Frjáls verslun - 01.12.1963, Blaðsíða 17
Konur í síldarvinnu
inn eftir Tómas Guðmundsson skáld, en frumsamd-
ar ritsmíðar fyrir bókina eru eftir tvo vini Gunn-
laugs, þá Eggei’t Stefánsson söngvara og rithöfund
og Ríkarð Jónsson myndhöggvara. Það varð
skammt á milli þeirra vina, Eggert lézt nokkrum
mánuðum síðar en Gunnlaugur. Þeir þekktust vel
og lengi, fóru ungir utan og urðu einna mest.ir
heimsborgarar íslenzkra listamanna, en aldrei fengu
Jieir sig til að kveðja ísland að fullu, þeir gátu
ekki án þess lifað, svo sem verk þeirra bera ljós-
asta vottinn um. Eggert hefur að einkunnarorðum
ritgcrðar sinnar upphafslínurnar úr Gunnarshólma:
„Skein yfir landi sól á sumarvegi", og það er ekki
tilviljun, því honum kom alltaf Jónas Hallgrímsson
í hug, er hann kom inn í vinnustofu Gunnlaugs og
fann skyldleikann í list þeirra.
Margrómaðar eru mannamyndir Gunnlaugs, en
hann var ekki við þá einu fjöl felldur. Undurfagr-
ar eru fjölmargar sumarmyndir úr íslenzku lands-
lagi, og þá ekki síður myndir hans frá sjávarsíð-
unni (svo gerólíkar sem þær eru myndunum eftir
nafna hans, scm valið hefur sjóinn fyrir sérsvið),
og birtast hér nokkur sýnishorn þeirra mvnda lir
hinni stórfögru bók.
G.B.
FiskaðgerS
FR.TALS VFRZLTJN
17