinna og heimtað
útsæði af félaginu, þótt þeir ekki hafi pantað það áður. Oft
hefir þá ekkert útsæði verið fyrir hendi, svo stjórnin hefir
orðið að neita, eða þá einhver úrgangur, sem menn hafa
fengið heldur en ekki neitt, en hvort sem heldur var hefir
mönnum oft mislíkað stórlega, þótt sökin væri hjá þeim ein-
um. Félagið hefir leitað fyrir sér víða og reynt til þess að
fá sem bezt, hentugust og ódýrust verkfæri, og þegar miklar
pantanir hafa borist því, hefir orðið að senda eitthvað meira
eða minna af óreyndum verkfærum, sem svo hafa reynst
misjafnlega. Komið hefir það fyrir að pantanir hafa misfarist
eða ekki komið í tæka tíð, þetta hefir aftur orðið til þess
að skekkja hefir komist á viðskiftareikninga félagsmanna í
bili. Hefir þetta alt valdið óánægju, þótt það sé svo vaxið,
að örðugt sé því að varna eða koma í veg fyrir að slíkt geti
átt sér stað. Loks skal eg geta þess að menn hafa verið alt
of heimtufrekir við félagið um leiðbeiningaferðir. Aðalstarfs-
maður félagsins, Sigurður skólastjóri Sigurðsson, hefir verið
bundinn við aðaltilraunastöð félagsins mikinn hluta sumars-
ins, svo ekki var hægt að ætlast til þess, að hann gæti á
hverju ári komið heim til hvers félagsmanns. Fáum öðrum
hefir verið á að skipa og fé lítið fyrir hendi. En úr þessu
verður bætt, þegar félaginu aukast starfskraftar og tilrauna-
starfsemin er lengra á veg komin. Er þá drepið á alt, sem
eg veit til að valdið hafi óánægju meðal félagsmanna, og
þeir fáu, sem hornauga líta til þess hafa notað því til áfellis
og þá að sjálfsögðu gert úlfaldann úr rnýflugunni. Hefi eg
getið þessa opinberlega, svo menn sæju hve smávægileg og
afsakanleg óánægjuefnin eru þegar þess er gætt, að alt er í
býrjun og að aðalstarfsmaður félagsins hefir annað starf með
höndum, sem er aðalstarf hans og menn vilja með engu móti
missa hann frá. Störf hans í félagsins þarfir eru því auka-
störf, en eru orðin svo umfangsmikil fyrir hinn skjóta vöxt
félagsins, að þau nægja fyllilega hverjum meðalmanni óskift-
um. Eins og nærri má geta hefir hann oft orðið að sjá með
annara augum og þá sínum f hvert skiftið, og sjá allir hve
óheppilegt það er. Eigi að fullnægja viðunandi öllum þeitn