Frjáls verslun - 01.10.1971, Blaðsíða 69
Á MARKAÐIUUM: HÚSGÖGIVI
VÖRUMARKAÐURINN HF.,
Ármúla la, Reykjavík.
Raðhúsgögn í barna- og
unglingaherbergi, i ýmsum lit-
um, skrifborð, kommóða, hill-
ur. Fleira í sama stíl væntan-
legt. Verð með söluskatti:
Skrifborð kr. 5.100 kommóða
kr. 4.500, hillueining kr. 2.000.
Á myndinni er einnig rúmensk-
ur pinnastóll, fáanlegur í ýms-
um litum, verð með söluskatti
kr. 3.950.
HÚSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNDAR
GUÐMUNDSSONAR,
Skeifunni 15, Reykjavík.
Raðsófasett, framleitt hjá
Dúna, stakir stólar, sem raða
má saman að vild, skammel og
borð með glerplötu, lausir púð-
ar á stólum og skammeli, gler-
platan á borðinu laus. Verð
með söluskatti (ísl. áklæði):
Stóll kr. 8.500, skammel 5.200,
borð 6.900.
EINIR HF.,
Kaupvangsstræti 19, Akureyri.
Sófasett í sérkennilegum stíl,
virðulegt og popplegt í senn,
þægilegt til setu, með pluss-
áklæði. Fæst bæði með dralon-
plussáklæði og ullar-pluss-
áklæði. 2ja sæta sófi, stóll og
borð, annaðhvort fei'kantað eða
ílangt. 2ja sæta sófinn og tveir
stólar kosta með söluskatti frá
kr. 37.500, borð frá kr. 5.775.
Selt í verzlun fyrirtækisins á
Akureyri, í Skeifunni, Kjör-
garði og í Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur, Brautarholti 2.
FV 10 1971
69