Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Síða 19
IV.
Starfsmenn félagsins
þetta ár hafa verið þessir:
Bjarni Benediktsson frá Leifsstöðum, frá 1. jan. til 14.
maí. Gegndi hann störfum á skrifstofu félagsins.
íngimar Sigurðsson búfræðingur frá Draflastöðum, frá 5.
júní til 30. sept.
Hann fór Ieiðbeiningaferðir, hafði umsjón yfir tilrauna-
stöðinni, pá Sigurður bróðir hans var eigi heima, eða
vann að ýmsum störfum í tilraunastöðinni sem verkstjóri.
Krislján Jðnsson búfræðingur frá nesi, frá 20. marz til
8. júlí og frá 1. sept. til 31. des.
Hann hafði verkstjórn og vinnu á hendi í tilraunastöð-
inni og afhendingu á verkfærum, útsæði o. fl., sem fé-
lagið purfti að senda.
Sigurður Sigurðsson hreppstjóri á Halldórsstöðum. Hann
hafði skrifstofustörfin frá 5. okt. til 31. des.
Sigurður Sigurðsson kennari á Hólum gegndi skrifstofu-
störfunum frá 5. maí til 5. okt.
Sigurður Sigurðsson skólastjóri á Hólum var aðal fram-
kvæmdarstjóri félagsins frá ársbyrjun til októberloka, að
hann fór utan. Hann hafði umsjón yfir allri tilrauna-
starfseminni, skrifstofustörfunum o. fl., fór leiðbeininga-
ferðir m. m.
Að pví er skrifstofustörf snertir vísast til pess, er skýrt
var frá í ársritinu í fyrra. Þau hafa verið hin sömu á
pessu ári.