Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 29
FRJALS VERZLUN
17
GOLDEN ICELAND
er tvímœlalaust bezta gjöfin til œttingja
og vina erlendis.
Golden Iceland eftir franska rithö’fundinn Samivel
er sígilt landkynningarrit á ensku, sem aS list-
rœnni gerS lesmáls og mynda, ber af flestum
öSrum samkynja bókmenntum. Þetta er bókin,
sem mun bera hróSur íslands um allan heim.
VERÐ KR. 698,00.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
Annars er það okkur til sóma, hve
vel er að okkur búið í þessum
efnum. Fornritin þokast áfram,
þótt hægt fari, og Félagsbókband-
ið býður okkur öll verkin í 42
bindum á aðeins 16 þús. kr, í
skinnbandi. Og Helgafell gefur
enn út Grettissögu, skreytta lista-
verkum.
Síðast og ekki sízt verður hér
getið um LANDIÐ ÞITT, það stór-
merka ritverk, sem enginn íslend-
ingur getur í rauninni verið án,
og óþarfi er að fjölyrða frekar
um hér.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um efni bóka þeirra, er bók-
menntaþjóðin á um að velja. En
hvernig vill hún, að bækurnar
séu úr garði gerðar?
Um alllangt skeið hefur prent-
un bóka verið hér góð, en bók-
bandið fylgdi ekki þróuninni eft-
ir. Á síðustu árum hefur þó orð-
ið þar stórbreyting á og afkasta-
getan aukizt að sama skapi.
Gunnar S. Þorleifsson í Félags-
bókbandinu hefur orðið: „Vand-
ræðin hér skapast af mannfæð-
inni. Og upplögin hafa frekar
minnkað en aukizt, — fyrir 15
árum var þokkalegt upplag 3 þús.
bindi, nú 2 þús. Þetta veldur því,
að það er dýrt að gefa bækur út á
íslandi og stöðlun er ekki til. Og
það er heldur ekki von, því að
hver útgefandi vill fá sitt útlit á
sína bók. Hins vegar er vélakost-
urinn sízt verri en á hinum Norð-
urlöndunum og bókbandið nú ekki
síðra en hjá öðrum þjóðum.“
Og til sönnunar máli sínu sýndi
hann þeim. er þetta ritar, Fögru
veröld. Það er falleg bók, — það
sagði Baldvin satt.
Okkur vex stundum í augum,
hvað bækur eru dýrar hér. En eft-
ir gengisfellinguna kemur á dag-
inn, að bækur eru e. t. v. ódýrari
hér en í nágrannalöndunum. A.
m. k. er það svo um Nakta apann
eftir Desmond Harris. Hann kostar
innbundinn 45 krónur danskar.
Þegar við ósköpumst yfir verði
bóka, skellum við áreiðanlega oft
skuldinni á bandið, enda hafa
menninvarvitar haldið því fram,
að bókbandið sé helmingur kostn-
aðarins. Og vitaskuld er rétt að
frefa gaum að því, sem þeir segja.
Þeir eru sjálfkjörnir.
Oít bó skiátlast menninearvitun-
um í betta sinnið- Bók í „royal-
stærð“ kostar um 276 þús. kr. inn-
bundin í 2000 eintökum. Þar af
kostar bókbandið 90 þúsund. Og
þá á útgefandinn eftir að fá sitt
og bóksalinn sitt.
En við getum líka spurt: Vilja
íslendingar að minna sé lagt í
bandið sjálft?
Því svarar Gunnar hiklaust neit-
andi: ,.Það er einkenni fslending^