Frjáls verslun - 01.10.1971, Blaðsíða 11
Peningar
Endurskipulagningu seðla- og
myntútgáfunnar lokið
Peningameðferö hefur verið auðvelduð til mikilla muna
Á undanförnum misserum
hafa nýir peningar komið af
og til frá Seðlabankanum, og
aðrir verið innkallaðir. Þetta
hefur ekki einungis verið
vegna venjulegrar endurnýjun-
ar, heldur fyrst og fremst fram-
framkvæmd endurskipulagn-
ingar á seðla- og myntnotkun-
inni, sem Seðlabankastjórn
ákvað árið 1968. Endurskipu-
lagningunni lauk í meginatrið-
um þegar 5000 króna seðillinn
var gefinn út fyrr á þessu ári.
Seðlar þeir, sem nú eru í
umferð á íslandi, eru annars
vegar seðlar, gefnir fyrst út í
maí 1960 með heimild í lögum
nr. 63/1957 með nafni Lands-
banka íslands, Seðlabankans,
og seðlar gefnir út í nafni
Seðlabanka íslands samkvæmt
lögum nr. 10/1961. Fyrstu seðl-
arnir með nafni Seðlabanka ís-
lands voru 1000 kr- seðlar, sem
látnir voru í umferð í júní
1963, og er nú svo komið, að
nær eingöngu eru í umferð
seðlar með nafni bankans.
Fram til þess tíma, eða frá
setningu Landsbankalaganna
1927 og 1928, hafði seðlaútgáf-
an verið í höndum Landsbank-
ans. Hins vegar hafði ríkissjóð-
ur farið með myntsláttu hér-
lendis allt frá árinu 1922. En
árið 1961, þegar Seðlabankinn
var gerður að sjálfstæðri stofn-
un, var fjármálaráðherra heim-
ilað með lögum að fela bank-
anum myntsláttuna. Ekki var
gengið frá myntsláttarsamn-
ingi milli fjármálaráðherra og
Seðlabankans fyrr en árið 1966.
Með þeim samningi fékk Seðla-
bankinn einkarétt til að slá og
gefa út mynt frá 1. apríl 1967.
Samningurinn komst þó ekki
til framkvæmda fyrr en á
næsta ári, þar sem bankann
skorti nauðsynlegar geymslur
og bætt afgreiðsluskilyrði.
Árið 1968 varð að lögum
frumvarp um gjaldmiðil ís-
lands, sem er heildarlöggjöf
um mynt og seðla, og voru
fyrri lagaákvæði felld úr gildi.
í maí þetta ár var látinn í um-
ferð 10 króna peningur og nýr
500 króna seðill. Markaði þetta
þáttaskil í peningaútgáfu hér-
lendis, og var fyrsti áfangi í
endurskipulagningu islenzkrar
seðla- og myntútgáfu. Nokkrum
mánuðum síðar, eða 1. desem-
ber, var svo gefinn út 50 króna
peningur í 100 þúsund eintök-
um í minningu 50 ára fullveld-
is landsins, og seldist sá pen-
ingur upp á örfáum dögum.
í lögunum um gjaldmiðil ís-
lands var heimild til að ákveða
með reglugerð, að fjárhæð
hverrar kröfu eða reiknings
skuli tilgreina með heilum tug
aura. Einnig var í lögum heim-
ild til að ákveða innköllun ein-
stakra seðla.
Næsta skref í endurskipu-
lagningu þeirri, sem nú var
hafin, var útgáfa tveggja nýrra
myntstærða árið 1969, 50 aura
og 5 króna, en hætt var að
setja í umferð 1, 5 og 25 eyr-
inga auk 5 og 10 króna seðla.
í nóvember þetta ár var gefin
út reglugerð, þar sem ákveðin
var innköllun allra seðla, sem
settir höíðu verið í umferð frá
og með eignakönnun og seðia-
skiptum í ársbyrjun 1948. Einn-
ig var ákveðin innköllun 5 og
10 króna seðla, sem gefnir voru
út samkvæmt lögum frá 1957
og 1961.
Á síðasta ári var gefinn út
50 króna peningur, og þá um
leið hætt að láta 25 króna seðla
í umferð. í apríl sl. var svo
5000 króna seðill settur í um-
ferð, og var þar með lokið
þeirri endurskipulagningu á
gjaldmiðlinum, sem banka-
stjórnin boðaði árið 1968.
Útgáfa 5000 króna seðilsins
virðist hafa verið orðin tíma-
bær. Hlutdeild 1000 króna seð-
ilsins í seðiamagninu, sem var
66.1% í árslok 1961, var orðin
82.4% í árslok 1970. Með til-
komu 5000 króna seðilsins
létti mjög á notkun 1000 króna
seðilsins, og svo var komið um
mánaðamótin sept./okt., að
hlutdeild 5000 króna seðilsins
var orðin 32.1% af seðlum í
umferð, en hlutur 1000 króna
seðilsins hafði minnkað í 52%.
Hlutur 500 króna seðla var þá
5.1% og 100 króna seðla 9.7%.
Almenningur hefur yfirleitt
tekið öllum þessum breyting-
um mjög vel, enda eru þær
fyrst og fremst gerðar með það
fyrir augum að auðvelda ann-
ars óhjákvæmilega seðla- og
myntnotkun. Vinnusparnaður
við notkun seðla og myntar
hefur orðið meiri en almenn-
ingur gerir sér ef til vill grein
fyrir. Þá hefur kostnaður við
útgáfu, endurnýjun og eyðingu
seðla eðlilega einnig farið stór-
minnkandi.
Fram til ársins 1932 voru ís-
lenzku seðlarnir prentaðir í
danska þjóðbankanum, en þetta
ár var prentunin fengin í hend-
ur ensku fyrirtæki, Bradbury-
Wilkinson & Co. Ltd., sem hef-
ur verið brautryðjandi á ýms-
um sviðum prentunar af því
tagi, sem seðlaprentun er, og
er í dag eitt virtasta einkafyrir-
FV 10 1971
11