Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Síða 11
II.
Jundargjörð
frá aðalfundi Rœktunarfélags Norðurlands
21—22. júní 1906.
Árið 1906 hinn 21. júní var aðalfundur Ræktunarfélags
Norðurlands settur og haldinn á Húsavík.
Formaður félagsins, Stefán Stefánsson alþingismaður frá
Akureyri, setti fundinn og mintist með nokkurum orðum á
þroska félagsins og framtíðarhorfur.
Þetta gerðist á fundinum:
1. Formaður athugaði hverjir mættir voru á fundinum, sem
fulltrúar. Kom þá í ljós að mættir voru:
I. Ur Suður-Þingeyjarsýslu:
1. Sigurður Jónsson, bóndi á Yztafelli.
2. Páll Jónsson, bóndi á Stóruvöllum.
3. Helgi Jónsson, bóndi á Grænavatni.
4. Hólmgeir Þorsteinsson, bóndi á Vallakoti.
5. Sigurjón Friðjónsson, bóndi á Sandi.
6. Steingrímur sýslumaður Jónsson, á Húsavík.
7. Aðalsteinn Kristjánsson, kaupmaður á Húsavík.
II. Ur Norður-Þingeyjarsýslu:
1. Björn Indriðason, bóndi í Keldunesi.
2. Stefán Sigurðsson, búfræðingur frá Ærlækjarseli.
Félagsstjórnin mætti á fundinum og fjöldi félagsmanna úr
Þingeyjarsýslum.
2. Til fundarstjóra var valinn formaður félagsins Stefán