Frjáls verslun - 01.05.1976, Page 12
4
Byggðasjóður:
iJtborgað lánsfé nam 1286
milljónum í fyrra
Samþykkt voru 425 lán og styrkir á árinu
í skýrslu Framkvæmdastofnunar ríkisins fyrir árið 1975 er sérstakur kafli um starfsemi lánadeild-
ar. Er þar fjallað um lánveitingar úr Framkvæmdasjóði og Byggðasjóði. Á árinu 1975 veitti Fram-
kvæmdasjóður ný lán að fjárhæð alls 4.365.,5 millj. kr., en ný lán og styrkir úr Byggðasjóði voru
samþykktir að fjárhæð 1.603,2 milljónir króna.
Lánveitingar Framkvæmda-
sjóðs skiptust þannig:
Millj. kr.
Byggðasjóður ............... 243,8
Fiskveiðasjóður ísl. . . . 2.098,5
Iðnlánasjóður .............. 117,0
Lánasjóður sveitarfél. . 124,0
Stofnlánadeild landb. . 1.387,1
Stofnlánadeild sam-
vinnufélaga .............. 25,0
Veðdeild Búnaðar-
banka íslands....... 15,0
Verzlunarlánasjóður . . 25,0
Ríkissjóður v/vegag. . . 215,0
Árni Jóhannsson,
Reykjavík ................. 5,0
Bandalag ísl. skáta &
Skátasamband
Reykjavíkur ............... 4,0
Daníel Þorsteinsson
& Co. hf., Rvík..... 5,0
Flugstöðin hf., Rvík . . 8,0
Hengill hf., Mosf.sveit . 4,0
Hótelfél. Þór hf.,
Stykkishólmi...... 13,0
Hreppssjóður Selfosshr. 5,0
ísl. Jetminnkur hf..... 2,0
Hótel Höfn hf., Höfn . . 2,0
Olíumöl hf., Garðabæ . 12,5
Hótel Húsavík hf.,
Húsavík .................. 10,0
Hótelbygging Patreksf. 4,0
Sandskip hf., Rvík .... 6,0
Slippfélagið í Rvík hf. . 15,0
Suðurverk hf., Hvolsv. 5,0
Sædýrasafnið, Hafnarf. 3,6
Véltækni hf., Rvík .... 3,0
Völur hf., Rvík....... 4,0
Vöruflutningamiðstöðin
hf., Reykjavík...... 4,0
Samtals 4.365,5
Auk framantalinna lána
veitti Framkvæmdasjóður 40 m.
kr. bráðabirgðalán vegna fyrir-
greiðslu til eigenda vöruflutn-
ingabifreiða á langleiðum. Á ár-
inu voru greiddir styrkir til
rannsókna á nýjungum í þágu
atvinnulífsins að fjárhæð 2 m.
kr.
LÁNTÖKUR
Á árinu 1975 tók Fram-
kvæmdasjóður lán hjá ríkis-
sjóði að fjárhæð 2.120 m. kr.
Lán þetta er í Kuwait Dinars
og er -hluti af erlendu láni, er
ríkissjóður tók í desember 1975
á erlendum verðbréfamarkaði.
Lánið endurgreiðist í þrennu
lagi, á árunum 1980—1982. Þá
tók Framkvæmdasjóður tvö lán
hjá Viðreisnarsjóði Evrópuráðs-
ins á árinu 1975, hið fyrra að
fjárhæð $ 1.875.000 og hið síð-
ara að fjárhæð $ 4.000.000 eða
alls að fjárhæð 895 m. kr. mið-
að við gengi þegar lántökur
þessar fóru fram.
Á árinu 1975 voru á ný gerðir
samningar milli Framkvæmda-
sjóðs og viðskiptabankanna
þess efnis, að bankarnir keyptu
skuldabréf af Framkvæmda-
sjóði fyrir fjárhæð, er næmi
10 % af aukningu innlána bank-
anna á árinu 1975. Lán sam-
kvæmt þessu samkomulagi að
viðbættum eftirstöðvum frá
fyrra ári námu 842,2 m. kr. en
ógreitt var til Framkvæmda-
sjóðs i árslok 412 m. kr. Lán
þessi endurgreiðast með jöfn-
um afborgunum á 15 árum.
Á árinu 1975 var þeim til-
mælum beint til lífeyrissjóð-
anna í landinu, að þeir keyptu
skuldabréf Framkvæmdasjóðs
og Byggingarsjóðs ríkisins eins
og tvö undanfarin ár. Skulda-
bréfakaup lífeyrissjóðanna af
Framkvæmdasjóði námu 223,6
m. kr. Lán þessi endurgreiðast á
15 árum með 4% vöxtum og
12
FV 5 1976