Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 24
26
lofti en þau tæp 3 ár, sem liðin eru síðan tilraunalögin
voru staðfest og má fyrst og fremst þakka það einmuna
árgæsku, ágætu afurðaverði og svo því, að Rúnaðarfélag
Islands hefur til bráðabirgða hlaupið undir bagga með
nauðsynlegustu styrkgreiðslur, að rekstur tilraunastöðv-
anna hefur ekki stöðvast og lent í öngþveiti á þessu tíma-
bili.
Þetta ástand er óþolandi og þýðir í besta falli, kyrstöðu
í tilraunamálum. Engri starfsemi er það jafn nauðsynlegt
og tilraunastarfseminni, að geta bygt á fjárhagsk'ga örugg-
um grundvelli. Meðan það er ekki hægt, þarf enginn að
ætla að forráðamenn tilraunastarfsins hefji nýjar fram-
kvæmdir eða taki til meðferðar ný tilraunaverkefni.
Vonandi rætist nú brátt fram úr þessu, en meðan nú-
verandi ástand helst og fé til tilraunastarfseminnar er
ekki tekið upp í fjárlög, svo tilraunastöðvarnar viti fyrir-
fram, hve miklu fé þær hafa úr að spila, hefur sti stefna
verið tekin sér hjá Ræktunarfélagi Norðurlands, að gæta
ýtrustu sparsemi, leggja ekki í neinar nýjar framkvæmdir,
en tryggja stöðinni sem bezta fjárhagslega afkomu. Vegna
hagstæðs árferðis og afurðaverðs, hefur þetta tekizt von-
um betur. A þessum tveimur árum hafa skuldir félagsins
við Ræktunarsjóð Islands verið greiddar upp, svo félagið
skuldar nú ekkert tit í veð, heldur aðeins sínum eigin
sjóðum.
Ólafur Jónsson.