Frjáls verslun - 01.02.1951, Síða 19
lega liina elztu á Norðurlöndum, frá tímum Aldin-
borgarmanna í Nesvogi við Stykkishólm árið 1585.
Var það ósk gefandans, að félagið gæfi bókina út og
léti hagnað af sölu bennar renna í húsbyggingarsjóð
V. R. Ekki hefur þó orðið úr prentun bókarinnar, og
munu fáir kunna frá því að segja. hvað þeim drætti
veldur sérstaklega. Ber nú tafarlaust að bæta úr skák
og gefa bókina út. Sama ár gaf þáverandi form. V.
R., Oddur Helgason, félaginu kr. 5.000.00 er verja
ska! til kaupa á listaverkum lil skrevtingar félags-
heimilinu. Þessi sjóður er ónotaður enn og bíður síns
verkefnis. — Seinna þetta sama ár, 1945, færðu syst-
urnar, sem unnu í happdrætti V. R. (kr. 60.000.00),
félaginu að gjöf tvö vel gerð málverk eftir Svein
Þórarinsson, sem þakklætisvott fyrir vinninginn.
Prýða málverkin nú sali félagsheimilisins. — Enn
barst félaginu góð gjöf á þessu binu sama ári. Hún
kom frá ekkju Brynjólfs heitins Þorsteinssonar verzl-
unarmanns, sem átti sæti í félagsstjórn nokkur ár og
var formaður um 3 ára bil, 1932—34. Var það mynda-
safn frá ýmsum verzlunarmótum erlendis, sem Brynj-
ólfur hafði sótt í nafni V. R. Hafði hann ánafnað
félaginu myndir þessar áður en hann lézt. Eru þær
hinar eigulegustu og munu gott innlegg í væntanlegt
verzlunarminjasafn, sem V. R. hefur nú á prjónunum
að stofnsetja. Nokkrar fleiri gamlar Ijósmyndir hafa
félaginu borizt í samskonar skyni. Þá hefur Oscar
Clausen rithöfundur gefið fyrirheit um að leggja til
safnsins ýmsa góða gripi, þá er það kemst á laggirn-
ar, en hann er mikill áhugamaður um framgang máls-
ins og hefur flutt um það fróðlegan fyrirlestur á
fundi í félaginu. — Árið 1946 var starfsmannadeild-
um V.R. afhent til eignar bankainnstæða Verzlunar-
mannafélagsins „Merkúr“, sem lagt var niður árið
1934. Nam gjöf þessi rúmum 3.300,00 krónum.
Tveir heiðursfélagar hafa verið kjörnir á tímabil-
inu: Egill Guttormsson og Hjörtur Hansson, sem
þannig voru að makleikum heiðraðir á 54. ára af-
mæli félagsins árið 1945. Sjö lieiðursfélagar hafa
látizt á sama tíma: Árni Einarsson (yngri), Hannes
Thorarensen, Jón Eyvindsson, Karl Nikulásson, Nic-
olai Bjarnason, Sigurður Guðmundsson og Thor
Jensen.
Á aðalfundi félagsins 1941 var stofnaður Styrktar-
sjóður Verzlunarmannafélags Reykjavikur. Tilgangur
hans er að styrkja ekkjur félagsmanna, þegar félags-
stjórninni þykir ástæða til. Tekna skal sjóðnum afl-
að með sölu minningarspjalda eða samskotum. Því
miður er sjóður þessi ennþá lítill og alls ómáttugur,
og væri þakklátt að verzlunarmenn hefðu hann meira
Skcmmtincfnd V.R.
Sitjandi frá vinstri: Pétur O. Nikulásson, form., og
Magnús Valdemarsson.
Standandi: Jón Eiríksson, Geir Fenger og Ólafur Finsen.
í huga. Hvatamaður sjóðstofnunarinnar var Egill
Guttormsson.
Lög félagsins voru einu sinni á þessum árum tek-
in til gagngerðrar endurskoðunar, og talsverðar breyt-
ingar á þeim samþykktar á framhaldsaðalfundi í febr.
1947. Tvær nýjar og mjög þýðingarmiklar greinar
bættust þá í lögin. Kveður önnur svo á, að félagið sé
lögformlegur samningsaðili um launakjör verzlunar-
fólks á félagssvæðinu, en í hinni felast ákvæði um
skipun launakjaranefndar.
V.R. er sem vera ber ópólitískur félagsskapur, og
er þar að finna fólk úr öllum flokkum, enda mæla
lögin svo fyrir, að félagsmaður geti hver sá orðið,
hvort heldur karl eða kona, kaupsýslu- eða verzlun-
armaður, sem orðinn er 18 ára að aldri og verið hef-
ur við verzlunarstörf a. m. k. 2 ár, eða hefur lokið
burtfararprófi frá Verzlunarskóla Islands eða öðrum
jafngildum verzlunarskóla og gangast vill undir mark-
mið félagsins. Þrátt fyrir „hlutleysið“ hefur dálítið
bólað á ])ólitískum flokkadráttum innan félags, eink-
Framhald á bls. 33.
19
FRJÁLS VERZLUN