Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1941, Blaðsíða 46
Skýrsla
Búnaðarsambands Eyjafjarðar 1941 og 1942.
I. SKÝRSLA STARFSMANNS UM MÆLINGAR.
Síðastliðin tvö ár liefi ég annast jarðabótamælingar
fyrir B. S. E. og auk þess unnið á veturna að skýrslu-
gerð fyrir Samband Nautgriparæktarfélaga Eyjafjarðar.
Eins og meðfylgjandi skýrsla urn mældar jarðabætur
hjá B. S. E. ber með sér, voru jarðabætur árið 1941
nokkuð minni en verið hafði næstu ár á undan. Lætur
nærri að árið 1941 séu jarðabætur aðeins 35% saman-
borið við árið 1939. Nokkuð er afturförin mismikil
á einstökum tegundum jarðabóta. Steinsteypubygging-
ar hafa sama sem horfið af skýrslu, einnig er tiltölulega
minna mælt af sáðsléttum, heldur en græði- og þak-
sléttum.
Nokkuð hefir þetta lagast aftur, lætur nærri að ár-
ið 1942 séu jarðabætur 60% borið saman við árið 1939.
Verst er útkoman með steinsteypubyggingar og girð-
ingar en aftur er nú framræsla lítið minni en hún
var fyrir stríð, og sérstaklega er gott til þess að vita, að
nú er tiltölulega meira af dýpri skurðum en áður.
Bæði árin hafa um 40 bændur beðið um og fengið
leiðbeiningar viðvíkjandi framræslu. Og nokkrum tíma
eyddi ég bæði árin við hallamælingar, með Pálma Einars-
syni ráðunaut, í Staðarbygðamýrum, en þar var á síðast-
liðnu vori byrjað á stóru framræslu- og áveitufyrirtæki.