Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 25
FRJÁLS VERZLUN
13
FYRIRTÆKI
MIKILL KOSTUR AD REKA VERZLUN
SAMHLIDA FRAMLEIDSLU
Óskir neytenda í beinu sambandi við framleiðsluna.
ÞEIR eru ekki svo fáir íslending-
arnir, sem ganga í Kóróna fötum
í dag, og þeim fjölgar sjálfsagt til
muna á næstunni, því fyrirtækið
Sportver hf. er enn að auka fjöl-
breytni í litum og áferð. Sportver
hf. er fyrirtæki, sem er vel rekið
og rösklega, enda eru ungir menn
við stjórnvölinn og þeir vita, hvað
þeir vilja. Frjáls verzlun hitti tvo
af eigendunum, Guðgeir Þórarins-
son og Björn Guðmundsson, að
máli fyrir skömmu og ræddi Iítil-
lega við hann um verksmiðjuna
og verzlunina Herrahúsið, sem
rekin er í tengslum við liana.
„Okkur finnst vera mikill kost-
ur að reka jafnframt verzlun, þar
sem við seljum framleiðslu okkar,
ekki sízt, þegar hún nær vinsæld-
um og gengur vel. Það hjálpar
líka til við að komast að því, hvað
viðskiptavinir okkar vilja, hvers-
konar föt, hverskonar snið og
hvaða liti. Og við reynum auðvit-
að eftir beztu getu að verða við
þessum óskum. Við gei'um líka
ráð fyrir að geta það í enn ríkara
mæli hér eftir. Þótt gengisfelling-
in komi líklega til með að minnka
fatakaup, þá er einnig trúlegt, að
innflutningur minnki. Við ættum
þannig að fá stærri hluta af mark-
aðinum og getum þá leyft okkur
meira í fjölbreytni.“
„Nú finnst mér íslenzkar verzl-
anir hafa fremur lítið úrval á boð-
stólum, um 90% af fatnaði eru
líklcga þessi eilífu dökkgráu föt.
Haldið þið, að þetta sé að breyt-
ast?“
„Örugglega, við höfum orðið á-
þreifanlega varir við það. Það eru
auðvitað ýmis tízkufyrirbrigði,
sem skjóta upp kollinum, og koll-
varpa allri hefð í klæðaburði, en
við skulum ekki reikna með því.
Við höfum jafnan reynt að fara
milliveg. En við höfum tekið eftir
því, að smekkur fólks er mjög að
breytast, og efni, sem við hefðum
ekki vogað okkur að setja á mark-
aðinn fyrir nökkrum árum, seljast
nú vel. Þetta á einkum við um
liti. Það er að verða léttara yfir
klæðaburði fólks hér, enda var
það óhjákvæmilegt. Menn ferðast
mikið í dag og sjá einnig fjöldan
allan af tízkublöðum svo það er ó-
hjákvæmilegt, að það eigi þátt í
að skapa smekk þeirra.“
„Nú er slæmt hljóðið í mörg-
um iðnaðar- og verzlunarmönnum,
— hvernig lízt ykkur á?“
„Verksmiðjan er nú orðin fimm
ára gömul ,og Herrahúsið einu ári
yngra. Þótt á ýmsu hafi gengið í
efnahagslífi þjóðarinnar hefur
Guðgeir Þórarinsson og Björn Guðmundsson.