Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1960, Síða 7

Frjáls verslun - 01.09.1960, Síða 7
Óvenjuleg hengibrú Hengibrýr hanga að jafnaði í vírum, sem strengdir eru milli tveggja tuma. En nýlega hefur verið opnuð til umferðar nýstárleg hengibrú yfir Rínarfljót, við Köln, sem hangir í strengjum frá einum turni. Turninn er nær 77 metra hár, og frá honum ganga jafnlangir strengir í báðar áttir, sem halda uppi mislöngum köflum brúarinnar, eða 304 m og 152 m. Lengra hafið nær yfir aðalsiglingaleið- ina. Samtals er brúin 692 m á lengd og eru steyptir brúarbogar á landi við hvorn enda þess hluta brúarinnar, sem turninn heldur uppi. Brúin er 24,5 m á breidd og eru á henni bílabraut, tvær línur fyrir &porvagna. hiólreiðabraut og gangstétt. Stórar brýr eru meðal mikilfenglegustu mannvirkja, sem byggð eru. Og flestar hinna stærstu eru hengibrýr, þó að marg- ar bogabrýr séu lengri. Brúin yfir Gullna hliðið hjá San Fransiskó, hefur lengi ver- ið frægust allra hengibrúa. Nú hefur verið byggð enn stærri hengibrú í Bandaríkj- unum, og er sú yfir Mackinac-sund, milli Michigan- og Huron-vatns. Stærst verður þó brúin yfir „The Narrows", sem á að tengja saman Staten Island og Long Is- land við New York, en þar er aðalsigl- íngaleiðin til borgarinnar. — Danir. sem hafa byggt tvær miklar brýr, Litlabeltis- brúna og Stórstraumsbrúna, hafa lengi haft hug á að byggja tvær aðrar stórar, sem sennilega yrðu langmestu brýr í heimi, þ. e. yfir Eyrarsund og Stórabelti. Myndin til vinstri sýnir hinn óvenjulega, þríhyrnda turn. Neðri myndin sýnir brúna í heild, en í baksýn er dómkirkjan í Köln. FRJALS VERZLUN 7

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.