Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1922, Blaðsíða 5
7
skilyrðum, sem lög Ræktunarfjelagsins setja fyrir rjetti,
til þess að kjósa fulltrúa.*
Pegar hjer var komið fundinum, bauð formaður fje-
lagsins fulltrúunum að skoða tilraunastöðina og Rúfna-
banann, sem þá var að vinna ofan við bæinn.
Fundi frestað til næsta dags.
Laugardaginn 24. júní var fundinum haldið áfram.
7. Reikningsnefndin lagði fram svohljóðandi álit:
a) »Að tillagaskuldir Rórshafnardeildar verði innheimt-
ar sem fyrst, eftir því sem unt verður, og fjelagatal feng-
ið sem greinlegast, bæði þaðan og frá öðrum deildum
fjelagsins.«
b) »Að stjórn fjelagsins athugi, hvort ekki muni rjett,
að trjá- og blómræktarstarfsemi Gróðrarstöðvarinnar sje
tilfærð sem sjerstakur liður á fjárhagsáætlun fjelagsins
og þannig aðskilinn frá öðrum fjárhag tilraunastöðvar-
innar.«
c) »Að verð á ýmsum eignum fjelagsins sje fært nið-
ur, vegna fyrningar og verðfalls.*
8. Nefnd sú, er kosin var, til þess að athuga fjárhags-
áætlun fjelagsins fyrir næsta ár og gera tillögur um fram-
tíðarstarfsemi fjelagsins, lagði fram tillögur sínar. Pór-
ólfur Sigurðsson var framsögumaður nefndarinnar.
Svohljóðandi ályktanir samþyktar í málinu:
a) iTil áherslu og framkvæmda tillaga um þetta mál
frá tveim siðustu aðalfundum, leggur nefndin til, að
stjórn og framkvæmdarstjóri ráði starfsmann, sem sjer-
staklega annist um jarðeplarækt, grasrækt og áburðartil-
raunir; enda gefi Ræktunarfjelagið árlega skýrslu um
niðurstöður tilraunastöðvarinnar í þessum atriðum.
b) í sambandi við þetta viljum við benda á, að Rækt-
unarfjelag Norðurlands fullnægi betur en verið hefir
eftirspurn fjelagsmanna um jarðeplaafbrigði til útsæðis,