Frjáls verslun - 01.09.1960, Page 20
Austurbæjarúfibú
Landsbankans
Landsbankinn stofnaði fyrsta útibú sitt í Reykja-
vík 20. júní 1931, og fékk það inni í tvcim herbergj-
um á Klapparstíg 29. Þetta útibú, sem nefnt var
Austurbœjarútibú, starfaði i sömu húsakynnum þar
til 28. maí sl., að það fluttist í ný húsakynni, að
Laugavegi 77. í janúar 1949 opnaði bankinn ann-
að útibú á Langholtsvegi 43, Langholtsútibú. Bæði
þessi útibú voru rekin sem svokölluð sparisjóðs-
útibú. — Þau hafa annazt innlánsviðskipti í spari-
sjóði og hlaupareikningi, innleyst ávísanir við-
skiptamanna á Landsbankann og aðra banka, og
Langholtsútibú hefir auk ]>ess lcigt út geymslu-
hólf og annazt innheimtuþjónustu fyrir nokkrar
opinberar stofnanir.
Þegar aðalbankinn stækkaði afgreiðslusalinn í
Austurstræti 11, árið 1940, með viðbyggingu með-
fram Pósthússtræti, var litið svo á af stjórnendum
bajikans, að nú væri séð fyrir þörfum hans, hvað
afgreiðslu snerti, um langa framtíð. En heimsstyrj-
öldin síðari og peningaflóðið, sem fylgdi í kjölfar
gönguleysi á landi og í lofti og skortur vetrar-
atvinnu. Strákavegur og lítill flugvöllur eru
verkefni, sem viðkomandi landsyfirvöld geta
ekki lengur óunnin látið. Og fólkið, sem þjóð-
hagsleg nauðsyn heimtar, að hér sé til staðar
vor, sumar og haust, vegna síldarvertíðar og
síldarvinnslu, þarf frekari verkefni en nú eru til
staðar vetrarmánuðina, til að vel sé um hag þess
og afkomu. Þýðing þessa síldarbæjar og innlegg
í þjóðarbúið hljóta að knýja fram vinnu og
verkefni til handa þeim, sem hér búa nú við at-
vinnuleysi í skammdegi vetrarins.
VI.
Þegar þessi orð eru rituð, er sól yfir Ilólshyrnu.
Fjöllin speglast í sléttum sjávarfleti. E. t. v. lief-
ur það verið á slíkum sólbjörtum júnídegi, er
Þormóður rammi, hinn fyrsti Siglfirðingur, sigldi
inn fjörðinn, að eyri þeirri sem við hann er
kennd, og kaupstaðurinn stendur nú á. í slóð
Þormóðs ramma sigla í dag skip eítir skip, drekk-
hlaðin síld. Þau mynda þéttan skóg siglutrjáa
á firðinum og undirstrika nafngift landnáms-
mannsins: Siglufjörður.
Þegar saltað er á hverju „plani“, reykháfar
spúa þétturn mekki til himins og Siglfirðingar
leggja nótt við dag í starfi, er enn að verki atorka
og baráttugleði hins fyrsta Siglfirðings, sem ekki
vildi láta hlut sinn fyrir neinum.
Siglufirði 2G. júní 19G0
Stefán Friðbjarnarson
(lleimildir: Aldarminning Siglufjarðar, Siglufjarðarprestar og
Landnámabók.)
(Olafur Ragnarsson tók myndirnar, sem fylgja greininni.)
20
FRJÁLS VERZLUN