Frjáls verslun - 01.09.1960, Page 22
Sigurbjörn Siglryggsson, útibússtjóri
Til þess er æthizt, að viðskiptamenn bankans
geti fengið þarna alla þá sömu almennu banka-
þjónustu og aðalbankinn í Austurstræti veitir nú.
Auk venjulegra sparisjóðs- og hlaupareikningsvið-
skipta, getur viðskiptamaðurinn fengið afgreiðslu
á öllum tegundum erlendra gjaldeyrisviðskipta, að
sjálfsögðu samkvænit þeim reglum, sem uin þau
viðskipti gilda á hverjum tíma. Þetta á jafnt við
um kaup og sölu á erlendum tékkum, ferðatékkum
og erlendri mynt, sem og yfirfærslur, bréflegar og
símleiðis, innheimtu á erlendum kröfum og opnun
erlendra ábyrgða. Ennfremur annast útibúið kaup
og sölu á innlendum ávísunum, afgreiðslu á inn-
lendum símgreiðslum, innlendum innheimtum svo
og hvers konar fyrirgreiðslu innanlands- og utan,
sem bankar annast að jafnaði.
Útibúið hefir stórar og öruggar neðanjarðar-
geymslur til varðveizlu á verðbréfum og öðrum
verðmætum, sem viðskiptamenn óska að láta bank-
ann geyma og annast um. Auk þess mun útibúið
leigja út geymsluhólf og afnot næturhólfs. Má sér-
staklega benda á það mikla hagræði, sem fyrirtæki,
einkum verzlanir, geta liaft af notkun næturhólfs.
En vægt gjald er tekið fyrir þá notkun.
Eins og áður er sagt, var það hið gamla Austur-
bæjarútibú bankans, sem flutti starfsemi sína í
nýja húsið og jók hana samtímis svo, að nú tekur
hún til allrar almennrar bankastarfsemi. Þegar
bankastjórnin á sínum tírna ákvað, að þetta skyldi
gert, var henni ljóst, að viðskipti, sem byggð höfðu
verið upp á 30 árum á sama stað, hlutu að meira
eða minna leyti að vera bundin næsta umhverfi
staðarins. Þegar útibúið flyttist úr þessu umhverfi,
yrði ekki hjá því komizt að opna annað útibú á
svipuðum slóðum og lil að gegna svipuðu hlutverki.
Þess vegna var þegar í upphafi ákveðið að sam-
hliða flutningi Austurbæjarútibús skyldi annað lítið
útibú, fyrir sparisjóðs- og hlaupareikningsafgreiðsl-
ur, opnað sem næst þeim stað, er útibúið áður stóð.
Þetta nýja útibú var opnað á Laugavegi 15 sam-
tímis því sem hitt flutti, og var það nefnt Vega-
mótaútibú, en Vegamótastígurinn opnast út á Lauga-
veginn gegnt útibúinu. Viðskiptamönnum bank-
ans, sem höfðu viðskipti við Klapparstígsútibúið
var það auðvitað í sjálfsvald sett hvort þeir vildu
flytja viðskipti sín í Vegamótaútibú eða halda
áfram viðskiptum í hinum nýju húsakynnum Aust-
urbæjarútibús.
Ilinn öri vöxtur borgarinnar síðustu áratugina
hefir fyrst og fremst beinzt í austurátt frá gamla
miðbænum. í „Austurbænum“ eru nú að rísa upp
ný iðnaðar- og verzlunarhverfi. Með byggingu hins
nýja Austurbæjarútibús vill Landsbankinn auð-
velda viðskiptamönnum sínum í þessum nýju
hverfum aðgang að almennri bankaþjónustu.
Sigurbjörn Sigtryggsson, sem undanfarin ár hefir
starfað sem fulltrúi í gjaldcyrisdeild aðalbankans
og fjöldi viðskiptamanna bankans þekkir af störfum
hans að gjaldeyrismálum, var ráðinn útibússtjóri
Austurbæjarútibús. Bókari útibúsins er Sveinn El-
íasson og gjaldkeri Jón. Júl. Sigurðsson. — Hin
nýja bygging Landsbankans er 4300 m3 að stærð og
rúmir 2002, — 5 hæðir, auk kjallara. í kjallaranum
eru peninga- og verðbréfagcymslur og geymsluhólf,
sem leigð eru út til viðskiptamanna. Ennfremur er
þar rúmgott geymslurými til annarra nota. Á fyrstu
hæð er afgreiðslusalur útibúsins, og á annarri hæð
skrifstofur fyrir starfsemi þess. Ekki er enn lokið
við innréttingar á 3. og 4. hæð, en á 5. hæð er íbúð
húsvarðar og kaffistofa starfsfólks.
★
Á þeim tíma sem liðinn er frá opnun útibúsins
hefur starfsemin gengið mjög vcl. Tekin hefur verið
upp sú skemmtilega nýbreytni að skreyta glugg-
ana, sem fágætt er, ef ekki einsdæmi í íslcnzkum
banka. Þar hafa verið sýndir gamlir íslenzkir pen-
ingaseðlar og nú eru til sýnis seðlar frá öllum Norð-
urlöndum. Mun ýmislegt fleira að sjá síðar í glugg-
um þessum.
22
FRJÁLS VERZLUN