Frjáls verslun - 01.12.1968, Page 19
FRJAL5 VERZLUN
11
MINNKANDI FJÁRRÁÐ OG MIKID
FRAMBOÐ HALDA
FASTEIGNAVERDI í SKEFJUM
IbúSarverS hefur sfaSnað þrótt fyrir aukinn kostnað.
Töluverð hreyfing er á fast-
eignamarkaðinum um þessar
mundir, og hefur hún verið nokk-
uð stöðug um skeið. Þó hefur
íbúðaverð ekki hækkað, þrátt fyr-
ir gengisbreytingu í fyrra og er
það m. a. vegna minni fjárráða
fólks og mikils framboðs á mark-
aðinum. Erfitt er að áætla fjölda
fasteigna, sem í boði eru, því að
margar eignirnar eru hjá fleiri en
einum fasteignasala. Þó mun á-
ætlað, að um 300 eignir séu í
boði.
Margir eigendur láta ekki ota
eignum sínum um of og geta ieg-
ið tii þess persónulegar ástæður.
Almennt mun þó skortur á góðum
og vönduðum íbúðum. Auðveld-
ast er að selja nýlegar 2ja og 3ja
herbergja íbúðir í sambýlishús-
um. Eftirspurn hefur verið nokk-
uð jöfn, en meira umstang er við
söluna en áður. Þurfa því fast-
eignasalarnir að leggja mun meiri
vinnu í það að selja hverja íbúð
en áður.
Töluvert mikið er um, að fólk
hafi ráðist í of erfiðar byggingar,
og framboð á hálfkláruðum íbúð-
um er mikið. Veldur þessu, að
fólk hefur vanmetið markaðinn,
þar eð það hefur ekki gert sér
ijóst, að tímarnir eru breyttir.
Áður hækkaði kannski 2ja her-
bergja íbúð um allt að 10 þúsund
krónur á mánuði. Slíkir tímar
eru liðnir og ævintýralegar sölu-
sögur heyrast nú æ sjaldnar.
íbúðir eru mjög misdýrar eftir
borgarhlutum. Dýrustu einstakl-
ingsíbúðirnar eru t. d. á Austur-
brún. Verð þeirra er oft mjög
fjarri veruleikanum og komið
hefur fyrir, að ein slik íbúð hafi
selzt fyrir verð, er hver 2ja her-
bergja íbúðareigandi gæti verið
ánægður með. íbúðarverð við
Háaleitisbraut, Safamýri og Álfta-
mýri er ívið hærra en annars
staðar, svo og verð íbúða í Vest-