Frjáls verslun - 01.09.1960, Side 15
okkar innlenda markaði og verðið lágt og lækkandi
eftir því sem á sumarið leið — blómkálið um og
innan við eina krónu og annað eftir því. — Af
ávöxtum var meir fjölbreytni, bananar, jarðarber,
og ýmiss konar önnur ber, ferskjur og plómur, fyrir
utan hin „klassísku“ epli og appelsínur. Bananar
kostuðu um 25 aura stykkið, en ekki þótti öllum
þeir góðir fyrst í stað. Norska hnausþykka berja-
saftin seldist ekki mikið, hún þótti nokkuð dýr,
kostaði 4,25 pottflaskan — en það var ekki „litað
sykurvatn með kjörnum“, frekar mátti segja að
það væru rennandi, hýðislaus ber.
Hörð sctmkeppni
Lífið í kjallaranum hjá Tómasi var talsvert um-
svifamikið, og lítill tími til að horfa á alla þá
fallegu fætur, sem fóru um götuna. Þar voru marg-
ir fastir viðskiptavinir, sem hver hafði sínar venjur
og varð að afgreiða á sérstakan liátt — sumir
voru nokkuð sérvitrir, en aðrir vissu, hvað þeir
vildu, og þýddi ekki að viðhafa ncitt kæruleysi í
afgreiðslu til þeirra, hvort sem þeir komu sjálfir
eða pöntuðu í síma. Skemmda eða slæma vöru
var ekki hægt að fá hjá Tómasi — það var öllum
starfsmönnum gert ljóst, því að samkeppni var
hörð um viðskiptin — ef til vill harðari en nii —
og vöruvöndun var öruggasta leiðin til að halda við-
skiptum og auka þau — því að þá var fólki talsvert
sýnna um, hvað það fékk fyrir aura sína, heldur en
nú gerist. Dómur viðskiptamannanna var ekki allt-
af öruggur, og er minnisstætt um það eitt atvik,
sem nú er óhætt að segja frá, því að bæði hús-
bóndi minn og sú ágæta frú, er um ræðir, eru farin
á fund feðra sinna. Frúin hafði fengið heimsend
þessi indælis-hænsni á miðvikudagskvöldi, en ein-
hvern veginn fór svo, að þau voru ekki notuð þá
— heldur á laugardegi. Hringdi frúin þá með þjósti
nokkrum og sagði, að þessi hænsni, sem hún hefði
verið að fá, væru bókstaflega úldin og lyktandi, og
krafðist hún þess að fá nýar „púddur“ þegar í
stað. — Stráknum var þegar kennt um mistökin,
og til að fullkomna krossfestinguna varð ég að
fara með ný hænsni til frúarinnar og sækja þau
úldnu — og var mér stranglega bannað að leið-
rétta misskilninginn, en heimilt að biðja afsökunar
á mistökunum! Aftur á móti voru aðrar frúr, ungar
þá, og byrjendur í búskap, sem gjarnan nutu ráða
afgreiðslumannanna um, hvað skyldi hafa til matar,
°g ósjaldan fylgdi þá með, hvernig skyldi matbúa
og hvað þyrfti mikið handa tveimur. Afgreiðsla í
kjötbúð er ekki langt frá því, sem nú er kallað
»fag“ — nokkra þekkingu og athygli þarf til að
leysa það starf vel af hendi; það er ckki gott fyrir
afgreiðslumann að vita ekki, hvað er bógur, huppur
eða lundir — eða hvernig rétt teknar kótilettur
eru. — Kann að vera, að kjörbúðirnar séu að
leysa afgreiðslumennina af hólmi — nú eru menn
á bak við, sem skera, saga og pakka, svo er það
fólksins að þekkja, hvað það vill.
Á þessum árum, hjá Tómasi, gerðist margt
skcmmtilegt bæði innan búðar og utan. Það voru
dökkar hliðar á tilverunni, engu síður þá en nú
— menn þurftu að velta hverjum eyri í hendi
sér til að láta endana ná saman, engu síður búðar-
maðurinn en hinn, scm í búðina kom, þó að búðar-
maðurinn hefði fasta og örugga greiðslu á sínu
175 til 200 króna mánaðarkaupi, ef ekki var búið
að höggva freklega í það áður en mánaðamótin
komu. Veran hjá Tómasi fékk svo snöggan endi —
mér var einn morgun bent á það, að réttara væri
fyrir mig að gefa mig einvörðungu að því að frelsa
þjóðina og hætta að höggva kjöt í hjáverkum —■
en það er önnur saga.
★
— Það kann að vera, að einhverjum þyki fá-
fengilegt að vera að rifja upp nokkur brot úr starfi
afgreiðslumanns í búð um það bil, scm Alþingis-
hátíðin var haldin, og gera það í þeim tón eins og
um fornsögulegar heimildir væri að ræða — en
þó ekki séu liðin nema 30 ár síðan, eru breytingarn-
ar orðnar svo miklar og margvíslegar á kjörum,
vörum og verzlunarháttum, að ekki er fjarri lagi
að tala um það sem löngu liðna tíð. Enda þótt
margt hafi breytzt, hefur afgreiðslumaður í búð
sömu meginskyldum að gegna sem f.yrr, starf hans
er í tveim höfuðþáttum, sem báðir eru saman-
slungnir — annar snýr að verzlun hans og hús-
bændum, og er trúmennska, lipurð og lifandi áhugi
á starfinu, hinn snýr að þjónustunni við kaupendur
— skilningur á þörfum þeirra, öryggi og sannar
upplýsingar um vörugæði og verð.
Verzlun öll, dreifing framleiðslu- og nauðsynja-
vara, er það snar þáttur í öllu lífi fólks, að fátt
eitt stendur þar fyrir utan. — Allt okkar daglega
strit er á einhvern hátt tengt verzlun — allt, sem
við vinnum fyrir, fcr á einhvern hátt um greipar
verzlunar, og allt, sem við höfum umleikis, er á
einn eða annan luítt tengt verzlun. — í þessari
hringrás er afgreiðslumaðurinn í búðinni mikilvæg-
ur í starfi — það hefur ekkert breytzt á þeim 30
árum, sem liðin eru frá hinni sælu Alþingishátíð.
Það eru aðeins starfshættir, sem hafa breytzt, bún-
aður sölubúða og vöruvalið talsvert. Þegar árin líða
lengra fram, verður ef til vill hægt að minnast
verzlunarháttanna í dag á allt að því fornfræði-
legan hátt. En þó að líði að árinu 2000, hygg ég
að búðarmaðurinn — sölumaðurinn — afgreiðslu-
maðurinn — firmist einhvers staðar, fyrir innan
eitthvert búðarborð.
FRJALS VERZLUN
15