Frjáls verslun - 01.08.1974, Side 35
sjálfar um 400 þús., tollar og
söluskattur til ríkisins er um
480 þús. og ofan á þetta bæt-
ast síðan flutningsgjöld og vá-
trygging. Álagningin er 6.8%.
1616 FORDBÍLAR Á
HÁLFU ÁRI.
Af hálfu Ford-verksmiðj-
anna er, að sögn Inga Þórs,
litið með velþóknun til starfa
umboðanna þriggja hér á ís-
landi og á'herzla lögð á, að
þau séu sem sjálfstæðust og
öflugust. Tölurnar um bílainn-
flutning benda líka til að
mjög góður árangur hafi náðst
í starfi þeirra, því að frá ára-
mótum til júníloka höfðu ver-
ið fluttir inn 1616 Fordbílar
en af tegundinni, sem var í
öðru sæti, höfðu komið innan
við þúsund bílar. Viðskiptavin-
ir Bílasölunnar á Akureyri
hafa keypt 250-300 bíla á sl.
þrem árum og brúttóvelta,
sem var um 50 milljónir í
fyrra, verður rúmlega 100
milljónir í ár.
Ingi Þór sagði, að mjög
miklir erfiðleikar væru í
rekstri bílaverkstæða og gerðu
verðilagsákvæði þeim ókleift
að byggja upp og endurnýja
eins og þau þyrftu fyrir þenn-
an aukna og nýja bílakost.
Þetta ætti ekki síður við um
verkstæði Bílasölunnar en
önnur. Þar starfa nú 18
manns við viðgerðir og þjón-
ustu við nýja bíla.
SPÁNSKUR FORD.
Að lokum spurðum við
Inga Þór, hvort nýjunga væri
að vænta í bílaframleiðslunni
hjá Ford, og sagði hann, að af
amerískum bílum væri vænt-
anlegur einn nýr árið 1975,
þ. e. Ford Granada, sem verð-
ur af millistærð í fremur dýr-
um flokki, nokkru ofan við
Mercury Comet. Þá kemur nýr
Escort fram á sjónarsviðið á
næsta ári og innan tveggja til
þriggja ára má svo búast við
nýjum smábíl frá nýjum Ford-
verksmiðijum á Spáni. Verður
hann sennilega um margt lík-
ur Fiat 127.
Fatageröin íris:
Saumar f jölbreytt úrval af
náttfatnaði handa konum
í kjallara íbúðarhúss síns að Grænumýri 10 á Ak-
ureyri starfrækir Jón Tryggvason saumastofu fyr-
ir fyrirtæki sitt, fatagerðina fris. Hefur hún sérhæft
sig- í saumi á náttfatnaði fyrir kvenfólk á öllum
aldri.
eru gerðir í vélunum. Eins og
áður sagði eru það aðallega
náttkjólar og annar náttfatn-
aður handa kvenfólki, sem íris
framleiðir, en einnig blússur
fyrir sumarið. Undirkjólasaum-
ur lagðist niður um leið og
buxnatízkan ruddi sér til
rúms.
Þegar okkur bar að garði
heima hjá Jóni var hann að
búa sig undir að hefja sauma-
skap á nýjan leik, en hann
hefur legið niðri í sumar. Var
hann með uppi á borðum ýms-
ar prufur, sem saumaðar
höfðu verið, með nýjum snið-
um og mjög fjölbreyttu lita-
vali.
Jón vann hjá verzluninni
Amaro í 23 ár en setti fyrir-
tæki sitt á stofn árið 1968.
Átti það að vera til húsa í
Grænumýrinni í eitt til tvo
ár, meðan það væri að hasla
sér völl, en enn hefur ekki
gefizt tækifæri til að færa út
kvíarnar og flytja í annað hús-
næði.
Undanfarið hafa sjö konur
starfaði við saumaskapinn og
fer hver flík á milli þeirra, Jcn Tryggvason við sníðaborðið, þar sem fyrr um daginn höfðu
þar sem mismunandi saumar verið sniðnir nokkrir náttkjólar samkvæmt nýjustu tízku.
FV 8 1974
35