Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1963, Side 4

Frjáls verslun - 01.12.1963, Side 4
Stjórnarráð Islands og líkneski aí Hannesi Hafstein, fyrsta íslenzka ráðherranum andi fyrir íslendinga. Til þeirra var oft stofnað til þess að ganga frá málefni, er sérstaklega snerti hags- muni þeirra tveggja ríkja, sem um var að ræða, en það varð einnig svo í framkvæmd hjá Dönum, að ef þeir gerðu tvíhliða samning við annað ríki létu þeir íslendinga vita um slíkt ef þeir kynnu að vilja ganga, um leið eða síðar, frá sams konar samningi. Sem. dæmi má nefna ef Danir gengu frá samningi við eitthvert nágrannaríki um að forðast tvískött- un. Ef íslendingar áttu líka hagsmuna að gæta í þessu ríki út af skattamálum var oft gengið frá hliðstæðum samningi fyrir ísland um leið eða skömmu síðar. Hér var ekki um sameiginlega samn- inga að ræða fyrir ísland og Danmörku annarsveg- ar og samningaríkið hinsvegar heldur var það föst regla að gerður var sérsamningur fyrir ísland, eins og lika sjálfsagt var, en þetta sýndi þriðja ríki skýj't og greinilega fullveldi íslands og algert sjálf- stæði þess í utanríkismálum gagnvart Danmörku og öðrum ríkjum. Þegar Danir komu þannig fram fyrir Islands hönd var það föst regla, hvort sem það var utanríkisráðherrann danski eða sendiherra eða annar fulltrúi fyrir hans hönd, að orðin „Fyrir ísland“ voru sett fyrir ofan undirskriftina. Það mun aðeins einu sinni hafa komið fyrir á þessu tímabili, að íslendingar skrifuðu undir milliríkja- samning og voru það norrænu gerðardómssamn- ingarnir, sem undirskrifaðir voru á Þingvöllum á Alþingishátíðinni 1930, og kostaði það mikla fyrir- höfn að fá Dani til að fallast á að svo yrði gcrt. Trúnaðarmaður í danska utanríkisráðuneytinu Til þess að tryggja, að samstarfið á sviði utan- ríkismála gæti orðið sem bezt og hagsmuna Is- lands gætt á forsvaranlegan hátt, voru sett nokkur frekari ákvæði í 7. grein sambandslaganna, og skal 4 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.