Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1934, Page 64

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1934, Page 64
öé um og leiðbeiningum að halda, er þær geyma. í>essar ritsmíðar hafa því varanlegt gildi á sama hátt og til dæmLs handbækur. Það dettur engum í hug að lesa handbækur spjaldanna á milli um leið og þær koma út, en samt getur það haft ómetanlega þýðingu að hafa þær í bókahillunni, til þess að grípa til þeirra og fletta upp í þeim, þegar leysa þarf úr einhverju vafaatriði. Tökum nærtækt dæmi: í Búnaðarritinu 1932 er löng grein um kartöflur, eftir Ragnar Ásgeirsson, í sama riti 1933, löng grein um búreikninga, eftir Guð- mund Jónsson og að lokum í sama riti 1934 löng rit- gerð um jurtasjúkdóma, eftir prófessor Ferdinandsen. Því skyldi eg lesa þessar ritsmíðar, ef ég ætti ekki að rækta kartöflur, ekki að færa búreikninga og hefi ekki við neina jurtasjúkdóma að stríða? En ef eg nú tek sinnaskiptum og vil fara að auka framleiðslu mína með ræktun kartafla, eða finn mig knúinn til að vita nokkur reikningsleg skil á afkomu hinna ýmsu greina búrekstursins, eða ef einhver kvilli gerir vart við sig á þeim nytjagróðri, sem eg rækta, þá verður mér eðli- lega fyrst fyrir að spyrja: Hvað segir Ragnar Ásgeirs- son? Hvað segir Guðmundur Jónsson? Hvað segir pró- fessor Ferdinandsen ? Þá hafa þessar ritsmíðar, sem ég ef til vill taldi ekki ómaksins vert að skera upp úr, þegar þær fyrst birtust, fengið verðmæti fyrir mig og hagnýta þýðingu. Eg skal taka annað dæmi: í siðasta Ársriti Ræktun- arfélags Nrðurlands 1933, birtist skýrsla um tilraunir Rf. Nl. í 30 ár, sem heitir »Gró$mrtilraunir«. Eg geri mér ekki von um, að margir hafi lesið þessa skýrslu frá upphafi til enda, enda alls ekki til þess ætlast. — Flestir sem litið hafa á hana munu hafa séð, að í henni er mikið af tölum og töflum, sem ekki eru aðgengileg-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.