Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1934, Page 15
1?
b. Fyrirlestrar o. fl.
Eg heíi flutt allmarga fyrirlestra á árinu bæði fyr-
ir einstök búnaðarfélög og eins á bændanámskeiðum
þeim, er haldin voru við Eyjafjörð í janúar og febrúar
síðastliðinn vetur, ennfremur við bændaskólann á Hól-
um. Mun eg alls hafa flutt um 20 fyrirlestra á árinu,
flesta um jarðrækt. Auk þessa hefi ég veitt fjölda
leiðbeininga, bæði bréflega og munnlega.
Eins og að undanförnu hefur fjöldi fólks heimsótt
stöðina á þessu ári. Flestir komu aðeins til að sjá
trjágróðurinn en þó allmargir líka til þess að kynnast
tilraununum. Má sérstaklega geta þess, að nemendur
bændaskólans á Hólum, undir stjórn skólastjórans,
Steingríms Steinþórssonar, heimsóttu stöðina síðastlið-
ið vor, og kyntu sér tilraunirnar og aðra starfsemi,
sem þar er rekin.
c. Ársritib.
Síðasta Ársrit Ræktunarfélagsins var í stærra lagi,
enda birtu öll samböndin í Norðlendingafjórðungi
skýrelur sínar í því, þó hefur sambandsdeild Búnaðar-
sambands Þingeyinga í Norður-Þingeyjarsýslu ekki
enn sent neina skýrslu. Ennfremur birtist í Ársritinu
yfirlitsskýrsla um helstu tilraunir Ræktunarfélagsins
í 30 ár.
IV. Kuabúið.
Undanfarin ár hefur verið unnið jafnt og þétt að
því að koma kúabúi félagsins í viðunandi horf og mið-
ar nú óðum í rétta átt. Það sem fyrst og fremst þurfti
gera, var að skapa skilyrði fyrir það stórt kúabú, að
samsvaraði fóðurframleiðslu stöðvarinnar, gæti borið
sig sæmilega og að þar yrði hægt að koma við nauð-
synlegu úrvali og kynbótum, Undirstaðan er fengin
2