Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Blaðsíða 39
41
var kulnað út áður en haustið kom. Græðlingarnir eru
mjög viðkvæmir á fyrsta árinu, meðan rótin er svo lítil
og ófullkomin.
Trjen blómguðust mjög lítið í sumar, jafnvel Reynir-
inn, sem hvert ár hefir staðið í júnílok þakinn fögrum
ylmandi blómklösum, og klætt Stöðina í sitt fegursta
skrúð, var í sumar næstum blómlaus; svo var og um
mörg önnur trje og runna. Ribsrunninn hefir einnig
blómgast mikið hvert ár og borið ósköpin öll af vísirum,
sem þó sjaldan hafa allir náð fullum þroska. í sumar
gat ekki heitið að á honum sæust blóm eða ber. Sama
má segja um Hindber, Sólber og Jarðarber.
Engra meindýra varð vart á trjám í sumar, Sniglar
sáust lítið eitt í sáðreitum, en skaða gjörðu þeir ekki
þann er teljandi sje.
Ársvöxt trjánna má sjá á meðfylgjandi töflu:
Nöfn Lengd árssprotanna
Mest Meðaltal
Acer platanoides 78 cm. 63 cm.
Alnus incana 26 - 15 -
Abies pectinata 19 - 11 -
Abies concolor 19 - 8 -
Betula odorata 22 - 11 -
Betula verrucosa 26 - 18 -
Caragana arborescens .... 33 - 17 -
Crategus 30 - 18 -
Laburnum alpinum 50 - 30 -
Larix siberica 20 - 12 -
Larix europæa 40 - 20 -
Lonicera coerulea . . . • . 20 - 4 -
Lonicera tatarica 70 - 15 -