Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Side 15

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Side 15
17 enga skýrslu fengið um starfið; en nefndin veit eftir munnlegum upplýsingum, að því er enn ekki nærri lokið. Nefndin spyr: a) Átti að borga þetta út áður en skýrsla kom? b) Verður ekki dýr »Hafliði allur«, ef svo skal halda áfram við alla hreppa á fjelagssvæði Ræktunarfjelagsins ? Samþykt í því sambandi: Aðalfundur telur fjelaginu ekki fært að gera samskonar athuganir á svæði Rfl. Nl. og gerðar hafa verið í Svína- vatnshreppi, og leggur til, að þeim sje hætt, og að skýrsl- ur um árangur starfsins sjeu fengnar.« 3. Ounnari Jónatanssyni eru úr Ojafasjóði M. J. veitt- ar kr. 50.00 í verðlaun fyrir garðrækt. Upphæðin er færð verknámi til tekna, en rjettara hefði verið að hafa Verð- launareikning og telja honum upphæðina til tekna eða beint við viðskiftamannareikninginn, því verknámi kemur hún ekki við. Retta sje til athugunar fyrir reikningshaldara. Samþ. 4. Ræsting skrifstofu hefir kostað fjelagið kr. 183.50 og virðist sú upphæð ærið há, þegar þess er gætt, hve húsaleigan var lág. Væri ekki ástæða til að lækka þenna lið eftirleióis. Til athugunar fyrir stjórnina. Samþykt. 5. Nefndin vill benda á, að rjett sje að reyna sem fyrst og sem mest að hægt er að selja áhöld, er fjelagið á og þarfnast ekki, svo sem sláttuvjelar og fleira af verkfæra- reikningi, hallamæla af munareikningi o. fl., enda þótt setja yrði vörurnar til muna niður, þar sem búast má við áframhaldandi niðurgangi(l) í verði slíkra vara. Samþ. 6. Reikningur yfir árstillög til Rfl. Nl. 1921, telur 1. jan. 1922 til skuldar hjá Pórshafnardeild kr. 87.00 og Akureyrardeild kr. 32.00 eða alls kr. 119.20. 1922 er ekki reikningur yfir þetta, en búast má við, að það hafi vaxið um kr. 24 00, því að í hvorri deild eru taldir 6 menn. Skuldin ætti því að vera kr. 99.20 við Rórshafnardeild óg kr. 44.00 við Akureyrardeild. 2

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.