Frjáls verslun - 01.12.1968, Side 27
FRJALS VERZLUN
15
HALLDÓR BLÖNDAL skrifar um:
JÓLABÆKUR 1968
Bókaflóðið er í rénum, þegar
þessar línur eru ritaðar. Ekki er
enn séð, hverjar verða metsölu-
bækurnar fyrir þessi jól, að
slepptum Laxness. Núna, 12. des-
ember, er KRISTNIHALD UND-
IR JÖKLI uppselt hjá forlaginu,
Islendinga
sagna ~
útgáfan
KJÖRGARÐI, LAUGAVEGI 59,
SÍMI 14510, PÓSTHÓLF 73.
argus
Konunga
sögur
3 bindi
verð kr. 1.260,00
Edchir
4 bindi
verð kr. 1.680,00
Íslcndinga
sögur
13 bindi
verð kr. S.4f>0,(K)
Ryskupa
sögnr
og Sturlunga
7 bindi
verð kr. 2.940,00
Allar bókaverzlanir
taka á móti
áskriftum og veita
nánari upplýsingar.
þetta mikla upplag allt upp urið
og hefur þó eflaust skipt þúsund-
um eintaka. Er það líka sízt að
undra, þvílika yfirburði sem Lax-
ness hefur umfram önnur skáld
hérlendis; ber líka bókmennta-
þroska þjóðarinnar gott vitni.
Hér verður ekki farið í spá-
dóma um metsölubækurnar. En
ekki er ólíklegt, að ævisaga Jóns
í Belgjagerðinni eftir Hagalín
verði ofarlega á blaði. íslendingar
hafa ávallt verið fyrir ævisögur.
Og það er skiljanlegt og gott. í
þessu litla þjóðfélagi lærum við
betur að meta einstaklinginn og
skilja bresti hans, heldur en með
milljónaþjóðum. Saga okkar er
líka öðrum þræði saga einstakl-
inganna. Ég hef heyrt þetta kall-
að manndýrkun, þegar þáttur ein-
staklingsins er þannig dreginn
fram. En það er ósatt. Þetta er
miklu fremur mannskoðun. Og
hún er holl.
Af svipuðum toga er EYFIRÐ-
INGABÓK séra Benjamíns Krist-
jánssonar, þar sem eru sagnaþætt-
ir frá Eyfix-ðingum fyrri alda, svo
sem af Ólafi timbui'manni Briem
og af Jóhönnu fögru eða af brúð-
kaupinu á Stóruborg. — Ellegar
SÖGUR OG SAGNIR AF SNÆ-
FELLSNESI, þar sem Óscar Clau-
sen segir frá sérkennilegum og
sérstæðum Snæfellingum. Eða þá
bókin um séra Friðrik, rituð af 20
vinum hans, og loks nýjustu þætt-
ir Tómasar Guðmundssonar og
Sverris Ki'istjánssonar.
Þá er og sennilegt, að mörgum
þyki bók Þorsteins Thorarensens,
GRÓANDI ÞJÓÐLÍF, fýsileg, og
ugglaust mun 1918 Gísla Jónsson-
ar seljast vel, ef marka má fyrri
reynslu um hinn lifandi áhuga
manna á afrekum aldamótakyn-
slóðai’innar. Þá er og hið dulræna
ofarlega í mörgum og ekki ólík-
legt að séra Sveinn Vikingur njóti
þess, — svo og síðasta bók Jónas-
ar heitins Þoi'bergssonar, fyrrvei'-
andi útvarpsstjói’a, BROTINN ER
BRODDUR DAUÐANS. Og síðast
en ekki sízt mun eflaust hin glæsi-
lega útgáfa á FÖGRU VERÖLD
Tómasar freista margra. Um hana
fórust Baldvin Tryggvasyni hjá
Almenna bókafélaginu svo orð:
„Fagra veröld er að mínum
dómi ákaflega vönduð, hvað bóka-
gerð snertir, — og þá ekki hvað
sízt hlutur Atla Más. Hann hefur
myndski-eytt og séð um ytra út-
lit bókai'innar og unnið að því um
fjöldamörg ár, án þess okkur væri
kunnugt. Um hlut Tómasar þarf
ekki að fjölyrða, enda er þetta
áttunda prentun bókarinnai'."
En um hvað fjalla bækurnar?
í stuttu samtali við Frjálsa
vei'zlun höfðu þeir báðir orð á því,
Baldvin Tryggvason og Oliver
Steinn, að sífellt bærist meira
magn af erlendum skáldsögum á
markaðinn. Oliver Steinn bætti
því við, að t. d. hefði fei'ðabókum
fækkað tilsvarandi í ár og taldi,
að þýddu skáldsögumar væru nú
í toppi og færu ekki hærra í hlut-
falli af heildarútgáfu bóka. í sam-
ræmi við þetta gefur POB á Akur-
eyi'i út Elskaðu náungann, eftir
Willy Breinholst í þýðingu Krist-
manns. Þetta er satíra um þær
sexbókmenntir, sem ti'ölli-iðið hafa
Skandinövum og raunar náð út
hingað. „Bráðskemmtileg bók“,
sagði Geir S. Björnsson, prent-
smiðjustjói'i.
Baldvin kvað flestar þýddu sög-
urnar um heimstyrjöldina síðari
eða þá njósnasögur, auk hinna
venjulegu rómana, sem enduðu vel
og hafa helzt lækni eða hjúki'un-
arkonu að aðalpersónu. Hins veg-
ar örlaði lítið á skáldverkum, sem
hefðu bókmenntalegt gildi, og
benti á, að Loftsiglingin eftir Per
Olof Sundman væri ein af fáum.
„Sennilega er ástæðan þó ekki sú,
að fólk hafi ekki áhuga á góðum
erlendum bókmenntum, heldur
hitt, að nú er orðið svo auðvelt að
fá allar meiriháttar bókmenntir á
frummálinu i bókabúðum hér í