Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Síða 5

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Síða 5
7 kröfum, sem til félagsins eru gerðar, endist enginn einn maður til þess og ekki nánda nærri. — Ur þessu verður að bæta skjótlega. Enginn má ætla af því, sem hér hefir verið sagt, að mikið kveði að óánægju meðal félagsmanna með störf félagsins og framkvæmdir. Hennar hefir að eins orðið vart á stöku stað. Bezta sönnunin fyrir því, að ekki séu mikil brögð að henni, er sú, að félagsmönnum fjölgar jafnt og þétt. Og þótt nokk- urir hafi sagt sig úr félaginu eða neitað að borga árstillög sín, þá hafa altaf nýir menn komið jafnharðan í þeirra stað. Allur fjöldi félagsmanna hefir skilið til fulls hve mikilsvert og vandasamt starf félagið hefir með höndum og því litið mildum augum á misfellurnar en glaðst yfir því sem félaginu hefir orðið ágengt þennan stutta tíma sem það hefir starfað og tekið fegins hendi og þakklátlega hjálp þess og leiðbein- ingum. Skal nú í stuttu máli drepið á hið helzta, sem félagið hefir haft með höndum. AÐALTILRAUNASTÖÐIN. Eins og skýrt hefir verið frá í Arsskýrslunni, er aðaltilraunasvæði félagsins 25 túndagsl. Það land vir alt óræktað þegar félagið tók við því. Nú er það alt umgirt og brotið. Mikill hluti þess er komin í góða rækt og notað til ýmsra tilrauna (sbr. skýrslurnar). í aðaltilrauna- stöðinni hafa reist verið hús þau, sem nauðsynleg þóttu í brái og hafa þau kostað mikið fé. Aðalhúsið er allstórt og vaidað 16 ál. langt og 12 ál. breitt tvílyft með 4 ál. háum steinkjallara. Þar er kenslustofa og svefnherbergi fyrir nem- endur og verkamenn, íbúð fyrir aðalstarfsmann, skrifstofa, tilraunastofa, frægeymsluherbergi og gott rúm f kjallara fyrir verkfærasýningu. Húsið var virt í vetur albúið 7,925 krónur. Hús það, sem fyrst var reist og getið hefir verið um áður í skýrslunum, er nú notað til áhalda geymslu og svo eru 2 smátorfhús, sem höfð eru til útsæðisgeymslu, ísgeymslu o. s. frv. Aðaltilraunastöðin með geymsluhúsunum og vatnsleiðslu var í vetur virt af dómkvöddum mönnum á 11,650 kr. en efri stöðin, sem einkum er ætluð til grasræktartilrauna, á 3,070 krónur. Fasteignir félagsins eru því sem stendur 22,645

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.