Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1968, Side 20

Frjáls verslun - 01.12.1968, Side 20
12 FRJALS VERZLUN urbænum, sem þó hefur dalað við bæjarhúsin á Meistaravöllum. Þá hafa íbúðir í Breiðholti einnig orðið fyrir verðlækkun, vegna sambýlishúsa Framkvæmdaáætl- unarinnar. Heyra fasteignasalar gjarnan þær viðbárur, er þeir bjóða íbúðir þar, að bæði bæjar- húsin og hús Framkvæmdaáætl- unarinnar fæli frá. Þá hefur frá- gangur hverfanna einnig mikið að segja. Fólki óar við að flytjast í hverfi, sem langt eiga í land, hvað skipulag og frágang varðar. Fyrir nokkrum árum var Ár- bæjarhverfi mjög óvinsælt og erf- itt var að selja þar íbúðir. Það er nú liðin tíð. Hraunbær er nú brátt sú gata, er hefur flesta íbúa, og er hlutfallslega mjög lítil hreyfing á markaðinum þar. Vonandi stendur Breiðholtshverfið til bóta í þessu tilliti. Þar er nú lítil eftir- spurn eftir íbúðum. íbúðabygg- ingar hins opinbera kunna þó að tefja fyrir því, en spurningin er í rauninni, hvernig unnt verði í framtíðinni að leysa það vanda- mál, sem þær skapa, sem virðist vera af félagslegum toga spunnið. Segja má, að ógerlegt sé fyrir ungt fólk, sem af eigin rammleik vill eignast þak yfir höfuðið, að festa kaup á íbúð, nema það sé í lífeyrissjóði. Sé það fullgildur meðlimur lífeyrissjóðs, kemst það af með 150 til 200 þúsund krónur. 2ja, 3ja og 4ra herbergja íbúðir kosta yfirleitt um eina milljón króna upp í 1300 þúsund. Yfir- leitt verður seljandi að lána helm- ing kaupverðs. Sé um nýbygging- ar að ræða, fæst lán frá Húsnæð- ismálastjórn ríkisins, en af- greiðslufrestur þar er nú minnst hálft annað ár. Þá mun Spari- sjóður Reykjavíkur og nágrennis lána til íbúðabygginga. Ungt fólk, sem fær sér íbúð í dag, kaupir hana yfirleitt tilbúna, geti það ekki unnið í henni sjálft og þurfi að kaupa alla vinnu. Hins vegar sé það iðnlært eða eigi ein- hvern slíkan að, ræðst það í bygg- ingu. Ungu fólki væri það mikil kjarabót, fengi það aðild að bygg- ingarsamvinnufélögum. í slíkum félagsskap á það enn betri mögu- leika en ella. Lítil eftirspurn er nú eftir verzlunar- og iðnaðarhúsnæði og brask með lóðir er algjörlega úr sögunni. Segja má, að íslendingar séu sjúkir í mati sínu á fasteignum. Menn hafa fjárfest, svo mikið sem þeir hafa getað, tekið lán og ætl- ast til að geta borgað það upp með smákrónum. Þetta hlýtur nú að breytast, verði áframhald á því, sem verið hefur síðustu miss- eri. Greinilegt er, að ibúðaverð hefur staðnað, þrátt fyrir aukinn kostnað og gengisbreytingu í nóvember í fyrra. Við höfum einka- umboð fyrir þessa einstöku dönsku gœðavöru. VERÐLISTINN v/Laugalæk - Sími: 33755 Suðurlandsbraut 6, sími: 83755 Laugavegi 31 — II. hæð Mobett er kvalitet der holder /7/Z.7/////Í

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.