Frjáls verslun - 01.09.1960, Blaðsíða 6
sinn á þeim stöðum innan svæðisins, þar sem að-
stæður eru beztar. Þetta þýðir m. a., að ríkisborg-
urum aðildarríkjanna er heimilt að stofna fram-
leiðslufyrirtæki, útibú og umboðsskrifstofur hvar
sem er innan markaðssvæðisins. Að sjálfsögðu gilda
bústaðarréttindin jafnt fyrir þá, sem vinna að öðru
en atvinnumálum beinlínis. Gert er ráð fyrir, að
háskólapróf og önnur próf og skírteini um atvinnu-
réttindi eins lands gildi einnig í liinum aðildarríkj-
un'jm.
5. Þjónusta
Undir þjónustu í utanríkisviðskiptum fellur sú
starfsemi, sem innt er af hendi í einu landi fyrir
annað gegn greiðslu í einhverri mynd. Takmarkanir
á slíkri starfsemi aðildarríkjanna verða einnig smám
saman afnumdar á tímabilinu.
6. Fjármagn
Höfuðskilyrði fyrir eðlilegri þróun Sameiginlega
markaðsins er það, að flutningur á fjármagni milli
hinna einstöku þátttökuríkja sé í aðalatriðum frjáls.
Þess vegna kveður sexveldasamningurinn svo á, að
þessum löndum beri að afnema smám saman allar
takmarkanir, sem ríkja á þessu sviði og trufla eðli-
lega þróun Sameiginlega markaðsins. Undanþágur
eru þó frá þessu undir vissum kringumstæðum,
m. a. sú að eitt ríki getur ekki boðið út lán á fjár-
magnsmarkaði annars lands nema með leyfi þess
síðarnefnda.
7. Samgöngur og vöruflutningar
Gert er ráð fyrir samræmingu á sviði sam-
gangna og vöruflutninga á milli aðildarríkjanna.
Á þessu sviði hefur Sameiginlegi markaðurinn fyrir
kol og stál þegar unnið mikið starf.
8. Frjáls samkeppni
Sexvelda-samningurinn inniheldur mikilsvarðandi
ákvæði varðandi samkeppni. Þessum ákvæðum er
ætlað að tryggja, að á Sameiginlega markaðnum
ríki frjáls, raunhæf og heilbrigð samkeppni, og að
komið sé í veg fyrir að framleiðendur geti myndað
með sér samtök, til að koma á einokun í einni eða
annarri mynd.
Hin frjálsa samkeppni er einmitt undirstöðu-
atriði Sameiginlega markaðsins. Hún á að tryggja
almenningi vörugæði, fjölbreytt úrval og hagstætt
verð. Frjálsa samkeppnin á að styðja að aukinni
tækni, hagsýnni rekstri í framleiðslu og dreifingu,
hún á að tryggja að framleiðsluöflin verði notuð
á sem hagkvæmastan hátt. — Hvers konar við-
lcitni til að hefta frjálsa samkeppni er sagt stríð
á hendur.
Uppbætur frá því opinbera til einstakra fyrir-
tækja eða framleiðslugreina eru almennt bannaðar.
Landbúnaðarvörur hafa þó í þessum efnum nokkra
sérstöðu.
9. Samrœming lagaákvaiða
Sexvelda-samningurinn krefst ekki samræmingar
lagaákvæða aðildarríkjanna yfirleitt, en að svo
miklu leyti, sem gildandi lagaákvæði einstakra
þeirra kunna að standa í vegi fyrir framkvæmd
Sameiginlega markaðsins, verður slíkum ákvæðum
breytt.
10. Milliríkjagreiðslur og gjaldeyrisviðskipti
Sexvelda-samningurinn gerir ekki ráð fyrir að
komið verði á sameiginlegum gjaldmiðli á Sam-
eiginlega markaðnum. Iívert aðildarríki heldur
áfram sínum gjaldmiðli.
011 sexveldin hafa þegar komið á frjálsum gjald-
eyrisviðskiptum í öllum aðalatriðum. Þau hafa
skuldbundið sig til að yfirfæra hindrunarlaust allar
greiðslur milli aðildarríkjanna í sambandi við vöru-
verzlun, þjónustu, fjármagnshreyfingar, ferðalög
og fólksflutninga.
11. Ejnahagsráðstafanir
Samkvæmt sexveldasamningnum skulu aðildar-
ríkin samræma og samstilla efnahagsráðstafanir
sínar og skoða þær í ljósi hagsmuna markaðssvæð-
isins sem heildar. Hvert ríki skuldbindur sig til að
reka þá atvinnupólitík, sem styður að stöðugu
verðlagi, tryggingu gjaldmiðilsins, viðhaldi nægrar
atvinnu og jafnvægi í greiðslujöfnuði við útlönd.i)
í þessu sambandi inniheldur sexvelda-samning-
urinn ýmis ákvæði, sem eiga að tryggja nána sam-
vinnu á sviði efnahagsráðstafana.
Það er yfirlýst stefna sexveldanna að beita sér
fyrir auknu frelsi og lækkun tolla í heimsviðskipt-
um yfirleitt.2) Þau munu samræma verzlunarstefnu
sína gagnvart „þriðju“ löndum, þannig að skilyrði
séu fyrir hendi til að reka sameiginlega verzlunar-
pólitík út á við. Þetta er^eðlileg stefna og jafn-
framt mjög þýðingarmikið atriði fyrir viðskipta-
lönd Sameiginlega markaðsins. Það er skýrt tekið
fram í sexveldasamningnum, að aðildarríkin skuli
koma fram sameiginlega í öllum alþjóðlegum stofn-
unum, sem fara með efnahagsmál, þegar um málefni
er að ræða, sem snerta sérstaklega hagsmuni Sam-
eiginlega markaðsins.3) Það er augljóst, að sex-
veklin fá þannig mjög sterka viðskiptalega aðstöðu
gagnvart öðrum Iöndum og viðskiptaheiminum yfir-
leitt.
1) Sexveldasamningurinn, § 103 ff. Ennfremur Europiiische
Wirtschaftsgemeinschaft, 2, 1958, bls. 25.
2) Sexveldasamningurinn, §110 ff.
3) Sexveldasamningurinn, § 116.
6
frjáls verzldn