Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 1
Fundargerð
Aðalfundur Ræktunarfélags Norðurlands 5. sept. 1941.
Ár 1941, föstudaginn 5. sept., var aðalfundur Ræktun-
arfélags Norðurlands haldinn í húsi félagsins á Akureyri.
Fundur hófst kl. 10,30 árdegis. Fundarstjóri var kosinn í
einu hljóði formaður félagsins, Sig. Ein. Hlíðar, og
nefndi hann til ritara Stefán Árnason og Steindór Stein-
dórsson, og samþykkti fundurinn þá.
Var þá gengið til dagskrár.
1. Kosin kjörbréfanefnd: Jakob Karlsson, Júníus Jóns-
son og Ármann Dalmannsson.
Þessir fulltrúar voru mættir:
Frd cefifélagadeild Akureyrar: Ármann Dalmannsson,
Jakob Karlsson, Steindór Steindórsson, Júníus Jónsson,
Stefán Árnason og Sig. Ein. Hlíðar, varafulltr.
Þá voru og mættir: Stjórnarnefndarmaður Stefán Stef-
ánsson, Svalbarði. Hinir stjórnarnefndarmenn áður taldir
með fulltrúunum.
Formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar: Olafur Jóns-
son, framkvæmdastjóri.
2. Skýrsla framkvœmdastjóra. Ólafur Jónsson lagði
fram reikninga félagsins fyrir árið 1940, og voru þeir
endurskoðaðir af kjörnum endurskoðendum. — Skýrði
framkvæmdastjóri reikningana með nokkrum orðum og
lýsti stuttlega rekstri félagsins. Um hag félagsins tók hann
sérstaklega fram, að eignir væru tilfærðar með óbreyttu
1*