Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1906, Blaðsíða 20
V.
Ci/raunastöðvar.
1. Aðaltilraunastöð Rœktunarfélagsins.
Nokkur hluti efri tilraunastöðvarinnar var óbrotinn
fyrra, en á þessu ári hafa fullar 5 dagsláttur verið brotn-
ar, svo ulraunastöðin á að eins tvær dagsláttur eftir ó-
brotnar af landi sínu, sem er um 25 dagsláttur að stærð.
Land það, er brotið var í fyrra, var tekið til ræktunar.
Var sáð höfrum í sumt af því, en sumt notað til tilrauna
með grasfræsáning, fóðurrófur og tilbúinn áburð.
Tilraunasvæðið hefir nú stækkað að nokkrum mun.
Á árinu hafa þessar tilraunir verið gerðar í tilrauna-
stöðinni: *
a. Tilraunir með 41 afbrigði af jarðeþlum. Auk þess hefir
verið reynt að setja jarðepli niður mismunandi djúpt,
spíruð og óspíruð, klofin og heil.
b. uin 20 tilraunir með fóðurrófnaafbrigði og næpur hafa
verið gerðar.
c. Að eins tvö gulrófuafbrigði hafa verið reynd þetta ár:
íslenzkar rófur og Þrándheimsrófur. Um 50 gulrófur
hafa verið teknar frá til fræöflunar.
d. Allmargar matjurtategundir og skrautplöntur hafa verið
reyndar sem fyr.
e. Tilraunir með 6 mismunandi grasfræblandanir hafa
verið gerðar. Eru tilraunir þær þrefaldar, á 18 reitum