Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Qupperneq 27
29
t. d. hefur Nemesía aldrei blómstrað hér eins fallega og
mikið og í sumar.
Levkoj, sem eru með allra fallegustu sumarblómunum,
verða heldur fyrir barðinu á kálflugunni (því þau eru
sömu ættar og kálið), og þó plönturnar eyðileggist ekki
alveg, þá dregur það svo mikið úr vexti þeirra.
Fjölæru blómafræi var sáð með almesta móti í sumar.
Var mikið af fræinu til frá fyrra ári. Plönturnar stóðu
vel í garðinum í haust, hvað sem veturinn gerir við þær.
Það er svo mikið vandaverk að ganga frá plöntunum á
liaustin, enginn getur fyrirfram sagt hvernig veturinn
verður, og hvernig skýli plöntunum hentar best.
Matjurtir. Það hefur margt gengið vel með matjurt-
irnar í sumar. Þó hefur kálflugan verið allmikið til erfið-
leika. Hvítkáli og blómkáli var að mestu leyti hægt að
bjarga með lyfjum, en af maírófum og radísum fór margt
illa. Fyrir þær jurtir var heldur ekki annað gert, en að
skipta um stað.
Hinn 6. og 7. maí var nokkru af matjurtum sáð út í
garði, og 29. s. m. var fyrsta kálinu plantað út.
Hinn 10. júní var plantað út nokkuð miklu af káli.
Þá var plantað í sérstakan reit í garðinum, þar sem voru
gerðar tilraunir með þrennskonar varnarlyf gegn kálflug-
unni. Og reyndist þar Sublimat best; var það reynt hér
áður með góðum árangri.
Gömlu tegundirnar, sem við höfum haft at blómkáli
og hvítkáli, gáfu góða uppskeru. Byrjað var að taka upp
kál 2. ágúst.
Jaatun kál, sem stundum áður hefur verið reynt hér og
ekki gefist vel, þroskaði stóra og góða hausa í sumar.
Gulrætur spruttu alveg ágætlega, var farið að taka þær
upp seinni partinn í júlí. Voru það aðallega Nantes gul-
rætur, sem við höfðum í sumar, áður höfðum við oft haft
Guerande, sem líka hefur gefist mjög vel.