Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 30
32
í því. í vermihúsinu var káli o. £1. matjurtum sáð á svip-
uðum tíma og vant var.
En úti var sáð með fyrsta móti, en kom þó seint upp og
plöntunum fór mjög lítið fram fyrst í stað. En þó fór svo,
að allflestar matjurtirnar gáfu nokkra uppskeru, og sum-
ar sæmilega góða, eins og til dæmis höfuðkál, spínat,
rauðrófur, blómkál o. fl. Hvítkálið var yfirleitt fyrir neð-
an meðallag.
Kálmaðkurinn gerði heldur vart við sig í sumar, liann
var lireint með versta móti, sem hann hefur verið liér.
Kálinu var plantað út á dálítið mismunandi tíma og
það, sem fyrst var plantað, stóð sig best gagnvart kálmaðk-
inum. Var það vökvað tvisvar með Carbókrimp. En kálið,
sem seinna var plantað, var vökvað þrisvar með varnar-
lyfjum. Og var það ekki teljandi, sem eyðilagðist af þess-
um plöntum.
En nokkrar plöntur, sem ekki voru vökvaðar með nein-
um lyfjum, fóru allar í maðkinn.
18. desember 1942.
Jóna M. Jónsdóttir.