Frjáls verslun - 01.08.1974, Side 79
Frægir gestir við Hótel ís-
land, þátttakendur í fluginu
til íslands 1924. Þeir eru frá
vinstri: F. G. Crosia, Lt. Hard-
ing, dr. Summer, Lt. Nelson,
Locatelli og Lt. Smith.
„Billingsley“ og „Barry“, herskipin „Raleigh“
og „Richmond“, danska herskipið „Islandsfalk“,
sem statt var í Frederiksdal, og bryndrekinn
„Milwaukee", er staddur var við vesturströnd
Grænlands.
Þann 21. ágúst að morgni lögðu flugmenn-
irnir þrír af stað og höfðu þá fengið veðurskeyti
frá Grænlandi og virtust flughorfur góðar. Smith
flaug af stað kl. 7 um morguninn, lenti hann
snöggvast í Skerjafirði, en flaug síðan áfram.
Nelson lagði af stað kl. 7,01 og Locatelli kl.
7,08. Urðu þeir samferða Smith og Nelson all-
lengi, en urðu síðar um daginn viðskila, í þoku.
Herskipið „Richmond" lá úti í hafi 70 mílur,
og flugu þeir framhjá kl. 8,32, en tundurspill-
irinn „Reid“ var 205 mílur vestur í hafi og
flugu þeir fram hjá honum kl. 9,40 f.h. Héldu
þeir nú förinni áfram og segir ekki af þeim fyrr
en þeir nálguðust Frederiksdal. Var þá rigning
og þoka og leit ekki út fyrir, að þeir gætu náð
lendingu, en West skipstjóri á „Islandsfalk“,
sem fylgdist með ferðum þeirra, lét hleypa út
úr eimpipum skipsins og skjóta úr fallbyssum.
Lagði þá hvíta gufu upp úr þokunni, er flug-
mennirnir sáu; komu þeir þá auga á „Islands-
falk“ og tókst að lenda í Frederiksdal, Smith
kl. 5, en Nelson kl. 6. Var nú beðið eftir Loca-
telli. en hann var horfinn. Var nú leitað næstu
daga af herskipunum og 4 Vough-flugvélum,
er herskinin höfðu meðferðis. Loks fann her-
skipið „Richmond“ Locatelli og félaga hans
á floti, og var hann á reki undan Kap Farvel.
Hafði hann lent í dimmri þoku og orðið að
lenda, en af því að sjór var mjög úfinn og all-
hvasst var, tókst honum ekki að hefja sig aft-
ur til flugs, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Hafði
hann rekið um nær 100 mílur, er hann fannst,
og voru þeir félagar aðframkomnir af kulda og
vosbúð, eftir 3V2 sólarhrings hrakning úti á
reginhafi. Flugelda höfðu þeir og sendu þá upp
á hverjum þriggja klukkutíma fresti, en flug-
eldabirgðir þeirra voru nær þrotnar, er þeir
fundust, en matvæli höfðu þeir til sjö daga.
Ljósið af flugeldunum varð þeim til lífs. Flug-
vél Locatellis var mjög löskuð, er þeir fundust,
og bað hann um, að flugvél sinni yrði sökkt,
og var það gert.
En af Smith og Nelson er það að segja, að
þeir héldu áfram ferðinni og flugu áleiðis til
Labrador 26. ágúst. Smith flaug frá Frederiks-
dal til Ivigtut (126 enskar mílur) á rúmum 2
tímum.
1. september lentu þeir í Ice Tickle-vík á
Labrador og fengu þá heillaskeyti frá forseta
Bandaríkjanna. 2. september flugu þeir til
Hawkes á Nýfundnalandi, en 3. september til
Picton á Nýja Skotlandi. Þar hittu þeir félaga
sinn, Wade, er hafði fengið nýja flugvél. og
flugu þeir nú allir til Boston 6. september. Var
þá mikið um dýrðir í borginni, en þeir komu
þangað kl. 4 siðdegis. 13 flugvélar flugu á móti
þeim, en fallbyssuskot dundu við frá virkjum
borgarinnar og herskipum, en öll eimskip og
verksmiðjur blésu í eimpípur sínar. 8. septem-
ber flugu þeir til New York í fylgd margra
flugvéla, og lentu þar á flugvellinum Mitchell
Field. en 30000 manns voru þar saman komnir
til að fagna þeim, og var þar á meðal prinsinn
af Wales. 9. september lentu þeir í Washington
og var þeim fagnað þar með 21 fallbyssuskoti,
en aragrúi af fólki var þar saman kominn. For-
seti Bandaríkjanna tók á móti þeim og þakkaði
þeim frækilega för. Síðan héldu þeir áfram til
Dayton í Ohio og heimsóttu bræðurna Wright,
sem taldir eru fyrstu flugmenn heimsins, og
komust loksins til Seattle, þar sem heimsfluginu
var lokið.
FV 8 1974
79