Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1960, Blaðsíða 13

Frjáls verslun - 01.09.1960, Blaðsíða 13
Helgi S. Jónsson: Við afgreiðslustörf fyrir 30 árum Eftirfarandi erindi var flutt í úlvarpið á frídegi verzlunar- manna, 2. ágúst sl. Er þar í léttum tón fjallað um verzlunar- liætti fyrir þrem áralugum. Höfundur \’arð góðfúslega við beiðni Frjálsrar Verzlunar um að fá að birla erindið. Á Alþingishátíðarárinu, 1930, og á árunum þar um kring, var yfirbragð verzlunar og verzlunarmáti allfrábrugðinn því, sem nú er og vöruval talsvert annað en gerist í dag. Innfluttar matvörur og vefn- aðarvörur voru í miklum meirihluta, því að inn- lendur iðnaður og framleiðsla, var þá rétt að vakna og byrja að láta til sín taka. Það mun hafa verið eitthvað um um þetta leyti, sem „íslenzka vikan“ var haldin — auglýsingavika, til hvatningar að kaupa íslenzkar vörur. Skátafélögin útbjuggu mikla „pró- sessíu“, hvar í voru gangandi, stór líkön af dósum, flöskum, osturn, kartöflum og fleiri eftirmyndir innlendrar framleiðslu, sem þá átti í harðri sam- keppni við sams konar erlenda vöru, ekki ein- ungis vegna verðs og gæða, heldur miklu fremur vegna vantrausts, og þess að innlenda varan þótti ekki jafnfín og hin erlenda. Gamla búðarlokan var orðin talsvert forfrömuð persóna. Það þótti bara gott og nokkurt manndómsmerki að vera afgreiðslu- maður í búð og þeim mun betra, sem búðin var stærri og hafði breiðari viðskiptagrundvöll. Árin fyrir og eftir Alþingishátíðina var ég í slíkum búð- um, hin fyrri var fatadeildin hjá Veiðarfæraverzl- uninni Geysi, og eftir hátiðina lijá Tómasi, í kjall- aranum á Laugavegi 2. — Hvort því hafa ráðið hæfileikar eða heppni, skal ósagt látið — en eftir að ég tók að fást við verzlun á eigin spýtur, fór heldur að kárna gamanið, en þótti allajafna lið- tækur og lipur við afgreiðslu. Þegar huganum er rennt til baka yfir hillur og pakkhús, verður útlitið allt annað cn nú er. I „Geysi“ voru sjóklæði öll og vinnuföt innflutt, olíu- stakkarnir, olíubuxurnar, olíukápur og sjóhattar voru norsk, frá Moss, eða skozk og ensk, peysur, húfur og vettlingar voru líka innflutt, svo og annar fatnaður, sem gjarnan var þar í miklu úrvali. Hafi einhver innlendur varningur verið að nema þar land, þá fór lítið fyrir honurn á þeim árum. Um verðlag á ýmsum hlutum, er nokkuð farið að skolast, enda ekki sanngjarnt að nefna það í krónum og aurum, því svo víðs fjarri eru þær tölur þeim, sem gerast í dag, en þó mun nokkuð auðveld- ara að kaupa ýmsa hluti í dag, fyrir tímakaupið sitt, en var þá. Enskar húfur kostuðu 3,75 og þær allra fínustu 4,05 og upp í 4,50 til 5 krónur, með ekta svitaskinni og fíberderi, sem ekki bögglaðist eða blotnaði í gegn. Tímakaupið var þá króna eða króna og nokkrir aurar. — Kommanderpakkinn kostaði þá krónu og Fíllinu 50 aura. — Striga- vettlingar kostuðu krónu, leðurklossar með tré- botnum kostuðu 13 til 15 krónur og „mélstakkur“ fast uppundir 20 krónur. 10 tíma kaupið nú mundi duga allt eins vel til svipaðra innkaupa, eða þó keyptur væri Kamelpakki í stað Kommander og innlendur plaststakkur í staðinn fyrir „mélstakk- inn“. Það þótti áberandi „flott-ræfils-háttur“ að kaupa dýrustu hálsbindi fyrir 5 krónur — því þá voru 5 krónur talsvert mikið fé. — Hálf-flaska af þræl- sterku púrtvíni kostaði 3,25 og stór kolla af hvítöli 40 eða 50 aura. — Það var lieil fræðigrein að þekkja sjófatnaðinn og vart mögulegt að komast þar til botns, því að skoðanirnar um gæði og styrkleik voru nær ]jví jafnmargar og þcir, sem keyptu. Unr V.A.C. og Hood gúnnnístígvélin voru þó flestir sammála og bláu peysurnar ensku, með þétta brjóstinu, þóttu góðar, enda þrældýrar, kostuðu yfir 20 krónur — og entust árum sarnan. Enn þann dag í dag er gaman að skoða búðargluggana í Geysi. Þó verzlunin hafi flutt yfir götuna og 30 ár umbrota og átaka séu liðin, þá eru gluggarnir þar eins og þeir voru — enginn abstrakt-vírus hefir vinklað og skælt þar útstillingarmátann. — Þar er varan sýnd eins og hún er, og sem rnest og flest af henni — komi cittlivað nýtt, þá er þvi bætt FRJALS VERZLUN 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.