Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 47

Frjáls verslun - 01.12.1968, Blaðsíða 47
FRJALS VERZLUN 27 hvort á annað. Eigum við? „Mér lízt bezt á þetta sófasett," segir svo ungi maðurinn. Hann er með gleraugu og horfir raunsæjum augum á húsgögnin. En frúin er ekki ánægð. Kannski fer þetta sett ekki vel við gluggatjöldin hennar og hún vill sjá meira. Ósk- ar talar; hann útskýrir gerðir, á- klæði og framleiðslumáta. Ungi maðurinn brosir aðeins; hann hef- ur tekið sina ákvörðun, en frúin hlustar af athygli; hún spyr, þreif- ar sjálf á áklæðunum, spyr meira og smám saman þrengir hún hringinn. Hún ætlar upp í verk- stæðið með Óskari. „Góði komdu meö,“ segir hún við mann sinn og hann fer með, þótt hann sé með sínu raunsæi búinn að velja rétta sófasettið. Svo koma þau öll nið- ur aftur. Óskar og unga konan eru brosandi. Svo höldum við Óskar samtal- inu áfram. — Hvernig er samkeppnin miili ykkar húsgagnaframleiðendanna? — í flestum tilfellum hörð — og skemmtileg. (Óskar hlær við). En því er ekki að neita, að ósvífnin á sér stundum stað. Eg veit t. d. af persónulegri reynslu, að sumir framleiðendur víla ekki fyrir sér að stela hugmyndum er- lendra húsgagnaarkitekta. Og þetta gera þeir, jafnvel þó þeir viti, að cinhver annar hefur einkarétt á þessum hugmyndum og greiðir samkvæmt því visst gjald fyrir hvert húsgagna, sem hann framleiðir. — Nú er Óskar sár. Hann lítur á mig. — Sjaðu til, segir hann. Slíkt framferði — og mig verkjar í budduna. Sam- keppni er ágæt og lífsnauðsyn- leg; en vísvitandi óheiðarleiki er tabú. Á hvaða sviði sem er. — En hvernig' geta stuldir sem þessir átt sér stað? — Þarna vil ég mest kenna um skorti á samstöðu íslenzkra hús- gagnaarkitekta með erlendum starfsbræðrum sínum. Auðvitað eiga þeir íslenzku að vernda hagsmuni hinna og koma í veg fyrir, að svona stuldir geti átt sér stað. Og taktu eftir þessu! Um leið og slíku eftirliti verður komið á, þannig að það sé meira en nafnið tómt, þá fyrst fá íslenzk- ir liúsgagnaarkitektar raunveru- lega að spreyta sig. — Þá verða þeir að spreyta sig! — Þú minntist áðan á samvinnu húsgagnaframleiðenda. Hvernig er andrúmsloftið gagnvart sam- vinnu? — Því miður ekki nógu jákvætt. Kjailara- og bílskúrahugsunar- hátturinn blómstrar allt of vel ennþá, og á honum strandar öil samvinna. Það halda allir, að það sé grænna hinum megin við gii-ð- inguna. Vegna þessa erum við líka langt á eftir, hvað snertir uppbyggingu iðnaðarins. Dæmin sanna, að íslenzk iðnfyrirtæki eiga ekki möguleika á nema vissri stærð. Ef þau fara upp fyrir hana, er þeim voðinn vís, að minnsta kosti með tilliti til þess, hve okk- ar markaður er smár. Þess vegna skiptir hagræðingin svo miklu máli. — Hvaða áhrif hefur gengisfeii- ingin á Dúna? (Þetta viðtal okk- ar Óskars fer fram skömmu eftir að stofngengi íslenzku krónunn- ar var felit um 35,2%.) — Þessi gengisfelling gerir okkur erfiðara fyrir í samkeppn- inni.Við greiðum erlendum aðil- um peninga fyrir framleiðslurétt og það er takmarkað, hvað hægt er að reka svona fyrirtæki með litl- um reksturskostnaði. Eina svarið, sem við höfum, er aukin hagræð- ing. Hins vegar get ég vel sagt það hreint út, að það, sem gerir okkur mögulegt að standast storm- ana, er, að við seljum okkar vöru að mestu leyti sjálfir. Annars gæt- um við alveg pakkað niður. Svona horfa nú málin við frá mínum bæjardyrum séð. — Hvað er þá framundan, Ósk- ar? — Við okkur biasir jólasalan. Kannski höfum við ekki yfir neinu að kvarta, en ég er kviðinn. Kom- andi tímar hljóta að leggjast þungt á mina stétt, sem aðrar. En ég bið mér engrar miskunn- ar. Allt, sem ég bið um, er að mega halda minni stefnu óáreitt- ur og til þess mun ég berjast af fullum krafti hér eftir sem hingað til. Og áður en ég er kominn út úr dyrunum, er Óskar í Dúna farinn að skera til áklæði af fullum krafti. KAUPMENN! INNKADPASTJORAR! Allir óska eftir að fá beztu og seljanlegustu vöruna. Þess vegna kaupa allir Taxisclier sokka og sokkabuxur. UMBOÐSMENN AGUST ÁRMANN H.F. Sími 22100
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.